Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 2
2 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
Halldór Ásgrímsson um eftirlaunalögin:
Forsætisnefnd geri tillögur um breytingar
EFTIRLAUNAMÁLIÐ Halldór Ás-
grímsson forsætisráðherra tel-
ur eðlilegt að tillögur um breyt-
ingar á eftirlaunalögunum verði
gerðar í forsætisnefnd. „Breyt-
ingar á eftirlaunalögunum voru
ákveðnar með samkomulagi
allra flokka á sínum tíma og mér
finnst eðlilegt að þessar breyt-
ingar nú verði því ákveðnar af
sömu aðilum. Frumvarpið var
flutt af fulltrúum í forsætis-
nefnd og ég tel því eðlilegt að
breytingartillögur komi þaðan
líka,“ segir Halldór.
Hann segir að samkvæmt ný-
framkomnu lögfræðiáliti sé
hægt að gera breytingar á eftir-
launalögunum. „Varað er við því
að gera breytingar á virkum
réttindum, það er að segja rétt-
indum sem þegar hafa hafist og
síðan að það verði að vera
ákveðinn aðlögunartími. Því
liggur að mínu mati ekkert á að
gera þetta á þessu vori og eðli-
legt að flokkarnir hafi þetta til
athugunar í sumar og við getum
litið á þetta aftur í haust,“ segir
Halldór.
Halldór segir það vilja allra
flokkanna að fara yfir málið og
taka á því í ljósi möguleikans á
tvöföldum launum. „Frumvarp-
ið sjálft er mjög einfalt. Þegar
er að finna skerðingar í lögun-
um ef menn byrja að taka eftir-
laun frá 55 ára aldri, sem gilda
fram að 65 ára aldri. Þetta er
fyrst og fremst spurning um það
ákvæði. Það tekur ekki nema
hluta úr degi að ganga frá frum-
varpinu, það er fyrst og fremst
spurning um hvað menn vilja
gera,“ segir Halldór. - sda
Banaslys við Egilsstaði:
Kona lést í bílveltu
BANASLYS Rúmlega fimmtug kona
lést þegar bíll sem hún ók fór út
af og valt nokkrum sinnum á
Upphéraðsvegi um einn kíló-
metra frá Egilsstöðum á leiðinni
inn í Hallormsstað á tíunda tím-
anum á þriðjudagskvöldið.
Bremsuför á vettvangi benda til
þess að konan hafi misst stjórn á
bílnum en að öðru leyti eru til-
drög slyssins ókunn. Konan var
ein í bílnum.
Konan hét Guðrún
Sigurðardóttir. Hún var búsett á
höfuð-borgarsvæðinu en var
gestkomandi á Egilsstöðum.
Vegfarandi gerði Neyðarlínu
viðvart um slysið tuttugu mínút-
ur fyrir klukkan tíu um kvöldið
og var þá kvödd til lögregla og
sjúkralið. Að sögn lögreglunnar á
Egilsstöðum úrskurðaði læknir
konuna látna á staðnum Rann-
sókn lögreglu beinist meðal ann-
ars að því hvort um ölvunarakst-
ur hafi verið að ræða, en bílinn
hafði konan tekið ófrjálsri hendi
fyrir utan veitingastaðinn Kaffi
Nielsen á Egilsstöðum. - óká
VETTVANGUR SLYSSINS
Rútan gjöreyðilagðist í árekstrinum.
Árekstur lestar og rútu:
Banvænn
kappakstur
SRÍ LANKA, AP 35 manns biðu bana
þegar farþegalest ók á rútu
skammt utan við Colombo, höfuð-
borg Srí Lanka, í gær. Yfir 60
manns slösuðust, sumir þeirra al-
varlega.
Svo virðist sem bílstjóri rút-
unnar hafi verið í einhvers konar
kappakstri við starfsbróður sinn á
annarri rútu og því ekið hratt.
Þegar kom að mótum vegarins og
teinanna ók rútan yfir rétt áður en
hlið þeirra lokuðust en í sama vet-
fangi kom lestin á fleygiferð.
Við áreksturinn splundraðist
rútan í smátt og lá farangur far-
þeganna eins og hráviði á vegin-
um. Hinir slösuðu voru fluttir á
sjúkrahús í nágrenninu. ■
VARAÐI VIÐ MORÐINU Á VAN
GOGH Vitni í réttarhöldunum
vegna morðsins á kvikmynda-
gerðarmanninum Theo van Gogh
tjáði dómurum í gær að hann hafi
varað öryggislögreglu landsins
við að Mohammed Bouyeri hygð-
ist drepa kvikmyndagerðarmann-
inn. Það kom einmitt á daginn.
MEIRIHLUTI VILL ALGERA LÖG-
LEIÐINGU MARIJÚANA Tvær skoð-
anakannanir sem kunngjörðar
voru í gær sýna að tveir þriðju
hlutar Hollendinga vilja algera lög-
leiðingu fíkniefnisins marijúana.
Neysla efnisins er ekki lögleg en
þó er það látið óátalið hafi menn
lítilræði í sínum fórum eða reyki
það á sérstökum kaffihúsum.
Fyrningarfrumvarp:
Afgreiðsla
ekki útilokuð
STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson,
formaður allsherjarnefndar, segir
ekki útilokað að frumvarp um af-
nám fyrningar kynferðisbrota
gegn börnum
verði afgreitt á
þessu þingi.
Í forsíðufrétt
í Fréttablaðinu í
gær sagði að
ekki kæmi til
greina að sam-
þykkja frum-
varp Ágústs
Ólafs Ágústsson-
ar en Bjarni vill
taka fram að það eigi einungis við
eins og það er í núverandi mynd.
Hann segir allmargar athuga-
semdir hafa komið fram við frum-
varpið og nefndin hafi lagt um-
talsverða vinnu í það. Til greina
komi að vísa því til dómsmála-
ráðuneytis, þar sem vinna um
sama efni sé að fara í gang.
- jss
SPURNING DAGSINS
Birkir, er peningalykt af þér?
„Nei, um mig leika ferskir vindar
framsóknar.“
Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks-
ins, er hluthafi í Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði.
Bræðslulykt er stundum kölluð peningalykt.
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR
Guðrún lét lífið í umferðarslysi nærri
Egilsstöðum.
■ HOLLAND
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
FORSÆTISRÁÐHERRA:
„Frumvarpið sjálft er mjög einfalt. Það
tekur ekki nema hluta úr degi að ganga
frá frumvarpi, það er fyrst og fremst
spurning um hvað menn vilja gera.“
■ HÆSTIRÉTTUR
Brot á endurskoðendalögum
Aðalmeðferð í máli ákæruvalds-
ins á hendur Gunnari Erni Krist-
jánssyni, fyrrum forstjóra SÍF og
endurskoðanda Tryggingasjóðs
lækna, fór fram í Hæstarétti í
gær. Gunnari Erni er gefið að sök
að hafa brotið lög um endurskoð-
endur vegna þess að um 80 millj-
ón króna fjárdráttur úr Trygg-
ingasjóðnum átti sér stað í endur-
skoðandatíð hans.
■ FRAKKLAND
HÓTELBRUNI BANAR TVEIMUR
Par lét lífið og átta aðrir slösuð-
ust þegar eldur kom upp í hóteli í
Nancy í Austur-Frakklandi
snemma í gærmorgun. Rannsókn
á upptökum eldsvoðans stendur
yfir. Í eldsvoða í hóteli í París
fyrir hálfum mánuði fórust 24
manns.
BJARNI
BENEDIKTSSON
EINKAVÆÐING Almenningur ehf.
sem hyggst bjóða í hlut í Símanum
er í klemmu milli þess að undir-
rita trúnaðareið vegna útboðs-
gagna við sölu Símans og þess að
upplýsa væntanlega hluthafa fé-
lagsins.
Söluferli Símans gerir kröfur
til þess að þeir sem fá útboðsgögn
Morgan Stanley skrifi undir trún-
aðareið. Forsvarsmenn Almenn-
ings ehf., þau Agnes Bragadóttir,
Ingvar Guðmundsson og Orri Vig-
fússon, hafa neitað að skrifa und-
ir slíkt, enda myndi það binda
hendur þeirra við að upplýsa
væntanlega hluthafa um rekstur
Símans, áform og aðstæður. Slíkt
stangast á við lög um verðbréfa-
viðskipti sem kveða á um að upp-
lýsingar sem nauðsynlegar eru
fjárfestum svo þeir geti metið
fjárfestingu sína verði að koma
fram í útboðslýsingu.
„Útboðið er greinilega ekki al-
menningsvænt,“ segir Orri Vig-
fússon, einn forsvarsmanna Al-
mennings. „Ég vil vekja upp
spurningu um hvort útboðið al-
mennt standist lög og reglur.
Þetta vekur upp spurningar um
hvort einkavæðingarnefnd sé
starfi sínu vaxin eða þá ríkis-
stjórnin.“ Orri segir lögfræðinga
hafa farið yfir málið með þeim og
reglur útboðsins bindi hendur
þeirra. Hann segir að ef sú leið
yrði farin að stofna hlutafélag
með útboðslýsingu, þá þyrfti að
koma fram hvaða verð þau
myndu bjóða. „Þá myndu allir
samkeppnisaðilar okkar vita
hvaða verð við værum að bjóða.“
Ein leið er fær að mati for-
svarsmanna Almennings og í yfir-
lýsingu segir Agnes Bragadóttir
fyrir hönd stjórnarinnar: „Því sjá-
um við okkur engan annan leik
færan, í þeirri stöðu sem nú er
upp komin, en að biðja hvert og
eitt ykkar að rita okkur tölvubréf,
þar sem þið með nafni, heimilis-
fangi og kennitölu, veitið okkur
umboð til þess að óska eftir því
við Morgan Stanley og einkavæð-
ingarnefnd, að í ykkar nafni, verði
ofangreind trúnaðargögn afhent.“
Orri segir ekki á dagskránni að
leggja árar í bát. „Þetta er catch 22,
en við ætlum að gera okkar besta
til þess að almenningur fái að
kaupa Símann í fyrsta áfanga; ekki
bíða í tvö til þrjú ár,“ segir Orri.
haflidi@frettabladid.is
AGNES OG ORRI VORU BARÁTTUGLÖÐ Í GÆRKVÖLDI
Agnes Bragadóttir og Orri Vigfússon fara fram á umboð þeirra þúsunda sem hafa lýst vilja
til að kaupa með þeim Símann. Þau efast um að söluferlið standist lög og almenningi sé
gert erfitt fyrir að kaupa Símann eftir reglum útboðsins.
Mega ekki upplýsa
um rekstur Símans
Almenningur ehf. biðlar til þeirra sem hyggjast kaupa með þeim Símann að
veita sér umboð til að taka við útboðsgögnum. Trúnaðar er krafist við afhend-
ingu gagnanna, en rík upplýsingaskylda er til hluthafa Almennings.
Fjöldafæðing:
Fimm á
verði eins
PHOENIX, AP Teresa Anderson, 25
ára gömul kona frá Phoenix,
fæddi í fyrradag fimmbura. Slíkt
væri ekki í frásögur færandi
nema fyrir þá sök að Anderson
hafði tekið að sér að ganga með
börnin fyrir hjón sem ekki gátu
gert það sjálf.
Fimm fósturvísum frá hjónun-
um var komið fyrir í legi konunn-
ar í þeirri von að minnsta kosti
einn þeirra næði að dafna en með-
gangan tókst framar vonum.
Snáðunum fimm hafa verið gefin
nöfnin Enrique, Jorge, Gabriel,
Victor og Javier.
Fyrir viðvikið fær Anderson
um eina milljón króna. Hún fór
ekki fram á viðbótargreiðslu þótt
börnin hafi verið fleiri en í upp-
hafi stóð til. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N