Tíminn - 01.06.1975, Síða 34

Tíminn - 01.06.1975, Síða 34
34 TÍMINN Sunnudagur 1. júni 1975 Gylfi Kristinsson Geigvænlega horf- ir nú um atvinnu fyrir skólafólk yfir sumartimann og er mikil vá fyrir dyr- um, ef ekki tekst von bráðar að leysa úr þeim mikla vanda. Samkvæmt upp- lýsingum, sem þátt- urinn aflaði sér fyrr i vikunni, eru nú um 200 nemendur á menntaskóla- og háskólastigi, sem alls enga von hafa um atvinnu i sumar og hefur ástandið ekki verið eins al- varlegt um langt árabil. Það þarf ekki að hafa um það mörg orð, hversu mikil- vægt það er flestum námsmönnum að afla sér tekna þá fáu mánuði ársins sem hlé er á skólahaldi, — enda er sumar- hýran i flestum tilvikum sú lifsbjörg, sem fleytir náms- manni áfram i námi milli ára. Til þess að gera okkur frekari grein fyrir þessu mikla vandamáli heimsótti þátturinn atvinnu- miðlanir skólafólks: atvinnumiðlun menntaskólanna og atvinnumiðlun stú- denta Bergþór Pálsson Hjá atvinnumiðlun stúdenta hitti þátturinn Gylfa Kristinsson að máli, en hann er starfsmaður atvinnumiðlunarinnar. Gylfi sagði okkur, að á skrá hjá sér væru 113 stúdentar, þar af hefðu 10 útvegað sér vinnu sjálfir, atvinnumiðlunin hefði útvegað 9 manns atvinnu, — og eftir stæðu 94 stúdentar, sem alls enga von hefðu um atvinnu i sumar. — 1 byrjun maí fór fram könnun á vegum Stúdentaráðs um atvinnuhorfur, og á þeim hálfa mánuði sem könnunin stóð yfir létu 89 stúdentar skrá sig. Þessi starfsemi hófst siðan 20. maf og sóttum við um styrk til Menntamálaráðuneytisins, sem við fengum greiðlega. — Ég starfaði við atvinnu- miðlun menntaskólanna fyrir nokkrum árum og ég verð að segja, að þá var mun liflegra og meira um að atvinnurekendur Hjá atvinnumiðlun mennta- skólanna hittum við að máli Bergþór Pálsson, nemanda i Menntaskólanum við Tjörnina, en hann hefur umsjón með starfi atvinnumiðlunarinnar. Bergþór kvað 150 nemendur hafa látið skrá sig hjá miðlun- inni, en ekki hafði hann hand- bærar tölur um þá nemendur, sem útveguð hefði verið vinna á vegum miðlunarinnar. Kvaðst hann þó telja að það léti nærri að u.þ.b. 30 nemendum hefði verið útveguð atvinna. Bergþór sagði, að þvf miður hirtu margir ekki um að láta atvinnumiðlun- ina vita, ef þeir útveguðu sér sjálfir vinnu, og þvi væri erfitt að segja til um, hversu margir væru enn, sem enga von hefðu um atvinnu. — Ég tel þó, að það sé ekki ýkja fjarri sanni, að um eitt hundrað nemendur menntaskól- anna hafa enn enga von um at- vinnu i sumar, sagði hann. Bergþór sagði okkur að menntamálaráðuneytið hefði styrkt þessa starfsemi og taldi Bergþór liklegt að miðlunin hringdu og byðu fólki störf. Þetta er heldur dauft núna og til marks um það, má nefna að að- eins 16 atvinnurekendur hafa hringt til okkar. Við höfum svo auk þess hringt talsvert út i bæ sjálfir, i nokkur fyrirtæki og yfir höfuð er svarið alls staðar það sama: Getum ekki bætt við okkur starfsfólki, og það fólk, sem var hér sfðastliðið sumar gengur fyrir. — Þá má ekki gleyma þvi, að i mörgum tilfellum hafa at- vinnurekendur fækkað við sig starfsfólki, miðað við siðasta ár. — Þetta er afskaplega alvar- legt mál fyrir háskólastúdenta, og I mjög mörgum tilfellum er sumaratvinnan grundvöllur fyrir þvi, að stúdentar geti hald- ið áfram námi. Stúdentar hafa vel flestir fyrir fjölskyldu að sjá og þó að námslánin séu bærileg, er sumaratvinnan algjör for- starfaði a.m.k. fram undir lok næstu viku. — Þessi starfsemi hófst 12. mai, og þó svo ég hafi ekki áður starfað við atvinnumiðlunina, þá er mér ljóst, að ástandið er allt annað og verra en á siðustu árum. Mörg þeirra starfa sem bjóðast krefjast sérhæfni, og at- vinnurekendur vilja nær undan- tekningalaust frá vant fólk i vinnu, — svo það vill þvi miður bregða við, að við getum ekki útvegað fólk i þau störf sem bjóöast, þrátt fyrir það að hér eru rúmlega hundrað nemendur sem vantar tilfinnanlega at- vinnu. Þaö verður að hyggja að þvi, að hingað leita nemendur i neyð. Þeir hafa þá vel flestir verið að leita að atvinnu sjálfir i nokkra mánuði og þegar þeir hafa enga von koma þeir hingað og láta skrá sig. Það fer ekki á milli mála, að fólk er orðið mjög svartsýnt. Það eru yfirleitt smærri fyrir- tæki, sem hingað leita, þvi að öll stærri fyrirtæki hafa nú þegar ráðið sitt sumarfólk. senda þess að stúdentar geti haldið áfram námi. Ef svo fer sem horfir, að margir stúdentar fái enga átvinnu i sumar, — er fyrirsjáanlegt, að þeir verði að hætta frekara námi, a.m.k. að sinni. — Þessi tala 94 er mjög sönn tala um þá stúdenta sem algjör- lega eru vonlausir um atvinnu i sumar, — en auk þeirra vitum ■ við um nokkra stúdenta sem hafa einhverja von, — og þeir eru ekki meðtaldir hér. — Borið saman við ástandið i. fyrra eru atvinnuhorfurnar hreinlega geigvænlegar. Þá lét Stúdentaráð fara fram svipaða könnun og gaf stúdentum kost á þvi að skrá sig á „atvinnuleysis- skrá”. Þá skráðu sig 30 stúdent- ar og þeim var öllum auðveld- lega útveguð vinna. Nú er allt miklu tregara, en Stúdentaráð stefnir að þvi, að útvega öllum stúdentum atvinnu i sumar og — Taka nemendur undan- tekningalaust þá vinnu, sem býöst? — Það er ofurlitið misjafnt, en vel flestir taka þó þá vinnu, sem þeim stendur til boða. Ann- ars eru það margir nemendur sem geta þess, þegar þeir láta skrá sig, að þeir vilji ekki þá vinnu, sem þeir hafa verið i undanfarin sumur. Og ég verð einnig að játa, að það hefur komið nokkuð oft fyrir að fólk neitar vinnu, sem til boða stend- ur, t.d. vilja fáir fara út á land, þótt þar sé góða vinnu að fá, og þó að aðstæður nemenda séu þannig, að ekkert ætti að vera i veginum með að vinna úti á landi. En, — ég vil undirstrika það, að þetta eru undan- tekningatilfelli og flestir gripa þá vinnu fegins hendi sem býðst. Bergþór tjáði okkur, að sára- litið af menntaskólafólki utan af landi hefði látið skrá sig, og sér virtist atvinnuhorfur i dreifbýl- inu vera mun betri en i Reykja- vik. Þá sagði Bergþór okkur, að I nokkrum tilfellum bæðu at- Með ungu fólki starfrækja þessa atvinnumiðlun svo lengi sm þarf. Fáum við ekki frekari styrki, mun Stúdentaráð greiða kostnað við þessa starfsemi úr eigin vasa. — Stjóm Stúdentaráðs telur þessi mál það alvarleg, að hún mun gera allt, sem i hennar valdi stendur til að koma sinu fólki inn i atvinnulifið, og ef þess þarf með, mun stjórnin draga úr annarri starfsemi stúdentaráðs til að halda miðluninni gang- andi. — Við höfum getað útvegað starfskrafta I öll þau störf, sem okkur hafa boðizt, með einni undantekningu þó. 1 þvi tilviki þurfti viðkomandi að hafa götunarkunnáttu, og voru send- ir fjölmargir stúdentar til at- vinnurekandans, en hann sneri öllum við og krafðist sérþekk- ingar á götunarvélar. — Aðalverk mitt sem starfs- maður miðlunarinnar er að leiða atvinnurekendur og stúdenta saman. Ef um mjög sérhæfð störf er að ræða, þarf oft að hringja i 40-50 stúdenta. — Við erum heldur svartsýnir núna, þvi að við vitum hversu mikið er I húfi fyrir stúdenta. Það má ýkjulaust segja, að framtið margra stúdenta veltur á þvi, hvort þeir fái atvinnu þessa 3-4 mánuði. Það hefur verið látið i það skina, að stúdentar séu iðjuleysingjar, sem fái rikulega styrki. Þetta er alrangt. Sumarvinnan er yfir- leitt forsenda þess að þeir geti stundað sitt nám. — Já, þetta fólk tekur hvaða starf sem býðst. Atvinnumiðlun stúdenta er til húsa i Félags- stofnun stúdenta við Hring- braut. Simi miðlunarinnar er 15959. vinnurekendur um nýstúdenta til framtiðarstarfa. — Telurðu að atvinnumiðlun- in geti útvegað þessum hundrað nemendum atvinnu i sumar? — Nei, það væri mikil bjart- sýni að ætla það. Ég geri ráð fyrir einhverju atvinnuleysi meðal skólafólks i sumar. — Er sótzt meira eftir piltum til vinnu en stúlkum. — Já, það er mikill munur þar á. Atvinnumiðlunin hefur aöeins getað útvegað sárafáum stúlkum atvinnu. Mér finnst jafnvel vera gerðar meiri kröf- ur til stúlknanna. Nær eingöngu býðst þeim atvinna við skrif- stofu- og þjónustustörf og það er krafizt sérhæfni i þessum at- vinnugreinum. Stúlkurnar verða að vera leiknar á ritvél, kunna allitarleg skil á tungu- málum og jafnvel er krafizt götunarkunnáttu!! — Götunarkunnáttu? — Já, það var tekið fram, að viökomandi yrði að vera vön skrifstofustörfum og götunar- kunnáttu. En hér fannst engin, sem hafði aflað sér slikrar kunnáttu. Atvinnumiðlun menntaskól- anna er til húsa i Menntaskólan- um við Hamrahlið og siminn þar er: 82698. AAeð ungu fólki ATVINNUMIÐLUN STÚDENTA Geigvænlegar horfur í atvinnumálum skólafólks: Um 200 nemendur á háskóla- oq menntaskólastiqi hafa enaa von um atvinnu í sumar Texti: Gunnar Salvarsson ATVINNUAAIÐLUN AAENNTASKÓLANNA

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.