Tíminn - 01.06.1975, Síða 26

Tíminn - 01.06.1975, Síða 26
26 TÍMINN Sunnudagur 1, júni 1975 RÍKISSPÍTALARNiR lausar stöður , LANDSPÍTALINN: AÐSTOÐARLÆKNIR óskast til starfa á Endurhæfingardeild nú þegar eða eftir samkomulagi. Starfið verður tengt aðstoðar- læknisþjónustu Lyflækningadeild- ar að nokkru leyti. Nánari upp- lýsingar veitir yfirlæknir Lyflækn- ingadeildar. SÉRFRÆÐINGAR Og AÐ- STOÐARLÆKNAR óskast til af- leysinga á Handlækningadeild spitalans. Upplýsingar veitir yfir- læknir Handlækningadeildarinnar. SÁLFRÆÐINGUR óskast til starfa á Geðdeild Barnaspitala Hrings- ins. FÉLAGSRÁÐGJAFI óskast einnig til starfa á Geðdeild Barnaspitala Hringsins. Er óskað eftir að báðir hefji störf 1. ágúst n.k. eða sam- kvæmt samkomulagi. Nánari upp- lýsingar veitir yfirlæknir Geð- deildarinnar. RANNSÓKNARSTOFA HASKÓLANS: AÐSTOÐARLÆKNAR. Tveir að- stoðarlæknar óskast til starfa frá 1. júli n.k. að telja. Umsóknarfrestur er til 25. júni n.k. Nánari upplýsingar veitir yfir- læknir rannsóknarstofnunnar. Umsóknum, er greini aldur, náms- feril og fyrri störf, ber að senda Skrifstofu rikisspitalanna. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik 30. mai 1975 SKRIFSTOFA RÍKISSFiTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765 Rafmangsveitur rikisins óska að ráða eftirlitsmann raf- lagna á Austurlandi Laun samkvæmt kjarasamningum starfs- mannafélags rikisstofnana og rikisins. Umsóknir með upplýsingum um menntun aldur og fyrri störf sendist rafveitu- stjóranum á Austurlandi, Selási 8 Egils- staðakauptúni eða til Rafmagnsveitna rikisins Laugavegi 116 Reykjavik, fyrir 10. júni n.k. Arður til hluthafa Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands 22. maí 1975 var samþykkt að greiða 12% — tólf af hundraði — í arð til hluthafa fyrir órið 1974. H.E EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS Framkvæmdir hafnar við dvalarheimili sjómanna í Hafnarfirðí VISTMÖNNUAA FÆKKAÐ Á HRAFNISTU AÐ ÓSK HEILBRIGÐISYFIRVALDA FB-Reykjavlk.Siðdegis i gær var formlega hafin bygging nýs dvalarheimilis aldraðra sjómanna, sem risa mun i Hafnarfirði. Fyrr um daginn höfðu verið undirritaðir samningar milli verktakanna og sjómannadagsráðs, en það er Hamar h.f, sem var með lægsta tilboðið i verkið, 132 milljónir, og var fyrirtækinu falið að annast það. Hæsta tilboð var 243 milljónir. 1. hlutinn á að verða fullgerður á sjómannadag 1977. 1 þessum fyrsta áfanga dvalar- heimilisins i Hafnarfirði er hús, sem rúma á 80 vistmenn i einbýlis- og tvibýlisibúðum. Auk þess er ætlunin, að á fyrstu hæð þessa húss verði dagvistunar- heimili fyrir aldraða, föndur- aðstaða og ýmislegt annað, en i kjallara verður aðstaða fyrir veiðarfæraviðgerðir og aðra vinnu, með svipuðum hætti og nú er á Hrafnistu. Reiknað er með að um 60 manns geti verið á dagheimilinu. Verður fólkinu séð fyrir fæði og margs konar aðhlynningu, á meðan það er á heimilinu, en þangað kemur það á morgnana og fer siðan heim á kvöldin aftur. t auglýsingu sem birtist i blööum i gær, var sagt, að þýðingarlaust væri að senda Sjómannadagur- inn á Akranesi Hátiðahöld i sambandi við Sjó- mannadaginn hefjast á laugar- daginn á Akranesi, og verður þeim slðan fram haldið á sunnu- dag. Hátiðahöldin byrja á laugar- daginn kl. 14, með sundmóti i Bjarnarlaug. Kl. 16 munu þyrla Landhelgisgæzlunnar og Björgunarsveit Slysavarna- félagsins sýna björgun úr sjávar- háska. A sunnudaginn hefjast hátiöa- höldin kl. 9:45 með þvi að safnazt veröur saman á Akratorgi. Þar verður lagður blómsveigur að minnismerki sjómanna, og siðan gengið til kirkju og hlýtt sjó- mannamessu. Þar verða tveir sjómenn heiðraðir. Kl. 13:30 hefj- ast útihátlðahöld á iþróttavellin- um með fjölbreyttri dagskrá. Keppa sjómenn þar i mörgum greinum, og einnig munu Halli og Laddi skemmta þar. Kr. 15 verð- ur svo kaffisala slysavarna- kvenna I Slysavarnahúsinu, og kl. 19:30 hefst sjómannahóf i Hótel Akranesi. Allar fylgia: Tíman :onur it með nýjar umsóknir um vistún á allar deildir Hrafnistu, bæði vegna þess að langur biðlisti liggur þegar fyrir, og vegna óska frá yfirlækni og heilbrigðisyfirvöld- um um mikla fækkun vistmanna og aukið rými fyrir heilbrigðisþjónustu á Hrafnistu. Fulltrúar sjómannadsgsráðs voru að þvi spurðir á blaða- mannafundi, hvernig þessum málum væri háttað. Sögðu þeir, að vistmenn á Hrafnistu hefðu til skamms tima verið 444, en áður- nefndir aðilar hefðu farið fram á að fækkað yrði um 40 vistmenn. Þegar hefur vistmönnum verið fækkaðnokkuð, og i stað þess hef- ur húsrými verið nýtt fyrir rannsóknarstofur, læknastofur, aðstöðu fyrir meinatækna, lyfja- búr og fleira þvi um likt sem talið var nauðsyn á að koma upp á heimilinu. Nokkuð hefur verið rætt um að rýma einnig til fyrir heilsurækt og lfkamsþjálfun innan veggja stofnunarinnar, en Pétur Sigurðs- son, formaður Sjómannadags- ráðs, kvaðst telja, að viturlegra væri að kaupa slika þjónustu utan veggja heimilisins, þar sem hún væri þegar fyrir hendi, heldur en fækka enn vistmönnum til þess að hún mætti rýmast innan veggja þess. Hefur nokkuð verið rætt um að senda viktmenn Hrafnistu til þjálfunar i Heilsuræktinni, og hafa heilbrigðisyfirvöld sýnt þvi máli áhuga, svo fremi sem þar verði fyrir hendi læknir og sjúkraþjálfarar. Kemur þá til greina að Tryggingastofnunin, daggjaldanefnd og Sjúkrasamlag Reykjavikur taki þátt i þeim kostnaði, sem af þessu hlytist. Þá skýrði Pétur Sigurðsson frá þvi, að Matthias Bjarnason heilbrigðismálaráðherra hefði heitið þvi að leita eftir sérfræði- legri aðstoð hjá Heilbrigðismála- stofnun Sameinuðu þjóðanna, WHO, i þeim tilgangi að fá ráð- leggingar um, hvernig bezt væri að skipuleggja þessi mál hér. Frá gagnfræða- skólum Reykjavíkur Innritun nemenda, sem ætla að stunda nám i 3. og 4. bekk gagnfræðaskólanna i Reykjavik næsta vetur, fer fram mánudaginn 2. júni og þriðjudaginn 3. júni n.k. kl. 14.00-18.00 báða dagana. Umsækjendur hafi með sér prófskirteini. Það er mjög árlöandi, að nemendur gangi frá umsókn- um sinum á réttum tima, þvi ekki verður hægt að tryggja þeim skólavist næsta vetur, sem slðar sækja um. Um skiptingu skólahverfa er visað til orðsendingar er nemendur fengu i skólanum. Fræðslustjórinn i Reykjavik. FELAGSSTARF cXúuábocujDan Yfirlitssýning á handavinnu þátttakenda I félagsstarfi eldri borgara, verður opin almenningi að Norðurbrún 1, dagana 7., 8., 9. og 10. júni n.k. kl. 13:00-17:00 daglega. v----------------------------------J fFélagsmálastofnun Reykjavíkurborgar Vonarstræti 4 sími 25500 —

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.