Tíminn - 20.04.1975, Side 15

Tíminn - 20.04.1975, Side 15
Sunnudagur 20. april 1975. TÍMINN 15 Húnavaka hefst síðasta vetrardag: Á annað hundrað manns koma fram f dagskráratriðum Húnavakan, hin árlega fræðslu- og skemmtivika Ungmennasam- bands Austur-Húnvetninga, hefst i hinu glæsilega félagsheimili á Blönduósi siðasta vetrardag, 23. april. Þar verður að vanda mjög fjöl- breytta dagskrá, og örugglega geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Fluttar verða samfelldar dagskrár með leikþáttum, söng og frumsömdum gamanþáttum, sýnt verður leikrit og karlakór syngur. Þá verða kvikmyndasýn- ingar, og að sjálfsögðu verða dansleikir öll kvöld Húnavökunn- ar, en henni lýkur sunnudags- kvöldið 27. april. Mjög margir hafa lagt mikla vinnu I undirbúning Húnavökunn- ar,sem séstbezt á þvi, að varlega áætlað munu hátt á annað hundr- aö manns koma fram i dagskrár- atriðum Húnavökunnar. Húnavakan hefst með dagskrá Ungmennasambandsins, sem nefnist Húsbændavaka. Verður þar fjölbreytt og vandað efni, og m.a. flytur frú Guðrún Lára As- geirsdóttir á Mælifelli erindi. Jó- hann Már Jóhannsson, bóndi á Hrafnabjörgum i Svinadal, syng- ur einsöng. Undirleik annast Jón Hlöðver Áskelsson, skólastjóri Tónlistarskóla Akureyrar. Gamanvisur og gamanþætti flytja þekktir og óþekktir skemmtikraftar úr héraði. Verður þar m.a. fjallað um mál- efni liðandi stundar, og margir Húnvetningar koma þar við sögu. Ótrúlegt er, að ekki verið eitthvað minnzt á kvennaárið. Þá syngur kvartettinn Gamlir félagar frá Skagaströnd nokkur lög og ung- menni sýna leikfimi undir stjórn Karls Lúðvikssonar, iþróttakenn- ara á Skagaströnd. Iðulega hefur verið uppselt á Húsbændavöku löngu fyrirfram, en að þessu sinni verður dagskrá- in öll endurtekin kl. 14 á laugar- dag. Hjálparsveit skáta starfar á Blönduósi og vinnur mikið og gott starf. Oft hefur sveitin aukið fjöl- breytni Húnavökunnar með þvi aö æfa og sýna reviukabarett. Kennir þar jafnan margra grasa, enda félagar sveitarinnar hugmyndarfkir og duglegir að æfa, og oft semja þeir hluta af sinni dagskrá sjálfir. Að þessu sinni verður flutt þjóð- hátiðarrevia i léttum dúr, er nefnist „Þjóðhátið i Kirkju- hvammi”,en Húnvetningar héldu sameiginlega þjóðhátið i Kirkju- hvammi við Hvammstanga á sið- asta sumri. Þá hafa hjálparsveitarfélagar æft gamanleikinn „Gullbrúð- kaupið”, og einnig sýna þeir at- riði úr „Kardemommubænum”. Þá taka þeir lagið með konum sinum og syngja nokkur rammis- lenzk lög. Reviukabarett skátanna verður á fimmtudagskvöld og sunnudag. Mikið félagslif hefur verið á Skagaströnd i' vetur, og þaðan kemur mikið efni á Húnavöku. Auk atriða á Húsbændavöku, sem áður er getið, sýnir Umf. Fram og Kvenfélagið Eining gamanleikinn „Ertu nú ánægð kerling?”. Þrándur Thoroddsen þýddi, stal og staðfærði, en Erlingur E. Halldórsson var leik- stjóri. Leikritið var frumsýnt á Skagaströnd annan dag páska við mjöggóðar undirtektir, en verður flutt á laugardagskvöld á Húna- vöku. Oftast standa eingöngu félög og félagasamtök úr Húnaþingi með Ungmennasambandinu að upp- byggingu dagskrárefnis á Húna- vökunni. Reiknað var með að svo yrð.i einnig að þessu sinni, en á siðustu stundu varð ljóst, að ekki yrði hægt að sýna leikrit, sem fyrirhugað hafði verið að sýna. Var þá brugðið á það ráð að bjóða Karlakórnum Heimi i Skagafirði að koma á Húnavöku og skemmta eitt kvöld. Stjórn- andi kórsins er Arni Ingimundar- son, en einsöngvarar Sigurður Ingimarsson og Þorvaldur Óskarsson. Auk þess, sem hér hefur verið talið, skemmta nemendur Barna- skólans á Blönduósi um miðjan dag á sumardaginn fyrsta. Hljómsveitin Asar leikur fyrir dansi, og verður dansað öll kvöld Húnavökunnar. Á miðvikudags- kvöld verða aðallega dansaðir gömlu dansarnir, en á fimmtu- dagskvöld verður unglingadans- leikur. Að vanda er búizt við miklum fjölda gesta á Húnavöku, en þetta er i 26. sinn, sem hún er haldin. Aðkomufólki er bent á að Flugfé- lagið Vængir flýgur alla daga Húnavökunnar frá Reykjavik til Blönduóss, og aukaferðir eftir þörfum. Nú er kominn mjög góð- urflugvöllur á Blönduósi, og stöð- ugt fjölgar þeim, sem nota sér þjónustu Vængja. A Blönduósi er starfrækt hótel, sem opið er allt árið, og getur að- komufólk, sem ekki á ættingja eða vini I Húnaþingi dvalið þar. Miðapantanir á dagskráratriði Húnavöku verða i sima 95-4248 og I Félagsheimilinu Blönduósi þriðjudag og alla daga Húnavök- unnar kl. 16.00 til 18.00. Borðapantanir á dansleiki verða i Félagsheimilinu frá kl. 16.00 dag hvern. Verið velkomin á Húnavöku. GÓÐA SKEMMTUN. Ungmennasamband A.-Hún. íslenzk tónlist í þúsund ór kynnt í útvarpsstöðvum í Hollandi og víðar SJ-ReykjavIk. Fyrir nokkru voru fluttar þrjár sjálfstæðar dagskrár I hollenzka útvarpinu, er allar báru titilinn „1000 JAAR IJSLANDSE MUZIEK.” Voru þessir tónlistarkynningarþættir framlag hollenzka rikisút- varpsins til að minnast 1100 ára búsetu fólks á íslandi. Þau sem lögðu fram tónlistarefnið og önnuðust flutning þess og kynningar voru hollenzk-islenzka mezzosópransöngkonan Viktoria Spans, sem flutti alla söngvana á frummálinu, Gunnár Reynir Sveinsson, tónskáld, ásamt Jaap Spigt cemballeikara og Thom Bollen píanóleikara, sem önnuð- ust undirleik. Frú Aðalheiður Hólm,móðir söngkonunnar,sem verið hefur búsett þar i landi i u.þ.b. 30 ár og m.a. kennt Is- lenzku, gerði hollenzkar þýðingar á efnisinnihaldi ljóðanna. Þessir þættir vöktu mikla at- hygli og var talsvert skrifað um þá i hollenzk blöö, þ.á.m. viðtöl við tónskáldið Gunnar Reyni i Utrechts Nieuwsblad og Viktoriu Spans i útvarpsblaðinu AVRO Luisters. Þessar þrjár tónlistar- kynningardagskrár voru siðan endurfluttar 1 hollenzka út- varpinu skömmu fyrir s.l. áramót — og er það allóvenjulegt — að um endurflutning slikra dagskrárliða sé að ræöa, þar sem mikið af tónlistarefni liggur ávallt fyrir og biður flutnings hjá svo ölfugri stofnun, sem hollenzka rikisútvarpið er. Þá hafa þessir Islenzku tónlistar- kynningarþættir einnig verið ný- lega fluttir i breska útvarpiö BBC og i vestur-þýzka útvarpið (V.D.R.F.). Einnig mun flutning- ur á þessu sama efni vera á döfinni hjá hjá fleiri útvarps- stöðvum. Fryst loðna til Japans gébé Rvik — t Reykjavikurhöfn liggur nú japanska flutningaskipið Chiyoda Maru og lestar þar megnið af þejrri frystu loðnu, sem Japanir kaupa af islendingum I ár. Þetta munu vera um ellefu hundruð tonn, sem Sölumiöstöö hraðfrystihúsanna, Sjávarafuröardeild StS og tslenzka umboðssalan selja Japönum. Þetta er allt það magn, sem fryst var af loönu I ár, en auk þess aö lesta I Reykjavlk, mun japanska flutn- ingaskipið einnig lesta loðnu I Keflavlk. Tlmamynd Róbert Tvennir tónleikar á Egilsstöðum TÓNKÓRINN á Fljótsdalshéraði heldur samsöng i Egilsstaða- kirkju miðvikudaginn 23. april, siðasta vetrardag, klukkan 21. Kórinn syngur islenzk og erlend lög, þ.á.m. lög eftir höfunda af Fljótsdalshéraði, nokkra valsa og syrpu af lögum eftir Sigfús Hall- dórsson, sem útsett eru af Magn- úsi Ingimarssyni. Stjórnandi er Magnús Magnússon og undirleik annazt Sigurbjörg Helgadóttir, Magnús Einarsson og Ragnar Pálsson. Formaður Tónkórsins er Ást- ráður Magnússon. Daginn eftir, þ.e. sumardaginn fyrsta, 25. april, verða vortónleik- ar Tónskóla Fljótsdalshéraðs, einnig i Egilsstaðakirkju, og hefj- ast þeir klukkan 14. Þar munu nemendur skólans leika ýmiss konar tónlist. I vetur var kennt á ■þremur stöðum, Egilsstöðum, Hlöðum og Eiðum, og stunduðu 72 nemendur nám i skólanum. Skólastjóri er Magnús Magnús- son, og með honum kenndu þrir stundakennarar. Nýkomið - Nýkomið Höfum fengið nýja sendingu af hinum vinsælu norsku LEÐUR- STÓLUM í mörgum gerðum Vinsam- legast vitjið pantana Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum Verzlið þar sem úrvalið er mest og kjörin bezt 28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild 28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.