Tíminn - 20.04.1975, Síða 14

Tíminn - 20.04.1975, Síða 14
14 TÍMINN Sunnudagur 20. april 1975, Manstu gamla daga? AAanstu gamla daga? Manstu gamla daga? Manstu gamla daga? Manstu gamla A Hótel Siglunes 1939: Polli, Gisli Einarsson, Þorvaldur Steingrlmsson og Jónatan. irnar miklar og gong-gongið á slnum stað. Það var danskur trommuleikari, sem innleiddi þetta, Kragh Steinhauer. Hann var með likamslýti, en með reglulega fallegt andlit, og lýtin sáust ekki bak við svona stórar trommur. Hann setti fyrstur manna upp auglýsingaskrifstofu héma I borginni, og svo spilaði hann í Halta bandinu á Borginni, en það var hljómsveit, sem minn ágæti vinur, Bjarni Bö setti saman, meðan Borgin var að biða eftir Jack Quinnett. Það var meiriparturinn haltur, Naaby, danskur, á pianóið, Rudi, þýzkur, á trompet, harmoniku og fiðlu, Kragh Steinhauer á trommurnar, og svo Guðlaugur gullsmiður. Það var þá, sem var tekið af þeim pásukaffið. Allt i lagi. Bjarni kom þá bara með sinn hitabrúsa og matarpakka og drakk frammi i restórasjóninni, við peningakass- ann, hellti i málið og gæddi sér á rúgbrauði og kæfu. Þeir fengu kaffipásuna aftur. Bjarni var hetja. Við ættum ekki félag i dag, ef hans hefði ekki notið við. * Þetta eru allt sómakarlar — Þú hefur sungið með Karla- kómum Visi á þessum árum? — Við skulum nú ekki gera mikið úr þvi, en mikið eignaðist maður góða vini þarna. Það er unun að lita á þessa gömlu mynd, frá 1934, og rifja upp andlit gömlu vinanna. Þormóður Eyjólfsson stjórnaði kórnum, bróðir Sigurð- ar Birkis, og þessa mynd skaltu virða fyrir þér. Þarna sérðu Aage Schiöth, einsöngvara, Daniel Þórhallsson, einsöngvara, Þor- stein Hannesson, núverandi tón- listarstjóra, Sófus Blöndal, feiki- lega góður bassi, bróðir Gunn- laugs málara, svo er hérna heiðursmaður, hvar er hann nú, Konkúrrantarnir, sem spiluðu þá á Hótel Siglunes. Þeir eru Jakob Lárusson, Kristján Þorkelsson og Þórður Kristinsson, sem nú er ein- söngvari hjá VIsi. Funtlundur 9 GarÖahreppi dregið i april '76 Túngata 12 Alftanesi dregið i desember '75 Sala hafin. Miðar öfáanlegir frá skrífstofu en lausir rniöar fáanlegir i nokkrum umboðum út um land og i Reykjavik. 100 bilavinningar a halfa millión og eina milljön. 150 utanlands feröir á lOOog 250 þús. hver: Auk ótal húsbúnaöar vinninga á 50-25 og lOþús. kr. hver. blessaður kallinn, já, Jósep Blön- dal, ljómandi bassi, Bjarni Kjartansson, sem hafði vinbúð- ina. Hérna er hann Stebbi Bald- vins, hrókur alls fagnaðar. Allt saman andskoti góðar raddir. Kristján Möller, yfirlögreglu- þjónn, góður barytónn, Páll Stefánsson, Alli Jónatans, alveg hörku bassi, og hann Haraldur, hann var úr Svarfaðardalnum, en fenginn að láni i söngferðina, svo er hann Aðalsteinn Jóhannsson, skipstjóri, var lengi með Hrönn, feiknarlegur aflamaður, fórst á Faxaskeri. Nú, Gústi Þórðar, bróðir Jóns og þeirra, finn tenór, Pétur Helga frá Tungu, Magnús Nordal, ég held hann sé leigubil- stjóri ennþá, og Guðmundur Blöndal, húsvörður hjá Morgun- blaðinu. Þetta eru allt sómakarl- ar. Þegar Visir hefur komið hing- að á seinni árum, hef ég æft gamla Vfsisfélaga til að syngja á móti þeim i veizlunni. Við Geir- harður vorum einu sinni sæmdir lárvirðarsveigum. Lagði mest upp úr ánægjunni — Kenndirðu ekki fyrir norð- an? — Jú, seinustu fjögur-fimm ár- in, sem ég var fyrir norðan kenndi ég i Gagnfræðaskólanum þama. Ég kenndi söng og það var reglulega gaman að kenna þess- um krökkum. Ég reyndi alltaf að ná sambandi við þau og láta þau hafa ánægju af söngnáminu. Ég hef kennt krökkum á hljóðfæri siöan, og börn eru heiðarlegustu og samvizkusömustu manneskj- ur, sem völ er á. En það má ekki leggja of mikið á þau. Það er svo hættulegt að setja þeim of mikið fyrir, þau eru svo kappsöm, að það getur haft hroðalegar afleið- ingar. Kennurum hættir blátt áfram til að drepa músikáhuga hjá börnum með þvi að ætlast til of mikils af þeim. Sumir ganga með það i maganum að gera ein- hverja virtúósa úr þeim. Þetta er mesti misskilningur. Ef krakkinn hefur það i sér að vera snillingur, kemur það fram sjálfkrata. Ég lagöi mest upp úr þvi að þau hefðu ánægju af söngnum, og siðar hljóðfæraleiknum. Það voru tveir timar I söng i einu, og ef það var skiðaveður, þá fórum við á skfði. Ég á skiði, guð minn al- máttugur, inn i fjörð, og þar sungum við. Voða gaman.Við héldum konsert á vorin, Ég lét þau syngja Schubert og hvaðeina. Þetta voru elskulegir krakkar, og margir þeirra hafa náð langt á ýmsum sviðum. Bráðmúsikalsk- ir. Þarna voru feiknalegar söng- konur. Það geta allir Siglfirðing- ar sungið. Þetta er alveg sér- stakt. Það var alveg dásamlegur timi þarna fyrir norðan, i allri fá- tæktinni. Þáttaskilin i lifi minu — Þú talar um fátækt. Hrukku ekki sumartekjurnar nokkuð? — Jú, það er kannski ekki rétt að segja, að þetta hafi verið fá- tækt, en þetta var leiðindaat- vinnuástand. Algjör dauði að heita mátti yfir veturinn, og svo þrælaði öll fjölskyldan, meðan sildin var. Vitanlega þurfti fólk að slappa af eftir þrældóminn. En þetta var engu likt. Maður fékk ýmsa sérsamninga fyrir Imynduð gæði, — húsnæði, fritt rafmagn, kol og svoleiðis. Svo fór maður náttúrlega i síldina á sumrin, skrapp á plönin. — Hvenær lýkur Siglufjarðar- dvöl þinni? — Henni lýkur 1941, ég var þarna i 7 ár. Þá fer ég suður, og þá verða þáttaskil í lifi minu. Ég byrja að spila á Birninum i Hafn- arfiröi . . . ★ ★ ★ Og hér verða þáttaskii i frásögn Jónatans ólafssonar. Siðari hiuti viðtalsins við hann verður að biða siðari tima, og vonandi veröur ekki langt þangaö til við kom- umst aftur að til þess að segja frá þvl, sem gerðist cftir að hann kom suður, en þá hafði landið verið hernumið, og Jónatan fór að spila I kantinunum hjá Bretanum t Alþýöuhúsinu á Siglufirði 1937: Jónatan, Óskar Cortes, Stefán Þorleifsson og Poul Bernburg.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.