Tíminn - 01.06.1975, Page 4

Tíminn - 01.06.1975, Page 4
4 TÍMINN Sunnudagur 1. júní 1975 1 rk I Síðhærðir, öfga- sinnaðir byitinga- menn eins og brjálaðir kettir Síöhærðir, öfgasinnaðir bylt- ingarmenn mega þola sitt af hverju Ur öllum áttum, enda eru þeir flestir hverjir ósparir á að prédika fagnaðarerindi sitt og fylgja þvi eftir með alls kyns göngum og mótmælaaðgerðum, þótt færri viti hver boðskapur- inn er i raun og veru. Eftirfar- andi grein er samin og send Ut að tilhlutan sovézku fréttastof- unnar Novosti: Hver hrópar húrra fyrir Maóistum? Eftir Jevgeni Bockun, APN Sá Maóisti er ekki til i heimin- um, sem ekki er þess albUinn að skara fram Ur félaga sinum. Hinn svonefndi „Kommúnista- flokkur Þýzkalands” er ill- ræmdur meðal annarra vinstri hópa i Vestur-Þýzkalandi fyrir ofsafenginn Sovétfjandskap. Nýlega efndi hann til áróðurs- aðgerða i Vestur-Berlin. Það er alkunna, að þessi borg er ekki hluti af Vestur-Þýzkalandi, en vestur-þýzkir Maóistar og öfga- menn lengst til hægri gripa hvert tækifæri sem gefst til þess að þröngva nærveru sambands- rikisins upp á Vestur-Berlin. 19. mai gerði Kommúnista- flokkur Þýzkalands árás á myndasýningu APN, sem hald- in var i tilefni af þrjátiu ára af- mpeli sigursins yfir Hitlers- stéfnunni. Nokkur hundruð ung- lingar brutust inn i bygginguna, þar sem sýningin var haldin, og frömdu þar spjöll. I hálfa klukkustund „ærsluðust” hinir siðhærðu, öfgasinnuðu bylt- ingarmenn i byggingunni eins og brjálaðir kettir i vorhlý- indum. Þeir brutu glugga, rifu sumar myndirnar og máluðu andsovézk slagorð á veggi. Eftir árásina héldu Maoistar andsov- ézkan mótmælafund i miðborg- inni, sem um 200 manns tók þátt i. Lögreglan i Vestur-Berlin, sem er mjög leikin i að fást við slik tilfelli, fylgdist með áróð- ursaðgeröunum i rólegheitum. HUn skarst ekki i leikinn, þótt erfitt sé að trúa þvi, að lögreglu- stjóranum hafi ekki verið kunn- ugt um fyrirætlanir Maóista. í hvert skipti, sem almenningur i borginni efnir til mótmælaað- gerða gegn Bandarikjunum, er fjölmennt lögreglulið jafnan viðbúið með vatnsslöngur til þess að gripa til aðgerða. Hver er ástæðan fyrir árás Maóista á sovézku ljósmynda- sýninguna? Var hinn háværi hópur siðhærðra vinstrisinna e.t.v. staddur þarna af tilviljun, eftir að hafa leitað lengi a stað til þess að vinna skemmd- arverk á órefsað? Fregnum fangelsun nokkurra félaga hins maóiska KommUn- istaflokks Þýzkalands i Austur- Þýzkalandi, sem komið höfðu til Austur-Berlinar til að efna til mótmælaaðgerða, meðan fram fór minningarathöfn við minnis- merki sovézkra hermanna i Treptowergarðinum, var höfð sem afsökun fyrir árásinni á sovézku myndasýninguna i Vestur-Berlin. En þetta var ekki eina ástæð- an. Maóistaklikan, sem kallar sig „Kommúnistaflokk Þýzka- lands”, herti andsovézka starf- semi sina rétt fyrir 30 ára af- mæli sigursins yfir fasisman- um. Blað flokksins hvatti opin- berlega til „baráttu gegn Sov- e'trikjunum" 30. april. Auk þess lýstu Maóistar þvi yfir, að Sov- étrikin væru „aðal striðsæs- inga”-aðilinn. Það væri of einfalt að skýra þetta allt með þvi að segja, að byltingarsinnuðu öfgamennirn- ir væru i andlegu ójafnvægi. Maóistar reka þá stefnu að ó- frægja hina heilögu minningu Evrópuþjóðanna um fórnar- lömb heimsstyrjaldarinnar sið- ari. Þeir notfæra sér pólitiska þröngsýni æskufólks, þeir eggja vestur-þýzkan æskulýð til þess að saurga það sem heilagt er, og slæva skilning hans með öfga- sinnuðum byltingaráróðri. Pek- ingstjórnin gerir allt sem hún getur til þess að skapa ringul- reið og óreiðu i Evrópu, en það er kunnugleg fyrirbæri i Peking sjálfri. Það er öllum ljóst, hverjir hrópa húrra fyrir ungu, vinstri- sinnuðu öfgamönnunum og and- leiðtogum þeirra. Þau húrra- hróp koma alltaf frá hægri. Stefna Pekingstjórnarinnar I málum Evrópu, sem miðar að þvi að eyðileggja friðarþróun- ina og vinna sovézku friðar- stefnunni tjón, fær stöðugt lof i herbúðum herra Strauss. Þetta er dæmigert tilfelli gagn- kvæmrar aðdáunar. Maó formaður og fylgifiskar hans I Peking syngja lof þeim pólitísku öflum I Þýzkalandi, sem dásama út- þenslustefnu þriðja ríkisins. Stuðningsmenn Strauss, hefnd- arsinnarnir, nýnasistarnir og aörir öfgasinnaðir hægrimenn i Vestur-Þýzkalandi, biðla til maóista, þótt þeir geri það ekki sem takmark isjálfu sér, heldur sem ráð til að framkvæma Sovétfjandsamlegar fyrirætlan- ir sínar. Þeir eiga margt sam- eiginlegt i þessu tilliti. Eini munurinn er sá, að þeir grafa undan byggingu friðar og ör- yggis í Evrópu sin frá hvorri hlið. Stundum mætast leiðir þeirra engu að siður. Frambjóð- andi hins maóiska Kommún- istaflokks Þýzkalands i rikis- þingkosningunum f Bæjaralandi i október 1974, var fyrrverandi félagi I nýnasistaflokknum. Sjaldgæft tilfelli en táknrænt engu að sfður. Svaka kroppur Þessi hrikalega kvenmynd blasti við óperuunnendum i Miinchen, þegar „Rakarinn frá Sevilla” var frumsýndur þar fyrir nokkru, og er þetta hluti af leikmyndinni. Sá sem stendur á lærinu er Claus-Kaakan Annsjo, sem syngur hlutverk Almaviva greifa.og Rosina, sem sungin er af Reri Grist, kikir út um brjóst- iö. TT* ■ ' - DENNi DÆAAALAUSI J — Hvað getur maður gert, þegar ekkert er hægt að gera? Lifa lif- inu.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.