Tíminn - 01.06.1975, Side 13

Tíminn - 01.06.1975, Side 13
Sunnudagur 1. júni 1975 TÍMINN 13 VIllKM VERKTAKADEILD Slmar 1-58-30 8. 8-54-66 PósthOsstræti 13 ÁBYRGÐ Á EFNI OG VINNU Samvinnuskólinn BIFRÖST Umsóknarfrestur um skólavist við Samvinnuskólann Bifröst skólaárið 1975—1976 er til 10. júni n.k. Skal senda umsóknir um skólavist á skrifstofu skólans, Suðurlandsbraut 32, Reykjavik, fyrir þann tima ásamt ljósriti af prófskirteini. Þurfa um- sækjendur að hafa landspróf, gagn- fræðapróf eða hliðstæða menntun. Umsóknir frá fyrri árum falla úr gildi nema þær séu endurnýjaðar. Umsóknir um skólavist i framhalds- deild Samvinnuskólans i Reykjavik skulu sendar á skrifstofu skólans fyrir 20. ágúst n.k. Skólastjóri. W." r'í.'.t •V.r'. i ;*f: : % Frá Lindargötuskóla Innritun 15. bekk framhaldsdeildar fyrir gagnfræ&inga og landsprófsmenn búsetta i Reykjavlk fer fram i Lindargötuskóla dagana 3.-5. júnl n.k. kl. 14—18. Inntökuskilyrði eru þau að umsækjandi hafi hlotið 5,0 eða hærra í meðaleinkun á gagnfræðaprófi I Islenzku I og II, dönsku, ensku og stærðfræöi eöa 5,0 eða hærra á landsprófi miðskóla. Umsækjendur hafi með sfer afrit (ljósrit) af prófskír- teini svo og nafnskirteini. Fræðslustjórinn i Reykjavik. p Bíf k ■ft V k íV' >.v "k Hvað kostar barniö yöar? Barnabilstóll er ábyggilega minna viröi. ábyrgðarleysi" Á hverju ári slasast fjöldi bama, sem eru farþegar i bif- reiðum. Fólk les um slika at- burði I blöðum, hristir höfuðið og segir ef til vill: „Ja.mikið er þetta hörmulegt, skelfing er að heyra um öll þessi slys”, eða eitthvað þess háttar. Sfðan er atvikinu gleymt. Frétt i einu dagblaðanna segir eitthvað á þessa leið: Harður árekstur varð á mótum Hafnar- götu og Strandgötu. Bifreiðarn- ar skemmdust mikið, tvennt slasaöist, barn og fullorðinn. Bæöi voru farþegar i framsæti. Bamið sat i fangi móður sinnar. Fólk hrekkur við og segir: „Þvilikt ábyrgðarleysi að sitja með smábarn i fanginu I fram- sæti. Hvað hugsa svona manneskjur? Eða hugsa þær ekki neitt.” Og ætli það siðara sé ekki mergurinn málsins. Mjög margir gera sér ekki grein fyrir þvi, hversu hættulegt það er að sitja með börn I framsæti, eða leyfa börnum að sitja einum i framsæti. Skýrslur Umferðar- ráðs sýna, að 84 börn slösuðust á s.l. ári, er þau voru farþegar i bifreiðum — mörg hver I fram- sæti. „Þvílíkt Framsætið hættulegast Framsætið er hættulegasti staðurinn i bifreiðinni. Barn, sem situr I fangi einhvers I framsætinu getur þvi orðið fyrir mjög alvarlegum áverkum af mælaborði og framrúðu bifreið- arinnar, jafnvel þótt árekstur- innsé ekki mjög harður. Sá sem situr meö barn i fanginu, notar það sem vörn fyrir sjálfan sig. Bamiö tekur við mesta högginu, ef bifreiöin lendir i árekstri. Sem betur fer er orðið sjaldgæft að sjá eldri börn sitja I fram- sæti. Margir foreldrar setja börnum sinum þá reglu, að sitja I aftursætinu, og er það vel. En þetta á þvi miður aðeins við um stóru börnin. Litlu börnin, sem ekki geta setið ein, sitja alltof oft I fangi fullorðinna i framsæt- inu. Fólk situr sjaldan undir börnum sinum i aftursætinu, sem er að sjálfsögðu rétti stað- urinn. Ef til vill finnst fólki „skemmtilegra” að sitja i framsæti. Hvað er hægt að gera til þess að opna augu fólks? Þarf að verða slys til þess að fólk læri að skilja hversu hættulegur staður framsætið er? Bilbelti — bflstólar Algjört öryggi i bifreiö er ekki til. En bilbelti veita mönnum þó mesta mögulega vernd og geta I mörgum tilfellum forðað fólki algjörlega frá meiðslum, ef til áreksturs kemur. Þetta geta allir, sem kynnt hafa sér þessi mál, verið sammála um. En að tryggja öryggi barnsins I bif- reiðinni er mun flóknara. Börn geta ekki notað bilbelti fyrr en við 7-8 ára aldur og þau verða að vera orðin a.m.k. 30-35 kg aö þyngd. Astæðan fyrir þvi aö börn geta ekki notað belti eins og fullorðnir nota (belti, sem eru yfir aðra öxlina og mittið) er sú, að likamsbygging barns er öðru visi en fullorðins manns. Höfuð barnsins er hlut- fallslega miklu stærra. Þegar beltin halda likamanum föstum slengist höfuðið til, og vegna þyngdar þess geta háls- og hnakkavöðvar barnsins orðiö fyrir áfalli. Beltin geta lika skaddað innyfli barnsins, þar sem þau eru verr varin en hjá fullorðnum. t tilraunum, sem gerðar voru i Sviþjóð (með brúðu) kom i ljós, að við framaná árekstur varð brúðan fyrir hættulegum lifrar- skemmdum, þegar beltin þrýst- ust að likama hennar. Það hafa verið gerðar tilraun- ir með margs konar belti fyrir böm, en menn hafa ekki enn fundiö neitt belti, sem þjónar sama tilgangi og þau belti, sem fullorðnir nota. Menn hafa þó oröið sammála um að beltin verði að vera mjög breið, þannig að átakið dreifist sem jafnast á allan likamann. En börn geta ekki notað slik belti fyrr en þau hafa náð 3-5 ára aldri. Börn undir 9 mánaða aldri ættu alltaf að vera i burðarrúmi I aftursæti bifreiðarinnar, vel skoröuðu milli sætanna eða fest með þar til gerðum beltum. Eftir þann aldur geta börn setið i barnabilstólum. En gera verður þá kröfu til góðra barna- stóla.að þeir séu a.m.k. eins vel festir og bilbelti fullorðinna. Einnig er ástæða til þess að vara fólk við þeim stólum, sem eru með málmgrindum, sem leggjast I boga fyrir framan bamið. Dæmi eru til, að slikar grindur hafi bognað við mikið átak og þrýst að maga barnsins og stórskaðað það. TP 7 ET1 VERÐTILBOÐ af fveim dekkjum af fjórum dekkjum 600-16/6 ET 1 m/slöngu Kr. 7.180,- 6.820,- 650-16/6 ET 1 m/slöngu — 7.650,- 650-16/6 NT 6 m/slöngu — 7.750,- 650-16/6 TP 7 m/slöngu — 7.290,- 750-16/6 TP 7 m/slöngu — 8.695,- 750-16/8 ET 1 m/slöngu — 11.580,- TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDIH/F AUÐBREKKU 44 - 46 SÍMI 42606

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.