Tíminn - 23.02.1975, Page 37
37
Sunnudagur 23. febrúar 1975
TÍMINN
Þörunga
vinslan
eykur
skipakost
sinn
gébé—Reykjavik — Þörunga-
vinnslan hf. er nú að láta smiða
fyrir sig þrjá 7-8 lesta báta, hjá
Bátalóni hf. i Hafnarfirði. Bátana
á að nota til að aðstoða við þang-
öflun. Þá er búizt við að hægt
verði að hefja uppsetningu véla i
verksmiðjunni i Karlsey á
Breiðafirði um miðjan næsta
mánuð. Tvö hundruð og sjötiu
lesta skip fékk Þörungavinnslan
hf. rétt fyrir áramót, og nefnist
það „Karlsey”.
Framkvæmdir við verksmiðj-
una eru i fullum gangi, og nú er
unnið að innréttingum þar. Vil-
hjálmur Lúðviksson efnaverk-
fræðingur tjáði blaðinu að einnig
væri unnið af fullum krafti að
jarðvarmaleiðslunni frá Reyk-
hólum, en að hafnarfram-
kvæmdirnar gengju ekki eins vel
og búizt hefði verið við.
— Ekki var gengið endanlega
frá fjármagnsveitingu til hafnar-
gerðarinnar fyrr en siðari hluta
árs 1974, sagði Vilhjálmur,
þannig að framkvæmdir hófust
seint, og verður sennilega ekki
lokið endanlega við hafnar-
gerðina fyrr en á næsta ári.
Ástæðuna fyrir þvi, hve seint
gekk að fá fjármagn til hafnar-
gerðarinnar, kvað Vilhjálmur
vera þá, að Hafnamálastofnunin
hefði verið með mörg verkefni á
sama tima, t.d. hafnarfram-
kvæmdir i Þorlákshöfn, og ekki
hefði unnizt timi til að sinna þessu
fyrr.
Eins og áður segir, er nú verið
að smiða þrjá sjö til átta tonna
báta fyrir þörungavinnsluna hjá
skipasmiðastöðinni Bátalóni i
Hafnarfirði. Bátarnir verða
notaðir til að taka net frá prömm-
unum og draga þau að
legufærum igeymslu, og siðan að
þangflutningaskipinu, eða jafnvel
að bátarnir dragi netin sjálfir til
verksmiðjunnar. Aætlað er, að
bátarnir verði tilbúnir i
april/mai.
Hluti af vélunum i þörunga-
vinnsluna er nú kominn til
landsins, og afgangurinn er á
leiðinni. Megnið af vélunum
kemur frá Þýzkalandi, en einnig
kemur nokkuð frá Bretlandi.
Þangöflunartækin eru aftur á
móti frá Bandarikjunum. Búizt er
við að hægt verði að hefja
uppsetningu vélanna um miðjan
marzmánuð, en vonazt er til að
starfsemi þörungavinnslunnar
geti hafizt i mai.
Flutningaskipið Karlsey, sem Þörungavinnsian fékk til iandsins rétt fyrir áramót, er 270 lestir að stærð.
Þörungavinnslan er að láta smiða þrjá 7-8 tonna báta hjá Bátaióni i Hafnarfirði. Á myndinni sjást tveir
bátanna I smiðum. Tfmamyndir: Róbert.
Danski leikarinn
EBBE RODE
hefur upplestrarkvöld i samkomusal Nor-
ræna hússins miðvikudaginn 26. febrúar
kl. 20:30. Aðgöngumiðar seldir i Norræna
húsinu.
Kaffistofan er opin.
Dansk-islenska ORRÆNA
félagið. HUSIÐ
Fyrirlestrar í
Norræna húsinu
Mánudag 24. febrúar kl. 20:30
ODD NORDLAND, dósent við Oslóarháskóla:
Folkeminneforsking og samtids folkekultur. Masse-
kommunikasjon og fuknsjonsanalyse.
Fimmtudag 27. febrúar kl. 20:30
EVA NORDLAND, dósent við Osióarháskóla:
Váre samtidige norske ungdomsproblemer. Aktuell forsk-
ing.
Kaffistofan er opin
Allir velkomnir.
NORRÆNA
HÚSIÐ
Getum útvegað yður FASSI kr
na með stuttum fyrirvara
Stærðir
frá 2ja til
14 tonna
HAGSTÆTT
VERÐ
Vörubifreiðastjórar - Útgerðarmenn
VELAVERKSTÆÐIÐ
Dugguvogi 21
Simi 86-605 i
Ármúla 21 j
Sími 86-955
VELTAK