Tíminn - 20.04.1975, Side 20

Tíminn - 20.04.1975, Side 20
20 TÍMINN Sunnudagur 20. aprfl 1975. Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Landið mótar manninn og það hefur varanleg áhrif á fegurðarskyn hans ófullgert málverk, sem Siguröur vinnur að f tómstundum sfnum. Kveikjan að þvf er frásögn Landnámu af ferð fngólfs Arnarsonar niður yfir heiði. var ekki að ræða. Ég gekk samt ekki beint að hefilbekknum um leið og ég hafði lokið trésmiða- námi, heldur fór á sjóinn og var stýrimaður á sildarbát tvær ver- tfðir. Að þeim tima loknum fór ég að vinna á Teiknistofu Sambands Islenzkra samvinnufélaga og var þar næstu þrjú árin. Þar lærði ég margt, ekki aðeins við teikniborð- iö, heldur engu siður við að fylgj- ast með þeim byggingum sem þá voru á döfinni hjá Sambandinu. Brauðstritið kæfði ekki lönguniua til listsköpun- ar Um það leyti,sem ég hafði verið I þrjú ár hjá Sambandinu, var hafizt handa um byggingu Hótel Sögu. Segja má, að ég yrði sam- ferða fyrstu spýtunni, sem látin var i grunn þess húss, og að ég slepþti ekki hendi af verkinu fyrr en húsið var fullbúið og hótelið tekiö til starfa. Ég var verkstjóri og yfirsmiður allan timann sem bygging hússins stóð yfir, og það var mikill náms- og reynslutimi. En á sama tima og þetta mikla hús var að risa, notaði ég hverja stund til þess að mála, og um það leyti sem þessu starfi var að ljúka, hélt ég málverkasýningu i Bogasal Þjóðminjasafnsins. Þegar vinnunni við Hótel Sögu var lokið, tók ég að mér að bjóða i verk, meðal annars fyrir Hita- veitu Reykjavikur, ásamt öðrum manni. Við byggðum dælustöðina við Fornhaga fyrir hitaveituna, stækkuðum Varastöðina við Listmálun og steinasöfnun hafa lengi fangað huga Sigurðar Kr. Arnasonar. Hér eru penslli, krukka og steinn á einu og sama borðinu og kemur prýðilega saman.að þvf er bezt verður séö. ÞAÐ ORÐ hefur mjög legið á hér á landi á undan förnum árum og áratugum jafnvel, að iðnaðar- menn séu mjög önnum kafnir, og aö ekki þurfi skemur að biða eftir þjónustu þeirra en annarra sérfræðinga. Það kann þvi að sýnast aulalegt að ganga á fund trésmíðameistara og spyrja hann, hvað hann geri i tómstund- um slnum. Og þó. Til eru þeir menn, sem hafa eitthvert undra- vert lag á þvi að skapa sér tóm- stundir og blátt áfram láta ekki hina daglegu önn komastupp með að gleypa allan tima þeirra svo að ekkert sé eftir. Einn slikur maður er Sigurður Kr. Arnason, húsa- smiðameistari. Hann var svo vin- samlegur að leyfa blaðamanni frá Timanum að spjalla við sig ekki alls fyrir löngu, og fer árang- ur þeirrar viðræðu hér á eftir. Og þá er bezt að byrja á þvi að spyrja eins og til stendur: — Hvað hefur þú einkum gcrt i tómstundum þinum, Sigurður? — Ég hef frá upphafi haft mik- inn áhuga á landinu og fegurð þess, sem kemur fram i mörgum myndum, sem svo hafa orðið mér fyrirmyndir og yrkisefni i litum. A ferðum minum um landið hef ég ekki komizt hjá þvi að taka eft- ir sérkennilegum bergmyndunum og steinum, og þannig varð til fyrsti visirinn að steinasafni minu, sem að visu er ekki oröið neitt sérlega stórt I sniðum enn- þá. Þessa mynd málaði Sigurður af heimsmeistaraeinvfginu I skák, sem haldið var I Reykjavlk sumarið 1972, eins og flestum mun enn f fersku minni. Þótt löngum sé til þess vitnað, að steinninn sé mállaus, þá segja þessir ævafornu steinar okkur þó langa sögu um land okkar. Þeir sýna okkur, hvernig Vestfirðir og Austfirðir tengjast saman I timanum, en að landið á milli þeirra er tiltölulega ungt. ,,...og þegar pensillinn biður á borðinu og mál- verkið á trönunum....” — Hér að framan var drepið á „yrkisefni i litum”. Ert þú mynd- listarmaöur jafnframt þvf að vera náttúruskoðari? — Frá þvi ég fyrst man eftir hefur hvers konar myndlist verið mér mjög rik i huga. Þegar ég var barn, var ég alltaf að teikna og aö velta fyrir mér alls konar myndum og myndefni. Móðir min var frá Gamla- Hrauni við Stokkseyri, en faðir minn frá Steinum undir Austur- inn lengra að austan, einn af niðj- um séra Jóns Steingrimssonar, Siðuklerks, sem lika hefur verið kallaöur eldprestur. Foreldrar minir kynntust I Vestmannaeyj- um, bjuggu þar lengi og þar fædd- ist ég og ólst upp fram undir fermingaraldur. — Allir vita, hvi- Eyjafjöllum, en í ættir fram kom- likri fegurð Vestmannaeyjar búa yfir, og ég er ekki frá þvi að náttúran þar hafi átt sinn þátt I þvi að móta smekk minn á mynd- list. Enginn veit, hversu mikið fegurðin I Borgarfirði eystra hef- ur átt i mótun Jóhannesar Kjar- vals, — án þess ég sé að líkja mér við þann mikla snilling. Frá Hornafirði hafa lfka margir ágæt- ir myndlistarmenn komið, og nægir þar að nefna Höskuld Björnsson frá Dilksnesi. Þetta held ég að styrki þá skoðun mina, að sérkennilegt og fagurt lands- lag geti haft varanleg áhrif á smekk manna, sem alast upp við þaö, ef þeir á annað borð veita þvi athygli sem i kringum þá er. Það var vist árið 1945, sem ég fór að læra húsasmiði, og þá tók églika upp á þvi að fá mér efni til málverkagerðar. Ég keypti mér liti, pensla og dúk. Um þetta leyti tóku nokkrir menn hér i Reykja- vik sig saman og stofnuðu skóla fyrir fristundamálara. Ég komst inn i þennan hóp og læröi mikið á þvi að taka þátt i þessu. Einkum varö mér notadrjúg kennsla skozks manns, sem kenndi þar. Mörg næstu ár stundaði ég nám i myndlist jafnframt vinnu minni, og meðal annars var ég um tima i Handlðaskólanum. — En gefast ekki fáar stundir til þess að sinna slfkum hlutum I önn dagsins, — núoröið? — Jú, vist má segja að þær séu fáar, en þegar viljinn er fyrir hendi, eru þær notaðar út I æsar, og þegar pensillinn biður á borð- inu og málverkiö á trönunum, liggur við að gripið sé i verkefnið um leið og gengið er hjá. — Þú hefur auðvitað alltaf unn- ið fulia vinnu á borgariegan mælikvaröa, þrátt fyrir þinar listrænu tiihneigingar? — Já, mikil ósköp, um annað - Rætt við Sigurð Kr. Árnason, en áhugamál hans eru óvenju fjölþætt Hvað gera þau í tómstundunum? Greinaflokkur Hvað gera þau í tómstundunum? Greina

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.