Tíminn - 01.06.1975, Síða 28

Tíminn - 01.06.1975, Síða 28
28 TÍMINN Sunnudagur 1. júni 1975 RÁÐGÁTAN FRANK SINA TRA1 ■ 'Y'íV. mr : ■■r-'ii ^L?* ífí' / - í|| m i. . ■ ■ gmii < i-á MíiÉki * 's’ílfí BÉÉÍ'iv:í':’ivíflííí'i’j"',*',,.';,:; •: ■ íf'v^'v-íjaví^Kvv' i ■ íi t.,'.'. 'l • 'V , VÍ'^pí.Ví^, 1®a Ttf ‘''ih' ‘v ','\ '• !•'*$• ''ft’ýf'ýytwifílj : ff . ■ . ; v;:/' " mi‘ '* M itítíárj, .. ■ Hneykslunarhellcf f na ★ Fjandi blaðamdnna ★ Frank Sinatra er allt þetta og meira til ★ En fyrst og fremst er hann maður, sem ómögulegt er að botna í Wffiii' r‘4 £,/•<$• ■"krfyTkkMmr a tel lati^wiifífeípf ■ m&Sw' r': '-j %Jl'„, T'mJ..Ji& & •' $3S _ ' ■- íii-* ííSilÞp! í*. í, wdjsft tj&f • íísKö Wí>smm . 1 - . íi i! ■ - IkímisSWB r ÞAÐ var heitt júnikvöld árið 1971. Chandler Pavillion i Los Angeles var troðfullur, og fjöldi Hollywoodleikara var i salnum. Heiðursgesturinn var Spiro Agnew varaforseti. Skrautbúnir gestirnir voru komnir til að hylla Frank Sinatra. Hann ætlaði að setja punktinn aftan við 30 ára listamannsferil sinn með kveðju- tónleikum og honum tókst betur upp en nokkru sinni þetta kvöld. Sýndi hvað i honum býr. Rétt eftir miðnætti hljóðnaði síðasti tónninn i „My Way”. Aheyrendur risu úr sætum. Lófatakið og húrrahrópin ætluðu allt að æra. Sumir þurrk- uðu tár úr augunum i laumi. Frank Sinatra stóð á sviðinu og fagnaðarlætin dundu á honum. Með handarhreyfingu gat hann loks komið kyrrð á i salnum. — Ég vil gjaman syngja að lokum „Englaaugun” sagði hann. — Ferill minn hófst á slikum söng og mér finnst við hæfi að hverfa aftur til upphafsins í kvöld. „Englaaugun” er lag sem hæfir dimmunni, nóttinni. Með sfgar- ettu i hendi söng Sinatra: „Excuse me while I disappear...” Hann næstum hvislaði orðunum. Svo hvarf hann bak við leiktjöld- in. Punkturinn hafði verið settur á sinn stað, og þar með lokið leik- og söngferli Frank Sinatra. Fyrr um daginn hafði ég rætt við Frank Sinatra. Ég vildi gjarn- an vita ástæðuna fyrir þvi að hann var að þakka fyrir sig og kveðja. En ég var litlu nær eftir svar hans. Honum fannst hann vera búirtn að gera sitt. Hann var búinn að fá nóg. Hann vildi setjast um kyrrt i Palm Springs og taka ljósmyndir i sandhólunum. Hann langaði til að lesa. Hugsa. Kann- ski skrifa. — Fjandinn hafi það, hreytti hann út úr sér, — ég er orðinn leiður á að klina framan i mig meiki! Á sextugsaldri ætti maður að vera farinn að taka það ósvikna fram yfir það falska. Var það þetta sem hann var að reyna að segja? Nokkrum mánuðum siðar hitti ég „eftirlaunamanninn” á veit- ingahúsi i Palm Springs. Hann var i hópi vina, og ekki lék vafi á að þeir skemmtu sér vel. Falleg kona, sessunautur Sinatra, hló smitandi hlátri. Sögur hans og skritlur féllu henni bersýnilega vel I geð. Hann hafði fitnað i and- liti. Hann var glaðlegur. Hér sat maður, sem iðraðist einkis — og óttaðist ekki framtiðina. Eitthvað á þessa leið hugsaði ég. Ég veifaði tilhans úr sæti mfnu. Ég gladdist fyrir hönd Sinatra, peningaáhyggjur hafði hann a.m.k. ekki, þvi að ég vissi að hann hafði fengið margar millj- ónir dollara i aðra hönd, þegar hann seldi hlutabréf sin i hljóm- plötufyrirtæki. EN Adam var ekki lengi i Para- dis. Hálfu öðru ári seinna varð allt vitlaust út af Sinatra. Og það var honum sjálfum að kenna. Hann hafði enn einu sinni snúið „röng- unni” á sér út og hún er hreint ekkert geðfelld. Nú lét hann skap- ofsa sinn bitna á blaðakonunni Maxine Chesire i Washington. Hann kallaði hana „tveggja dala hóru” og þau ummæli voru birt i blöðum um allan heim. Sinatra glataði samúð margra vegna þessa, en hann virtist ekki skeyta neitt um það. Og Sinatra hlaut enn frekari ámæli i blöðum á næstunni. Verzlunarmaður héltþvi fram, að vinir Sinatra hefðu lúbarið hann i næturklúbb i Saltsjávarborg, og krafðist 2,5 milljóna dollara i skaðabætur fyrir harkalega með- ferð. Og ekki alls fyrir löngu gerði Sinatra eitt axarskaftið i Astra- liu. Hann kallaði blaðamenn i landinu öllum illum nöfnum, og það varð honum dýrkeypt. Hann varð að taka orð sin aftur og biði- ast afsökunar. Ella hefði hann orðið að halda kyrru fyrir i Astra- liu um óákveðinn tima. Hann gerði þetta tæpast með glöðu geði, en hann mátti til. Ég verð að leggja áherzlu á, að égget ekki skilið þennan mann — og ég held að hann skilji sig alls ekki sjálfur. Ég hef haft töluverð afskipti af Sinatra i gegnum árin vegna starfs mins — og ég hef alltaf fengið greið og kurteisleg svör við spurningum minum. Mitt eina vandamál hefur verið að losna við blaðafulltrúana, ör- yggisverðina og snuðrarana, sem hann hefur I kringum sig. Ég hef oft hitt geðslegra fólk en þá. En loks þegar ég hafði Frank fyrir framan mig var hann venjulega hreinn og beinn. Ég minnist þess, að einu sinni eggjaði hann mig til að spyrja sig um hvaða samband væri milli hans og alræmdra manna i glæpaheimunum. Ég var við þvl búinn, að mér yrði hent út úr Ibúðhans i Eyðimerkurkránni i Las Vegas. En svo varð ekki. — Vist þekki ég þessa menn, sagði hann, — a.m.k. ýmsa þeirra, sem þú nefndir. Þú getur ekki starfað i næturklúbbum i 25 ár án þess að drekka glas með einhverjum þeirra við og við. En ég hef engin viðskipti við þá, ef það er það sem þú átt við. Það er vel þekkt, að Sinatra sýnir blaðamönnum, sem honum fellur ekki, furðurlegustu fram- komu. Fjarstæðukennt og fárán- legt uppátæki var þegar hann sendi blaðakonunni Dorothy Kil- gallen legstein. Ég yrði siðastur manna til að afsaka slika fram- komu. En mér hefur hann ekki sýnt ruddaskap. Einu sinni komst ég af hreinni BILAVARA- > HLUTIR NOTAÐIR VARAHLUTIR I FLESTAR GEPÐIR ELDRI BÍLÁ Ódýrt: vélar gírkassar öxlar hentugir i aftanikerrur bretti hurðir húdd rúður o.fl. drif hósingar fjaðrir BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9—7 alla virka daga og 9—5 laugardaga.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.