Tíminn - 20.04.1975, Qupperneq 15
Sunnudagur 20. april 1975.
TÍMINN
15
Húnavaka hefst síðasta vetrardag:
Á annað hundrað
manns koma fram f
dagskráratriðum
Húnavakan, hin árlega fræðslu-
og skemmtivika Ungmennasam-
bands Austur-Húnvetninga, hefst
i hinu glæsilega félagsheimili á
Blönduósi siðasta vetrardag, 23.
april.
Þar verður að vanda mjög fjöl-
breytta dagskrá, og örugglega
geta allir fundið eitthvað við sitt
hæfi. Fluttar verða samfelldar
dagskrár með leikþáttum, söng
og frumsömdum gamanþáttum,
sýnt verður leikrit og karlakór
syngur. Þá verða kvikmyndasýn-
ingar, og að sjálfsögðu verða
dansleikir öll kvöld Húnavökunn-
ar, en henni lýkur sunnudags-
kvöldið 27. april.
Mjög margir hafa lagt mikla
vinnu I undirbúning Húnavökunn-
ar,sem séstbezt á þvi, að varlega
áætlað munu hátt á annað hundr-
aö manns koma fram i dagskrár-
atriðum Húnavökunnar.
Húnavakan hefst með dagskrá
Ungmennasambandsins, sem
nefnist Húsbændavaka. Verður
þar fjölbreytt og vandað efni, og
m.a. flytur frú Guðrún Lára As-
geirsdóttir á Mælifelli erindi. Jó-
hann Már Jóhannsson, bóndi á
Hrafnabjörgum i Svinadal, syng-
ur einsöng. Undirleik annast Jón
Hlöðver Áskelsson, skólastjóri
Tónlistarskóla Akureyrar.
Gamanvisur og gamanþætti
flytja þekktir og óþekktir
skemmtikraftar úr héraði.
Verður þar m.a. fjallað um mál-
efni liðandi stundar, og margir
Húnvetningar koma þar við sögu.
Ótrúlegt er, að ekki verið eitthvað
minnzt á kvennaárið. Þá syngur
kvartettinn Gamlir félagar frá
Skagaströnd nokkur lög og ung-
menni sýna leikfimi undir stjórn
Karls Lúðvikssonar, iþróttakenn-
ara á Skagaströnd.
Iðulega hefur verið uppselt á
Húsbændavöku löngu fyrirfram,
en að þessu sinni verður dagskrá-
in öll endurtekin kl. 14 á laugar-
dag.
Hjálparsveit skáta starfar á
Blönduósi og vinnur mikið og gott
starf. Oft hefur sveitin aukið fjöl-
breytni Húnavökunnar með þvi
aö æfa og sýna reviukabarett.
Kennir þar jafnan margra
grasa, enda félagar sveitarinnar
hugmyndarfkir og duglegir að
æfa, og oft semja þeir hluta af
sinni dagskrá sjálfir.
Að þessu sinni verður flutt þjóð-
hátiðarrevia i léttum dúr, er
nefnist „Þjóðhátið i Kirkju-
hvammi”,en Húnvetningar héldu
sameiginlega þjóðhátið i Kirkju-
hvammi við Hvammstanga á sið-
asta sumri.
Þá hafa hjálparsveitarfélagar
æft gamanleikinn „Gullbrúð-
kaupið”, og einnig sýna þeir at-
riði úr „Kardemommubænum”.
Þá taka þeir lagið með konum
sinum og syngja nokkur rammis-
lenzk lög.
Reviukabarett skátanna verður
á fimmtudagskvöld og sunnudag.
Mikið félagslif hefur verið á
Skagaströnd i' vetur, og þaðan
kemur mikið efni á Húnavöku.
Auk atriða á Húsbændavöku,
sem áður er getið, sýnir Umf.
Fram og Kvenfélagið Eining
gamanleikinn „Ertu nú ánægð
kerling?”. Þrándur Thoroddsen
þýddi, stal og staðfærði, en
Erlingur E. Halldórsson var leik-
stjóri.
Leikritið var frumsýnt á
Skagaströnd annan dag páska við
mjöggóðar undirtektir, en verður
flutt á laugardagskvöld á Húna-
vöku.
Oftast standa eingöngu félög og
félagasamtök úr Húnaþingi með
Ungmennasambandinu að upp-
byggingu dagskrárefnis á Húna-
vökunni. Reiknað var með að svo
yrð.i einnig að þessu sinni, en á
siðustu stundu varð ljóst, að ekki
yrði hægt að sýna leikrit, sem
fyrirhugað hafði verið að sýna.
Var þá brugðið á það ráð að
bjóða Karlakórnum Heimi i
Skagafirði að koma á Húnavöku
og skemmta eitt kvöld. Stjórn-
andi kórsins er Arni Ingimundar-
son, en einsöngvarar Sigurður
Ingimarsson og Þorvaldur
Óskarsson.
Auk þess, sem hér hefur verið
talið, skemmta nemendur Barna-
skólans á Blönduósi um miðjan
dag á sumardaginn fyrsta.
Hljómsveitin Asar leikur fyrir
dansi, og verður dansað öll kvöld
Húnavökunnar. Á miðvikudags-
kvöld verða aðallega dansaðir
gömlu dansarnir, en á fimmtu-
dagskvöld verður unglingadans-
leikur.
Að vanda er búizt við miklum
fjölda gesta á Húnavöku, en þetta
er i 26. sinn, sem hún er haldin.
Aðkomufólki er bent á að Flugfé-
lagið Vængir flýgur alla daga
Húnavökunnar frá Reykjavik til
Blönduóss, og aukaferðir eftir
þörfum. Nú er kominn mjög góð-
urflugvöllur á Blönduósi, og stöð-
ugt fjölgar þeim, sem nota sér
þjónustu Vængja.
A Blönduósi er starfrækt hótel,
sem opið er allt árið, og getur að-
komufólk, sem ekki á ættingja
eða vini I Húnaþingi dvalið þar.
Miðapantanir á dagskráratriði
Húnavöku verða i sima 95-4248 og
I Félagsheimilinu Blönduósi
þriðjudag og alla daga Húnavök-
unnar kl. 16.00 til 18.00.
Borðapantanir á dansleiki
verða i Félagsheimilinu frá kl.
16.00 dag hvern.
Verið velkomin á Húnavöku.
GÓÐA SKEMMTUN.
Ungmennasamband A.-Hún.
íslenzk tónlist í þúsund ór
kynnt í útvarpsstöðvum í Hollandi og víðar
SJ-ReykjavIk.
Fyrir nokkru voru
fluttar þrjár sjálfstæðar dagskrár
I hollenzka útvarpinu, er allar
báru titilinn „1000 JAAR
IJSLANDSE MUZIEK.” Voru
þessir tónlistarkynningarþættir
framlag hollenzka rikisút-
varpsins til að minnast 1100 ára
búsetu fólks á íslandi. Þau sem
lögðu fram tónlistarefnið og
önnuðust flutning þess og
kynningar voru hollenzk-islenzka
mezzosópransöngkonan Viktoria
Spans, sem flutti alla söngvana á
frummálinu, Gunnár Reynir
Sveinsson, tónskáld, ásamt Jaap
Spigt cemballeikara og Thom
Bollen píanóleikara, sem önnuð-
ust undirleik. Frú Aðalheiður
Hólm,móðir söngkonunnar,sem
verið hefur búsett þar i landi i
u.þ.b. 30 ár og m.a. kennt Is-
lenzku, gerði hollenzkar þýðingar
á efnisinnihaldi ljóðanna.
Þessir þættir vöktu mikla at-
hygli og var talsvert skrifað um
þá i hollenzk blöö, þ.á.m. viðtöl
við tónskáldið Gunnar Reyni i
Utrechts Nieuwsblad og Viktoriu
Spans i útvarpsblaðinu AVRO
Luisters. Þessar þrjár tónlistar-
kynningardagskrár voru siðan
endurfluttar 1 hollenzka út-
varpinu skömmu fyrir s.l. áramót
— og er það allóvenjulegt — að
um endurflutning slikra
dagskrárliða sé að ræöa, þar sem
mikið af tónlistarefni liggur
ávallt fyrir og biður flutnings hjá
svo ölfugri stofnun, sem
hollenzka rikisútvarpið er. Þá
hafa þessir Islenzku tónlistar-
kynningarþættir einnig verið ný-
lega fluttir i breska útvarpiö BBC
og i vestur-þýzka útvarpið
(V.D.R.F.). Einnig mun flutning-
ur á þessu sama efni vera á
döfinni hjá hjá fleiri útvarps-
stöðvum.
Fryst loðna til Japans
gébé Rvik — t Reykjavikurhöfn liggur nú japanska flutningaskipið Chiyoda Maru og lestar þar megnið
af þejrri frystu loðnu, sem Japanir kaupa af islendingum I ár. Þetta munu vera um ellefu hundruð tonn,
sem Sölumiöstöö hraðfrystihúsanna, Sjávarafuröardeild StS og tslenzka umboðssalan selja Japönum.
Þetta er allt það magn, sem fryst var af loönu I ár, en auk þess aö lesta I Reykjavlk, mun japanska flutn-
ingaskipið einnig lesta loðnu I Keflavlk. Tlmamynd Róbert
Tvennir tónleikar á Egilsstöðum
TÓNKÓRINN á Fljótsdalshéraði
heldur samsöng i Egilsstaða-
kirkju miðvikudaginn 23. april,
siðasta vetrardag, klukkan 21.
Kórinn syngur islenzk og erlend
lög, þ.á.m. lög eftir höfunda af
Fljótsdalshéraði, nokkra valsa og
syrpu af lögum eftir Sigfús Hall-
dórsson, sem útsett eru af Magn-
úsi Ingimarssyni. Stjórnandi er
Magnús Magnússon og undirleik
annazt Sigurbjörg Helgadóttir,
Magnús Einarsson og Ragnar
Pálsson.
Formaður Tónkórsins er Ást-
ráður Magnússon.
Daginn eftir, þ.e. sumardaginn
fyrsta, 25. april, verða vortónleik-
ar Tónskóla Fljótsdalshéraðs,
einnig i Egilsstaðakirkju, og hefj-
ast þeir klukkan 14. Þar munu
nemendur skólans leika ýmiss
konar tónlist. I vetur var kennt á
■þremur stöðum, Egilsstöðum,
Hlöðum og Eiðum, og stunduðu 72
nemendur nám i skólanum.
Skólastjóri er Magnús Magnús-
son, og með honum kenndu þrir
stundakennarar.
Nýkomið - Nýkomið
Höfum
fengið nýja
sendingu af
hinum
vinsælu
norsku
LEÐUR-
STÓLUM
í mörgum
gerðum
Vinsam-
legast vitjið
pantana
Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum
Verzlið
þar sem
úrvalið er
mest og
kjörin bezt
28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild