Tíminn - 01.06.1975, Blaðsíða 31
Sunnudagur 1. júni 1975
TÍMINN
31
HLJÓMPLÖTUDQMAR
. NÚ-TÍMANS
★ ★ ★ ★ ★ ★ ★
ÞA ERU hinir „dularfullu” öé
Lónli Blú Bojs búnir aö senda
frá sér sina fyrstu LP-plötu
sem þeir nefna einfaldlega
„Stuð, stuð, stuð”. Það sem er
merkilegast við þessa plötu er
aö hún er fyrsta islenzka
country-rokk platan, eða öllu
heldur fyrsta tilraunin i þá átt.
Það er ekki annað hægt að
segja en að þeim hafi tekizt
bærilega, því að það er einmitt
i country-lögunum, sem þeim
tekst bezt upp.
Á plötunni er að finna fræg
countrylög, eins og „Okie
from Muskogee” eftir Merk
Haggard, sem hefur hiotið hið
raunsæa islenzka nafn „Þaö
bianda allir landa upp til
stranda” og lag þeirra
Everly-bræöra „So Sad”, sem
hér gengur undir nafninu
„Hvað ég vil”.
Allur hljóðfæraleikur á
plötunni er elnfaldur og frekar
hugmyndasnauður, og þykir
mér sérstaklega á vanta falleg
gitarinnskot sem oft gefa jafn
einföldum lögum mikið gildi.
i heild rennur tónlistin
átakalaust i gegnum annað
eyrað og út um hitt, en þó
þannig, að ekki er hægt að
segja að manni leiðist á
meðan. Meðlimir hljóm-
sveitarinnar eiga þakkir
skildar fyrir þessa tilraun, og
þaö er von min að þeir haldi
áfram á þessari braut, þvi að
þcir eiga framtið fyrir sér.
Hvernig væri á næstu plötu
að bæta inn i lögin smá banjó-
og mandólin-leik — það gefur
svona tónlist aukið lif.
G.G.
★ ★ +
PHILLY-SOUND er angi út úr
soultónlistinni og ber heiti sitt
af borg I Bandarikjunum,
Philadelphiu. Þessi soulangi
hefur á siðustu mánuðum
unnið sér verulegar vinsældir
ineðal Evrópubúa, en áður var
hann nær eingöngu bundinn
við Bandarikin og þá aðallega
blökkumenn þar i iandi, — en
„phillysoundið” er þeirra
framleiðsla.
islendingar þekkja nokkuð
ALLTAF eru aö skjóta upp
kollinum nýjar hljómsveitir,
en fæstum þeirra tekst aö visu
að öðlast frægð og frama. Þó
eru alltaf einhverjar, sem
skara framúr og vekja
verðskuldaða athygli. Svo er
um Kansas — þá hljómsveit
sem hér er á ferðinni meö sina
fyrstu plötu. Kansas er banda-
risk að uppruna og skipa
hljómsveitina sex menn, sem
ekki hafa áður komið við sögu
poppsins, svo mér sé kunnugt.
Eins og titt er um hijóm-
sveitir reyna þær eðlilega að
skapa sér sinn eigin stil, — en
tekst að vonum misjafnlega.
Allir byrjendur eru undir
áhrifum einhverra á sinum
fyrstu plötum, — og heyrir til
tiðinda ef svo er ekki, —
Kansas er engin undan-
tekning, en þeir fara talsvert
aðra leið en flestir aðrir. Þeir
eru að visu undir áhrifum
margra hljómsveita (deep
Purple, Genesis, E.L.P.,
Seatrain) en þegar þessi
blanda er hrist saman kemur
út dálitið sérstæður tónlistar-
still, — sem þó er i og meö
vegna óvenjulegrar
hljóðfæraskipunar. Lögin eru
eftir meðlimi hljómsveitar-
innar, og þegar á heildina er
litið, er ekki annað hægt aö
segja, en að þessi frumraun
hafi tekizt vel og það veröi
fróöiegt að fylgjast meö
hljómsv. Kansas i framtiöinni.
SÞS.
til „phillysoundsins” m.a. af
piötunni „Phillysound”, en
þar var safnað saman nokkr-
um af helztu lögum þessa
soulaga. Þá má nefna lagið
„Lady Marmalade” með
Labbelle” sem myndi flokkast
undir Phillysound.
Tónlistin á plötunni Tramps
(einnig nafn hljómsv.) er
sproti af „phillysoundinu”,
svokallað „Disco-sound”, og
er vinsælt i diskótekum og
öðrum dansstöðum vestra,
eins og nafnið ber með sér.
Þetta er einföld, en taktföst
tónlist, með áberandi miklum
röddum og er eitt einkenni hin
mikla og djúpa bassarödd,
sem ætiö kemur skemmtilega
á óvart I lögunum. Þrátt fyrir
ýmsa kosti verður þvi ekki
neitað, að piatan skilur sára-
litiö eftir og það vantar eitt-
hvað á aö hægt sé að hrifast af
tonlistinni.
Ef Tramps eru „number one
disco-group” i USA, eins og
haldið er fram á piötuumslagi,
hlýtur að vera eitthvaö meira
en litiö „brogaö” við þessa
disco-stefnu. G.S.
I VEIÐI
NB 27 NB 32
Vörubila
hjólbaröar
VERÐTILBOD
825-20/12 Kr. 22.470,-
825-20/14 — 26.850,-
1.000-20/14 — 34.210,-
1.000-20/16 Kr. 35.630,-
1.100-20/14 — 35.900,-
1.400-24/16 — 59.440,-
TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐ/Ð Á ÍSLANDIH/E
AUÐBREKKU 44-46 SÍMI 42606
Heimir Steinsson rektor
Lýðháskólans i Skálholti segir: Mól — sem d erindi
,,....ég dreg ekki i efa tilvist til þjóðarinnar
svonefndra Hvað eru parapsychologisk fyrirbæri?
parapsychologiskra Hver er hinn visindalegi skilningur á eðli
fyrirbæra ” drauma, vitrana, framlifssannana? Lesið timaritið Lifsgeisla og bókina Lif er
Kirkjuritið á öðrum stjörnum. Fást i bókaverzlunum.
IV. hefti 40. árgangur Félag Nýalssinna
345 blaðsiður. Pósthólf 1159 — Reykjavik.
Barðaskammtur
Annar skammtur:
Barði Barðason er hvorki þunnur
né þykkur á hörund, nema siður
sé og hvorutveggja sé, þá upp er
taliö. En, — I þann tið er hörund
Barða var sem þynnst, gerðist
hann aöstoðarömaður bakara.
Barði stóð þó stutt við i þvi starfi,
þvi rekinn var hann.
Hann var svo snúðugur!!
Barði var þó ekki á þeim
buxunum að gefast upp, og hélt
sem leið liggur til næsta bakara,
— og þar vegnaði honum mjög vel
um langa hrið. En það kom að þvi
að Barði sjálfur varð leiður á
starfinu, og eftir einn baksturinn
rak bakarinn Barða Barðason.
Jú, Barði bakaði honum nefni-
lega vandræöi!
Og það kaupir enginn vandræöi
nema I algjörri hungursneyö.
Barði ákvað nú að breyta
algjörlega um starf, — já, fara
bara á sjóinn og gerast sannur Is-
lenzkur sjómaöur. Hvergi fékk
hann þó pláss nema hjá grá-
slcppukarli I Skerjafirðinum, —
og tók Barði starfinu fegins hendi.
En — strax I fyrsta róðrinum
gerðist óhappið og Barði var
rekinn fyrir vikið.
Hann dró ýsur!!
+¥*+
En það eru fleiri grá-
sleppukarlar eii þessi i Skerja-
firöinum.Og Barði hitti annan út-
vegsbónda og fór með honum á
veiöar. Tveir róðrar, og svo var
Barði rekinn.
Grásleppubóndinn uppástóð að
þaö væri Barða sök að það kom
babb I bátinn!
****
Þrátt fyrir hrakfarir á sjo" gafst
Barði ekki upp á sjónum, og
annan grásleppukarl hitti Barða,
sem geröi út frá vik einni á Vest-
fjörðum. Karlinn var haröur og
vinnuþjarkur hinn mesti, svo
Barði greip til þess ráðs í einum
róðrinum, að leggja árar í bát!!
Og auövitað var hann rekinn.
Lýkur hér grásleppusögu
Barða Barðasonar.
w
SFV
Vínnufélag
rafiðnaöarmanna
Barmahlið 4
RAF
AFL
Hverskonar raflagnavinna.
Nýlagnir og viögerðir
Dyrasímauppsetningar
Teikniþjónusta.
Skiptið við samvinnufélag.
Simatimi milli kl. l- 3.
daglega i sima 2-80-22