Tíminn - 23.02.1975, Side 36

Tíminn - 23.02.1975, Side 36
36 TÍMINN Sunnudagur 23. febrúar 1975 90 þús. verkefni frá um- ferðar- skólanum Ungir veg farendur Um þessar mundir er 7. starfs- ár umferðarskólans Ungir Veg- farendur að hefjast. Umferðar- skólinn er bréfaskóli fyrir börn undir skólaskyldualdri, eða á aldrinum 3ja—(> ára. Tilgangur með starfi umferðar- skólans er að kynna foreldrum þau vandamál, sem barnið á við að striða I nútima umferð, og að- stoða þá við kennslu barna sinna i undirstöðureglum umferðarinn- ar, og leggja þar með grundvöll- inn aö betri hegðun þeirra sem vegfarendur. A fjögurra ára timabili, sem börnin eru i umferðarskólanum, fá þau send 25 verkefni. Verkefn- in eiga börnin að vinna með að- stoð foreldra eða einhverra ann- arra fullorðinna. Lögö er áherzla á það, að verkefnunum sé haldið saman þessi 4 ár og séu tekin fram öðru hverju til þess að rifja efni þeirra upp. Kostnaður við skólann er greiddur sameiginlega af þeim 45 sveitarfélögum, sem aöild eiga að skólanum, og Umferðarráði. Samtals eru 17.122 börn á skrá skólans þetta starfsár, og eru út- send verkefni um 90 þúsund. Um sfðustu áramót kom út i Noregi bók, er ber nafnið BARN, TRAFIKK OG TRAFIKKOP- LÆRING eftir Per Schioldborg. Bókin er gefin út af sálfræðistofn- un háskólans i Osló. I bókinni er greint frá ýtarlegum rannsókn- um, sem gerðar voru á eftirtöld- um þremur atriðum varðandi börn I umferö: Hæfni barna i um- ferð, hegðun barna i umferð og slysahættu barna i umferð. I rannsóknunum var gerður sam- anburður á börnum á forskóla- aldri, sem höfðu hlotið umferðar- fræðslu i „Barnets Trafikklubb” i Noregi og þeim, sem ekki höfðu hlotið þá fræðslu. Rannsóknirnar leiddu m.a. i ljós, að stúlkur, sem voru nemendur i umferðarskól- anum, voru hæfari en þær, sem ekki voru i skólanum. Aftur á móti var litill munur hjá drengj- um. Hvað hegðun barna i umferð snerti, þá var ekki mikill munur hvort um var að ræða börn i skól- anum eða utan hans, þegar þau voru mörg saman á ferð. Aftur á móti, þegar börn voru ein á ferö, þá var hegöun þeirra, sem voru nemendur i skólanum, 45% ná- kvæmari en þeirra, sem voru ut- an hans. Þegar rannsökuð var slysahætta barna, var gerð könn- un á slysum, sem börn fædd 1966 og 1967 höfðu orðiö fyrir árið 1972. Kom þá i ljós, að ef tekið var mið af öllu landinu, var slysahætta barna, sem voru nemendur i um- ferðarskólanum, 20% minni en þeirra, sem voru utan hans. Sams konar niðurstöður fyrir Oslóborg sýndu, að 40% minni hætta var hjá þeim börnum, sem voru i skólanum, en þeim, sem voru ut- an hans, Þá kom einnig i ljós aö á landsmælikvarða var slysa- hætta meðal stúlkna 40% minni, ef þær voru i umferðarskólanum, og drengja 10%. t Osló voru sams konar niðurstöður 25% og 50%. Þá var gerð könnun meðal foreldra barnanna. Niðurstöður þeirrar könnunar voru i aðalatriðum á þá leið, að foreldrar barna, sem voru nemendur i umferðarskól- anum, voru sér meira meðvitandi um stöðu barnsins I umferö, og i viðhorfi sinu til umferðarskólans voru 89% á þeirri skoðun, að með þeirri umferðarfræðslu, sem börnin fengu i skólanum, væru þau vökulli i umferöinni, sýndu meiri varúð og væru meira um- ferðarlega sinnuð. SVALUR ' Hann veröur að komast á spitala. Ég kem honum aldrei héðan i burtu, eða hvað, get égi 1 Nú hlvtur Siggi aö hafa. HA\ pp að_ leita að mér og sent þyrlu til leitar. ^ Ef...nei, þegar þyrlan^ kemur verð ég að vera | Svalur heldur á stað meö stóra flaggið, klifrar upp á brúnina og . ------- M vl UlAAlia ug i gengur siöan i átt að ströndjmni

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.