Tíminn - 01.06.1975, Side 24

Tíminn - 01.06.1975, Side 24
24 TÍMINN Sunnudagur 1. júni 1975 Höfundur: David Morrell Blóðugur hildarleikur 34 aftan við húsið. Gluggarnir voru mölbrotnir, þakið sigið, f remri svafirnar hrundar, málningin var skellótt og víða flögnuð og gluggahlerarnir lausir og illa farnir. Hann keypti það næsta dag. Aldrei hafði hann verið eins önnum kafinn og næstu daga og vikur. Hann skipu- lagði lögregluliðið frá klukkan átta til fimm, talaði við mennina, sem þegar voru í starfi og rak þá, sem vildu ekki sækja skotæfingar á kvöldin eða kvöldskóla ríkis- lögreglunnar. Þess í stað réð hann menn, sem mögluðu ekki vegna aukavinnu. Hann henti öllum þeim tækja- kosti, sem ónýtur var eða úr sér genginn og keypti nýtt. Fyrirrennari hans hafði dáið á tröppunum af völdum hjartaslags. Teasle skipulagði alla starfssemina ger- samlega upp á nýtt. Frá klukkan fimm vann hann við húsið, gerði við þakið, setti nýtt gler í gluggana og þétt- aði þá, gerði við svalirnar, og málaði allt í ryðrauðum lit, sem blandaðist grænum lit trjánna. Hann vann þar til hann steinsofnaði, dauðuppgef inn. Fúinn og skemmdan viðinn, sem hann tók úr þakinu og af svölunum, notaði hann til að kveikja bál í garðinum á kvöldin. Svo sat hann við eldinn og át steikt kjöt og kartöflur, léttkryddaða rétti eða hamborgara. Aldrei hafði matur bragðast hon- um svo vei. Aldrei hafði hann sof ið betur eða verið jafn vel á sig kominn, líkamlega. Hann var stoltur af sigginu á höndum sér. Stirðleiki handa og fóta varð að orku og hreyfingarnar mjúkar og áreynslulausar. Þannig var þetta í þrjá mánuði. Að þeim tíma liðnum haf ði hann lokið viðgerð á húsinu. Hann dútlaði við smá- viðgerðir til að byrja með, en þar kom að hann sat að- gerðalaus á kvöldin og verkefnalaus. Þá skrapp hann út og fékk sér bjór eða dvaldi lengur á skotæfingasvæðinu. Annars f ór hann heim, horf ði á sjónvarpið og drakk bjór. Svo kvæntist hann og allt þetta tók enda. Nú hljóp hann milli trjánna og út á grassléttuna. Hann andaði með djúpum sogum og svitinn rann af honum. Teasle leið svo vel, að hann furðaði sig á því, hvers vegna hann hafði nokkru sinni hætt að hugsa um sjálfan sig. Á undan honum hlupu hundarnir gjammandi. Orval hljóp á eftir þeim og það teygðist á löngum fótum hans, þegar hann reyndi að halda hraða þeirra. Lögreglu- mennirnir reyndu að hafa við Teasle. en hann reyndi að hafa við Orval. Hann hljóp gegnum grasið. Heit sólin skein á hann. Hendur hans og fætur hreyf ðust í snöggum og stöðugum hreyfingum. Honum fannst um stund eins og hann gæti haldið áfram að eilífu. Skyndilega tók Or- val kipp og hentist áfram. Teasle gat ekki haldið uppi sama hraða og hann öllu lengur. Hann fann til þunga í fótunum. Notaleg tilf inningin, sem hann hafði f undið til hvarf nú alveg. — Hægðu á þér, Orval. En Orval hægði ekkert á sér og elti hundana. SJÖTTI KAFLI Þegar Rambo kom að trjánum og klettunum varð hann 'að draga úr hraðanum. Hann lagaði skóna vandlega á sér, svo hann rynni ekki á klettunum. Hann gat átt á hættu að fótbrotna. Rambo hraðaði sér meðfram kletta- rótum og leitaði að auðveldustu leiðinni upp. Loksins fann hann sprungu inn í klettinn, sem náði þrjú fet inn í bergið og reis lóðrétt upp á brúnina. Hann klifraði upp. Hann handstyrkti sig upp á útistandandi steinum. Þegar hann nálgaðist brúnina jókst bilið milli þeirra og hann varð að krafsa sig áf ram með höndum og fótum. En svo varð aftur auðveldara að klif ra. Loksins komst hann upp úr sprungunni og stóð þá á jafnsléttu. Hundgjammið bergmálaði greinilega uppi á klettin- um. Hann hnipraði sig saman og athugaði hvort þyrlan væri einhvers staðar í námunda við hann. Svo var ekki. Hann heyrði ekki einu sinni til hennar. Ekki bólaði á neinum, sem fylgdist með honum af einhverri hæðinni eða að neðan. Hann smeygði sér inn milli runna og trjáa við klettabrúnina og laumaðist til hægri — í átt að kletta- snös. Þaðan mátti sjá yf ir skarðið. Þar lá hann og horfði hvernig gras og skógur skiptust á. Einni mílu neðar í skarðinu sá hann menn á hlaupum milli trjánna. Þeir voru á leið inn á gróðurlaust svæði í átt að öðrum trjám. Vegna f jarlægðarinnar virtust mennirnir litlir og sáust ógreinilega. Hann hélt sig telja tíu. Ekki var hann viss um fjölda hundanna, en þeir virtust mjög margir. Rambo hafði samt ekki mestar áhyggjur af f jöld þeirra. Hitt olli honum áhyggjum, að þeir höfðu greinilega f und- ið slóð hans og voru f Ijótir að elta hann uppi. Þeir yrðu komnir að þeim stað, sem hann var á nú, eftir f immtán mínútur. Teasle hefði ekki átt að vera svona fljótur að elta hann uppi. Með réttu átti hann að vera margra stunda ferð að baki hans. Þarna var einhver á ferðinni, sem gjörþekkti landið. Kannski var það Teasle — eða þá einhver manna hans. Þessi sami maður hlaut að hafa tekið mið af heildarstefnu hans og notað sér þekkingu sína á svæðinu til að stytta sér leið að honum. Hann hl jóp aftur að veggskotinu, sem hann hafði klif r- að upp. Hann ætlaði að tryggja, að Teasle gæti ekki klifr- að upp jaf n auðveldlega og hann hafði sjálf ur gert. Hann Sunnudagur 1. júni 8.00 Morgunandakt. Herra Sigurbjörn Einarsson bisk- up flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt inorgunlög. Dalibor Brazda og hljómsveit hans leika. 9.00 Fréttir. tltdráttur úr forustugreinum dagblað- anna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 Veðurfregnir). a. Concerto grosso i D-dúr eftir Handel. Kammerhljómsveitin i Zur- ich leikur, Edmond de Stoutz stjórnar. b. Viólukon- sert eftir Vivaldi. Karl Strumpf og Kammersveitin iPragleika. c. Konsert nr. 1 i d-moll eftir Bach. Edwin Fischer leikur á pianó með kammersveit.sinni. d. Selló- konsert i D-dúr op. 101 eftir Haydn. Jacqueline du Pré og Sinfóniuhljóm sveit Lundúna leika, Sir John Barbirolli stjórnar. 11.00 Sjóinannamessa i Dóm- kirkjunni. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einars- son, messar og minnist drukknaðra sjómanna. Dómkórinn syngur. Ein- söngvari: Hreinn Lindal. Organleikari: Ragnar Björnsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.20 Fimmtán þúsund kar- töflur. Gisli J. Ástþórsson rithöfundur flytur þátt úr bók sinni „Hlýjum hjarta- rótum”. 13.40 Harmonikulög. Arthur Spink leikur. 14.00 tltisamkoma sjómanna- dagsins i Nauthólsvlk. a. Ávörp flytja Gunnar Thor- oddsen ráðherra, Ingólfur Arnarson framkvæmda- stjóri, fulltrúi útvegsmanna og Brynjólfur Halldórsson skipstjóri, fulltrúi sjó- manna. b. Pétur Sigurðsson formaður sjómannadags- ráös afhendir heiðursmerki. c. Lúðrasveit Reykjavikur leikur. Páll P. Pálsson stjórnar. 15.00 Miðdegistónleikar. a. „Ládautt haf og leiði gott”, forleikur eftir Mendelssohn. Filharmoniusveit Berlinar leikur, Fritz Lehmann stjórnar. b. „Sjávarmynd- ir” eftir Britten. Sinfóniu- hljómsveit Lundúna leikur, höfundur stjórnar. c. „Hafnarborgir við Miðjarð- arhaf” eftir Ibert, Sinfóniu- hljómsveitin i Boston leikur, Charles Munch stjórnar d. „Hafið” eftir Debussy. Con- certgebouw-hljómsveitin i Amsterdam leikur, Eduard van Beinum stjórnar. 16.15 Veðurfregnir. Fréttir. 16.25 AUtaf á sunnudögum. Svavar Gests sér um þátt- inn. 17.15 Barnatimi: Sitthvað úr jurtaríkinu. Stjórnendur: Ragnhildur Helgadóttir og Kristin Unnsteinsdóttir. a. „Sóls k in str éð ”. Viðar Eggertsson les smásögu eft- ir Onnu Wahlenberg i þýð- ingu Áslaugar Árnadóttur. b. Blómarabb. Ólafur Björn Guömundsson flytur stutt erindi. c. „Fjallið, sem flutti I bæinn”. Þórunn Pálsdóttir les smásögu eftir Elsu Beskov. Þýðandi: Atli Magnússon. 18.00 Stundarkorn með Rögn- valdi Sigurjónssyni pianó- leikara. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Til uinræðu: Landbún- aöur og byggðamál. Baldur Kristjánsson stjórnar nýj- um útvarpsþætti. Þátttak- endur: Gunnar Guðbjarts- son formaður Stéttarsam- bands bænda, Jónas Jóns- son ritstjóri Freys og Ragn- heiður Þorgrimsdóttir B.A. 20.00 Sinfóníuhljómsveit ís- lands leikur Isienska tónlist. Stjórnandi: Páll P. Pálsson. a. Hátiðarmars eftir Pál

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.