Tíminn - 20.04.1975, Síða 35

Tíminn - 20.04.1975, Síða 35
Sunnudagur 20. april 1975. TÍMINN 35 Agnar Guðnason: MARGTER KYNLEGT í KÝRHAUSNUM Vfðast hvar i heiminum hefur verð á matvælum ákvarðast á framboði og eftirspurn hverju sinni. Veruleg breyting hefur átt sér stað á seinni árum i trúlega flestum löndum. Ef framboðið er takmarkað, þá hefur verið sett á verðstöðvun eða há- marksverð, ef framboðið er meira en eftirspurnin, þá er framleiðendum tryggt lág- marksverð fyrir afurðirnar, þótt svo að markaðsverðið færi niður fyrir framleiðslu — og dreifingarkostnað. Það er talið varða hagsmuni þjóðarheildar- innar, að framleiðendum sé tryggð örugg lifsafkoma og að aukið framboð bitni ekki á þeim og rýri þar með fjárhagsafkomu þeirra. Eflaust eru skiptar skoðanir i flestum löndum, um hve viðtæk afskipti hins opin- bera eiga að vera. Um þetta er deilt hér á iandi og ekkert við þvi að segja, enda væri óeðli- legt, ef allir væru sammála. Verulegt vandamál hefur skapazt i mörgum löndum sið- ustu tvö árin vegna mikillar framleiðslu á nautakjöti. Birgðasöfnun veldur ráðamönn- um Efnahagsbandalagsins þungum áhyggjum og sama hefur átt sér stað i Kanada og Bandarikjunum. Einnig hér á landi höfum við átt i erfiðleikum með sölu á nautakjöti. Af þess- um ástæðum datt mér i hug að skýra frá litilli nautakjötssögu, en það eru samskipti Kanada og Bandarikjanna i verzlun með nautakjöt og nautgripi á fæti. Of mikið nautakjöt Árið 1973 var sett hámarks- verð á nautakjöt framleitt i Bandarikjunum. Framleiðend- ur þar i landi voru sáróánægðir og reyndu að takmarka slátrun i þeirri von, að verðið yrði gefið frjálst. Minni slátrun í Banda- rikjunum varð til þess, að inn- flutningur frá Kanada var stór- aukinn. Samtimis urðu veruleg- ar verðhækkanir á matvöru i Kanada og þar með á nauta- kjöti. Rfkisstjórnin I Kanada ákvað þá að gripa til sinna ráða og draga úr útflutningi á nauta- kjöti, þvi varð að sækja um út- flutningsleyfi frá og með 14. april 1973. Þann 12. september 1973 var ákvæðið um bámarks- verð i Bandarikjunum afnumið, samtimis var útflutningur gef- inn frjáls i Kanada. Tollur hafði verið á innfluttu kjöti til Banda- rikjanna, þvi ákvað rikisstjórn Kanada að setja á toll á inn- flutning á nautgripum og nauta- kjöti frá Bandarikjunum. t febrúar sama ár hafði þessi toll- ur verið afnuminn i Kanada. Tollurinn var jafnvirði isl. kr. 12 á kg af nautakjöti, en um 6 kr. á kg nautgripa á fæti. Þar sem mjög mikið framboð var á nautakjöti i Bandarikjunum og markaður þar yfirfullur, var mikil aukning á innfluttu nauta- kjöti frá Bandaríkjunum til Kanada. Þá ákvað rikisstjórn Kanada að setja á auka toll á innflutta nautgripi, upphæð 24 kr á hvert kg lifandi vigt. Þann 4. janúar 1974 tilkynnti fjármálaráðherra Kanada, að tollurinn yrði afnuminn. Það skeði 10. febrúar. Mánuði siðar eða 15. marz 1974 samþykkti rikisstjórn Kanada að styrkja nautakjötsframleiðendur þar i landi. Ástæðan fyrir styrknum var stóraukinn innflutningur frá Bandarikjunum á sláturgrip- um, sem leiddi af sér verðlækk- un i Kanada. Þann 9. april 1974 setti ríkisstjórnin bann á inn- flutning á kjöti eða sláturgrip- um, sem gefið hafði verið hor- mónar til að örva vöxt þeirra. Með þessu banni var stöðvaður innflutningur frá Bandarikjun- um. Þann 12. ágúst 1974 var ákveðið að tryggja framleið- endum I Kanada lágmarksverð fyrir nautgripi. Veröiö var ákveöið 180 kr á kg lifandi vigt eða um 360 kr. á kg sláturvigl. Ef markaðsverðið var lægra, var greitt úr rikissjóði það sem á vantaði. Jafnhliða voru settar á ennþá strangari reglur um innflutning til Kanada. Rikis- stjórn Bandarikjanna greip þá til gagnráðstöfunar og settar voru reglur, sem takmörkuðu innflutning frá Kanada. Til- gangur var augljós, það átti að þvinga Kanadamenn til að af- nema magn-takmörkun á inn- flutningi. Þann 15. des. 1974 voru settar ákveðnar reglur fyrir útflutn- ingi á sláturgripum og kjöti frá Kanada til Bandarikjanna. Þær áttu að tryggja, að aðeins þaö kjöt eða sláturdýr yrðu seld þangaö, sem hæsta verð fengist fyrir. Þannig átti að nýta sem bezt þann kvóta, sem Kanada var úthlutaö til innflutnings á kjöti. Þar sem verð á afsláttar- kúm hafði lækkað verulega i Kanada, ákvað rikisstjórnin að t^yggja bændum lágmarksverð, sem svaraði til i isl. kr. 60 á hvert kg lifandi vigt eða um 120 kr. á kg sláturvigt fyrir ákveö- inn hluta af kúastofni hvers framleiðanda. Hámarksfjöldi afsláttarkúa, sem þetta verð var greitt fyrir, mátti ekki fara yfir 5% af kúnum á timabilinu frá 16. nóvember sl. fram til 30 april n.k. þannig að ekki kæmi til stórfelld fækkun á kúnum vegna yfirstandandi erfiðleika. Samtimis var af opinberum aðilum hafinn áróður fyrir auk- inni neyzlu á unnum kjötvörum úr nautakjöti og áætiun gerð um, að framlag Kanada til gjaf- ar á matvælum til þróunarland- anna væri að hluta niðursoðiö nautakjöt. Lágmarksverð á I. flokks nautakjöti, sem er 180 kr. á kg lifandi vigt, mun veröa í gildi þetta ár, en gæti tekið breytingum með hliðsjón af breyttum framleiðslukostnaði og bættri markaðsaðstööu. i ýmsum fylkjum Kanada eru greiddir styrkir út á kálfa, sem settir eru á. Þessir styrkir eru mismunandi háir. Vonandi er þeim, sem hafa lesið þetta yfirlit um nauta- kjötsstrið Bandarlkjanna og Kanada, Ijóst eftir lesturinn að þrátt fyrir mikla hagræðingu i landbúnaði geta komið upp vandamál, sem erfitt virðist vera að leysa. t framhaldi af þessari frásögn þykir mér rétt aö fræöa lesendur blaðsins litið eitt um útflutningsuppbætur á landbúnaðarafurðir I Dan- mörku. útf lutningsuppbætur i Danmörku. A s.l. ári fengu Panir greitt úr sameiginlegum landbúnaðar- sjóði Efnahagsbandalagsins (FEOGA) 1,4 milljarð Dkr, en þaö jafngildir um 42 milljörðum Isl. kr. Þar af var greitt vegna útflutnings til landa utan Efna- hagsbandalagsins 662 millj. Dkr. Langstærsta upphæðin var greidd með útflutningi á smjöri Ókr. 564 millj. Utflutningsupp- bætur á ost voru Pkr 182 millj. en um 152 millj. Pkr vegna ann- arra mjólkurafurða. Þetta var það helzta um útflutningsupp- bætur hjá Pönum. Það er rétt að geta þess, ef það gæti glatt cin- hvern, að nú hefur veriö ákveðið aö styrkja grasmjölsframleiðsl- una i Efnahagsbandalags- löndunum. Beinn styrkur hefur verið ákveðinn sem svarar isl. kr. 180 á hver 100 kg. verziun með lifandi pening hefur tiðkazt lengi yfir landar.æri Kanada og Bandarfkjanna. Spariö þúsundir! NMHIIEIIA HJðLBABDAR VERÐTILBOÐ! STÆRÐ: 825-20/12 Kr. 22.470 825-20/14 26.850 900-20/14 28.300 1000-20/14 34.210 1000-20/16 35.630 1100-20/14 35.900 1400-24/16 52.440 TÉKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð Á ÍSLANDI H/F AUÐBREKKU 44-46 SÍM/ 42606 Garðahrcppur: Hjólbarðoverkstæöið Nybarði Akuroyri: Skoda verkstæðið a Akureyri h.f. Oseyri 8 Egilsstaðir: Varahlutavcrzlun Gunnars Gunnarssonar AUGLÝSIÐ í TÍMANUM

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.