Tíminn - 01.06.1975, Side 36

Tíminn - 01.06.1975, Side 36
36 TÍMINN Sunnudagur 1. júni 1975 OFURLÍTIL ATHUGASEMD ARIÐ 1936 kom út i Reykjavik þa6 sem (meö tilgreindum und- antekningum) taldist vera heild- arútgáfa af ljóðum Matthiasar Jochumssonar, en kostnaðar- maður útgáfunnar var Magnús sonur hans. Talsvert skorti þó á að þetta væri i rauninni heildarút- gáfa, enda myndi hafa orðið að leita viða til þess að svo mætti verða. Fyrirkomulag hennar var hreint ágætt, Magnús sneið það algerlega eftir þvi sem Oxford University Press hefir á Standard Authors sinum. Að öðru leyti er henni nokkuð áfátt. Svo var talið, aö Þorsteinn skáld Gislason hefði séð um hana, og að ýmsu leyti hefði hann verið ágætlega til þess fallinn, en engan vissi ég óánægð- ari með hana en einmitt hann. Kvaöst hann hafa skilið svo, er hann tók aö sér starfann, að sitt hlutverk væri ekki öllu meira en að lesa prófarkir. Annar maður hafði búið í hendur honum og um hann var þannig háttað, að naum- ast var sanngjarnt að ætlast til að hann gæti leyst verkið vel af hendi. Hér er útgáfa þessi ekki til öllu frekari umræðu. Þrátt fyrir ófull- komleik sinn, verður hún ávallt handhæg og gagnleg, og vegna innihaldsins að sjálfsögðu ævar- andi gersemi. Einn kafii bók- arinnar nefnist „Sálmar og and- leg ljóð.” Þar i er margt frumort, en annað þýtt, og þó ekki ætið sýnt að svo sé. Þannig er ekki annaö að sjá en að hinn vinsæli barnasálmur ,,Ó faöir, gjör mig litiö ljós,” sé frumkveðinn á is- lenzku, en svo er ekki. Hann er enskur að uppruna, eftir konu, sem nafnkunn var á sinni tið og hét Matilda Betham-Edwards (f. 1836, d. 1919). Hún var ekki aðeins ljóöskáld, heldur ritaði einnig skáldsögur, sem nú munu litið lesnar, eins og raunar flestar sögur frá þeim tima. Aöurgreindur sálmur (kunnur úr ýmsum enskum skólasöngv- um) var tekinn upp i islenzku Sálmabókina 1945. Ég veitti þvi athygli, að þar var uppruna hans ekki getið, en gerði ráð fyrir, að ásamt ýmsu öðru myndi þetta verða lagfært i næstu prentun. Það hefur þó lfklega ekki verið gert, þvi þegar ég eignaðist hina nýjustu Sálmabók (1972), sá ég að enn var Matthias talinn höfundur sálmsins, en ekki þýðari. Mér þykir þvf sýnt, að vekja þurfi athygli á hinu rétta. Jafnframt má þó geta þess, að þvi fer fjarri, að slálmurinn hafi tapað nokkru i meðferö þýðarans. Á frummálinu er fyrsta erindið þannig: God make my life a little light Within the world to glow, A little flame that burneth bright Wherever I may go. Þessi nýjasta Sálmabók Is- lenzku Þjóðkirkjunnar verður ekki frekar tekin til athugunar i einstökum atriðum í þessari athugasemd minni. En varla má ég annaö en láta þess getið, að enga ánægju hafði ég af að eign- ast hana. Ekki var ég með öllu ánægður með Sálmabókina frá 1945, og það voru ekki heldur þeir nefndarmanna, er stóðu að samantekt hennar og ég ræddi við um hana að starfi þeirra Ioknu. Spor framávið var hún þó. Með hinni nýjustu Sáimabók virðist mér aftur á móti sem stigið sé skref afturábak — eða niður á við, ef þá þykir betur orðað. Hún er eitt af þvi, sem vekur mér ugg um að nú sé á ný að rökkva i islenzku kirkjunni. Er virkilega verið að stjaka þeim til hliðar, ljósberun- um miklu, sem við af gömlu kyn- slóðinni getum ekki gleymt — og viljum ekki gleyma? Ég vil nefna tvo hina stærstu, sem lýstu upp allt tsland: Matthias Jochumsson og Harald Nielsson. Sálmum Matthiasar mátti fjölga i Sálma- bókinni. En heldur hefur þeim fækkað, og það virðist ekki benda til hækkandi sólar. Ekki mun ég hafa lesið alla nýkomnu sálmana, og suma þeirra gafst ég upp við að lesa til enda. Myndi ekki mega látaflesta þeirra hverfa við næstu endurskoðun? En hún kemur ekki I minni tið. Goethe bað um meira ljós. Við skulum taka undir með honum. I Sálmabókunuip þremur, sem verið hafa i notkun um mina daga, er eitt orð sem ég hefi skilið á annan veg en guðsmennirnir. Það er I hinni fögru kvöldbæn, er Sveinbjörn Egilsson þýddi: „"Nú legg ég augun aftur”. Sálma- bækurnar segja: „Æ, virzt mig að þér taka”. Ég skil ekki þessa upphrópun þarna, þenna kvein- staf, og hygg að „æ” sé þarna atviksorð (ætið). En vera má að ég misskilji. Frumtextinn myndi sennilega skera úr. Sn.J. SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA @ Sjávarafurðadeild SAMBANDSHÚSINU RVÍK, SÍMI 17080 Jötunn farinn að bora PÞ—Sandhóli. — Um stundar- fjóröung fyrir klukkan þrjd á föstudag ræsti Gunnar Thorodd- sen orkumálaráðherra „Jötunn’ hinn nýja bor orkustofnunarinn- ar. Hófst athöfnin með ræðu Jakobs Björnssonar orkumála- stjóra. 1 stuttu ávarpi er orku- málaráðherra hélt lýsti hann yfir ánægju sinni yfir komu tækisins. Þá ræddi hann um afkastagetu tækisins sem getur borað allt að 4 km I jöröu niður. Borinn á til að byrja með að vinna fyrir Þorlákshöfn og ná- grenni og er það von staðar- manna að hann gefi þeim nægan varma I náinni framtið. HLÍÐARDALSSKÓLI 25 ÁRA Þegar smiði skólans hófst kom safnaðarfólk viða að og lagði fram mikla vinnu. Margir störf- uðu svo vikum skipti og tóku ekk- ert fyrir vinnu sina. A þessum tima voru um 400 manns i söfnuði aðventista, og var skólahúsið reist á rúmu ári. Fyrsti nemenda- hópurinn brautskráðist frá Hliðardalsskóla árið 1953. Nemendum hefur fjölgað ár frá ári og færri hafa komizt I skólann en sótt hafa um. í upphafi var áætlað, að i skól- anum yrðu fjörutiu nemendur, en það þótti hæfileg stærð: þannig gæti skólinn sinnt þörfum safnað- arins, en hann telur nú um 500 manns. Vegna mikillar ásóknar i skólavist var ákveðið að reisa nýja skólavist fyrir 40 drengi. Hún var tekin i notkun haustið 1959. Siðan hafa nemendur verið um 80 á hverju ári. Fyrstu starfsár skólans voru bekkjardeildir aðeins þrjár, ein veitti nemendum fræðslu fyrir landspróf. Siðan hefur bekkjar- deildum fjölgað. Reist hefur verið leikfimihús, og unnið að miklum framkvæmdum vegna búreksturs skólans, meðal annars reist gróðurhús. Siðla árs 1967 urðu miklar breytingar á öllum högum skól- ans, en þá var borað eftir heitu vatni, sem þarna reyndist vera i miklum mæli. Éftir það var hitaveita lögð um skólabyggðina og gróðurhúsið reist. Af öðrum þáttum i starfi Hllöardalsskóla má nefna, að um tólf ára skeið var rekið þar heilsuhæli, og búrekstur er fjöl- breýttur. Tilgangur aðventista með þvi að reisa Hliðardalsskóla vár einkum sá, að geta frætt þar nemendur i anda trúar sinnar, og að þurfa ekki að vera háðir rikis- skólunum I þeim efnum. Þar við bætist allt allmennt nám. Þetta hefur tekizt á margan hátt og fjöldi menenda hefur tekið virkan þátt I starfi safnaðarins. Segja má, að hlufi af náminu sé starf við skólabúið, en nemendur vinna hluta úr degi við almenn bústörf og fleira. Skólastjórar Hliðardalsskóla hafa verið: Július Guðmundsson (1950—1960), Sigurður Bjamason (1960—1964), Jón Hj. Jónsson (1964—1972), Július Guðmundsson (1972—1974). Núverandi skólastjóri er Björgvin Snorrason. Sendum sjómönnum um allt land árnaðaróskir í tilefni af hátíð- isdegi þeirra . /um Hliðardalsskóli i ölfusi, sem er i eigu aðventista, er 25 ára um þessar mundir. Afmælisins verður minnzt með samkomu i skólanum sunnudaginn 1. júni. Smiði skólans hófst 8. júnl 1949, og siðla hausts árið 1950 tók skól- inn til starfa. Nemendur voru þá 19. Þá starfaði aðeins einn kenn- ari við skólann, auk skólastjóra. Helztu hvatamenn að stofnun og smiði skólans voru þeir Sigfús Hallgrimsson kennari og O.J. Olsen, sem árið 1936 hóf fjársöfn- un til smiði skóla. Þá voru liðlega 300mannsisöfnuði aðventista, og þótti ýmsum, að Imikið væri ráð- izt. Safnaðarfólkgáfmánaðarlega i sérstakan byggingarsjóð, og stóð sú söfnun i ellefu ár, áður en land undir skólahúsið var keypt. Arið 1947 voru i sjóðnum 155 þúsund krónur, sem var mikið fé I þá daga. Keypt var land Vind- heima I ölfusi. Fyrirlestrar um heil- brigðis- þjónustu Hér á landi er nú staddur á veg- um heilbrigðisstjórnar rektór Halsovárdhögskolan i Gauta- borg, Sixten Haraldsson dr. med. Allmargir Islendingar hafa stundaðnám iþessum skóla, bæði læknar, heilbrigðisfulltrúar og stjórnendur heilbrigðisstofnana og ísland tekur nú þátt f rekstri skólans. Dr. Haraldson flytur hér tvo opinbera fyrirlestra. Hinn fyrri verður fluttur i Landspitalanum miðvikudag 4. júni kl. 14og fjallar um heilbrigðisþjónustu á norðlægum slóðum. Siðari fyrir- lesturinn verður haldinn i Nor- rænahúsinu fimmtudag 5. júni kl. 16 og fjallar um heilbrigðisþjón- ustu á afskekktum svæðum og meðal farandþjóðflokka. Hann er ætlaður jöfnum höndum heilbrigðisstarfsmönnum og al- mennum hlustendum. Myndir verða sýndar með báðum fyrir- lestrunum.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.