Fréttablaðið - 28.04.2005, Side 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,48 63,78
120,64 121,22
81,97 82,43
11,01 11,07
10,08 10,14
8,97 9,02
0,60 0,60
95,92 96,50
GENGI GJALDMIÐLA 27.04.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
113,23 -0,06%
4 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Fjármálaráðuneyt-
ið spáir nær sex prósenta hag-
vexti bæði í ár og á næsta ári og
telur ekki útlit fyrir að hann fari
lækkandi fyrr en dregur úr stór-
iðju árið 2007. Eftir það á meira
jafnvægi að komast á efnahags-
lífið. Verðbólga verður nálægt
fjórum prósentum samkvæmt
spánni, 3,9 prósent í ár og 3,8
prósent á næsta ári.
Stóriðjuframkvæmdir, hátt
gengi krónunnar og aukið fram-
boð á íbúðalánum verða til þess
að viðskiptahalli eykst verulega
og verður tólf prósent af lands-
framleiðslu í ár að mati fjár-
málaráðuneytisins.
Heldur dregur úr atvinnu-
leysi nái spá fjármálaráðuneyt-
isins fram að ganga. Því er spáð
að rúmlega tvö prósent vinnu-
afls verði án atvinnu á næsta
ári.
Hagvöxtur nam 5,2 prósent-
um í fyrra, 0,6 prósentustigum
minna en síðasta áætlun gerði
ráð fyrir. - bþg
Evrópsk rannsókn:
Hálf milljón
Dana kvíðin
SJÚKDÓMAR Fjórði hver Evrópubúi
þjáist af sjúkdómum sem tengjast
heilastarfsemi. Rannsóknir sýna að
127 milljónir Evrópubúa glíma við
sjúkdóma á borð við Parkinson-
veiki, kvíða eða mígreni. Í Dan-
mörku er talið að 1,4 milljónir
manna þjáist af sjúkdómunum.
Rannsóknin sem leiðir þetta í
ljós er ein sú viðamesta sem fram
hefur farið á þessu sviði í Evrópu,
en niðurstöður hennar voru kynnt-
ar nýverið á ráðstefnu heilasér-
fræðinga í Brussel. Þar kom meðal
annars fram að um hálf milljón
Dana þjáist af einhvers konar
kvíðaröskunum. ■
RJÚPA Í VAÐLAHEIÐI
Rjúpan er að mestu leyti enn í vetrarbúningi
og því auðveld bráð fálka og annarra ránfugla.
Norðurland:
Rjúpunni
fjölgar
RJÚPA Meira hefur sést af rjúpu í ná-
grenni Húsavíkur í vor en undan-
farin ár, sem bendir til að stofninn
sé í vexti á Norðurlandi. Þorkell L.
Þórarinsson, forstöðumaður Nátt-
úrustofu Norðausturlands, segir að
í maí fari fram árleg fuglatalning á
vegum Náttúrufræðistofnunar Ís-
lands og þá komi í ljós hversu mikið
stofninn hafi stækkað.
Eitt ár er eftir af rjúpnaveiði-
banninu en ef í ljós kemur að stofn-
inn hafi stækkað verulega, og Al-
þingi samþykkir að banna sölu á
rjúpu, er líklegt að veiðar verði
leyfðar að nýju í haust. - kk
Í HÉRAÐSDÓMI
Jón Trausti Lúthersson mætti í Héraðsdóm
Reykjavíkur í gærmorgun þar sem þingfest
var mál á hendur honum vegna meintrar
líkamsárásar á starfsmann
DV í október sl.
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Kærður fyrir
kverkatak
DÓMSMÁL Þingfest var fyrir Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær mál
Lögreglustjórans í Reykjavík á
hendur Jóni Trausta Lútherssyni
fyrir líkamsárás.
Honum er gefið að sök að hafa
miðvikudaginn 20. október síðast-
liðinn ráðist á starfsmann DV á
skrifstofu blaðsins í Reykjavík.
Jón Trausti er sagður hafa tekið
starfsmanninn kverkataki og hert
að með þeim afleiðingum að
manninum sortnaði fyrir augum,
auk þess sem hann hruflaðist og
marðist á hálsi. Brotið er talið
varða við 217. grein almennra
hegningarlaga. Dómari í málinu
er Símon Sigvaldason. - óká
ÓTVÍRÆ‹IR YFIRBUR‹IR
Svo skaltu gera ver›samanbur›.
29.447,-*
Subaru Legacy Wagon sjálfskiptur
2.460.000Ver› nú
Ger›u fyrst gæ›asamanbur›.
■ ÍTALÍA
STÓÐST ATKVÆÐAGREIÐSLU Ný
ríkisstjórn Silvios Berlusconi
stóðst atkvæðagreiðslu um stuðn-
ing við hana í ítalska þinginu í
gær. Berlusconi hét því í ræðu
fyrir atkvæðagreiðsluna að gera
mikið átak í að efla efnahagslífið
og lofaði „frábærum“ árangri
fyrir þingkosningar að ári.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLVELTA Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
Ökumaður slapp ómeiddur eftir að
jepplingur hans valt við Skaftárbrú
á á Kirkjubæjarklaustri. Maðurinn
missti stjórn á bílnum þegar hann
lenti í lausamöl. Að sögn lögreglu
slapp bíllinn furðu vel, þó að
nokkrar rúður hafi brotnað.
DÓMSÚRSKURÐI YFIR KHODOR-
KOVSKY FRESTAÐ Dómstóll í
Moskvu ákvað í gær að fresta því
að kveða upp dóm yfir Mikhail
Khodorkovsky, eiganda Yukos-olíu-
félagsins, en búist hafði verið við
honum í dag. Málið er talið af póli-
tískum rótum runnið en það hefur
valdið óróa á meðal fjárfesta,
hleypt upp olíuverði og vakið efa-
semdir um heilindi Pútíns Rúss-
landsforseta.
STÓRIÐJUFRAMKVÆMDIR
Framkvæmdir fyrir austan og aðgangur að
ódýrari lánum til íbúðakaupa ýta undir
hagvöxt og verðbólgu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/K
K
■ RÚSSLAND
ALÞINGI „Ég tæki því að sjálfsögðu
vel ef allsherjarnefnd fæli ráðu-
neytinu að fara yfir fyrirliggjandi
frumvarp um afnám fyrningar
kynferðisbrota gegn börnum, og
gera síðan sínar tillögur,“ sagði
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra, spurður um afstöðu sína til
þess að nefndin myndi vísa mál-
inu til ráðuneytis hans.
„Ráðuneytið mundi skoða mál-
ið vel,“ sagði ráðherra. „Síðan
yrði niðurstaða þess kynnt. Mér
þætti slíkt eðlilegur gangur máls
af þessum toga.“
Hann sagði að um miðjan apríl
hefði komið hópur fólks til sín í
ráðuneytið og kynnt sér aðgerða-
áætlun gegn kynbundnu ofbeldi á
Íslandi. Þar kæmu fram tillögur
að úrbótum sem gagnast mættu
við endurskoðun laga gegn slíku
ofbeldi.
Tillögurnar vörðuðu málefni
sem heyrðu undir verksvið ráðu-
neyta heilbrigðis-, dóms-, félags-
og menntamála. Þær væru í fimm
köflum. Í viðamesta kaflanum
væru kynnt sjónarmið og lagðar
fram breytingar sem tengdust
réttarkerfinu.
„Þar er meðal annars lagt til að
unnið verði að heildarendurskoð-
un löggjafar, meðal annars hegn-
ingarlaga og laga um meðferð op-
inberra mála þar sem tekið verði
sérstaklega á kynbundnu ofbeldi.
Í því sambandi er lagt til að kyn-
ferðisbrotakafli hegningarlaga
verði tekinn til heildarendurskoð-
unar og lögð á það áhersla að kyn-
ferðisbrot gegn börnum fyrnist
ekki.“ sagði ráðherra. „Ég hef til-
kynnt allsherjarnefnd og for-
manni hennar að ég hafi hug á því
að vinna úr þessum tillögum.“
Björn kvaðst vita til þess að að-
gerðaáætlunin hefði þegar verið
tekin til umfjöllunar í samráðs-
nefnd um aðgerðir gegn ofbeldi
gegn konum, sem sett hefði verið
á laggirnar 2003 og starfaði í um-
boði félagsmálaráðuneytisins.
„Þessu máli er á þennan veg
farið,“ sagði ráðherra „Ég vil að
litið sé á þessi mál í þessu stóra
samhengi, en menn séu ekki að
taka eitt mál fyrir og síðan ann-
að, heldur hljóti að vera skyn-
samlegt að reyna að ná utan um
málaflokkinn allan og fella þá
fyrningarþáttinn að heildarnið-
urstöðunni.“
jss@frettabladid.is
DÓMSMÁLARÁÐHERRA
Björn Bjarnason hefur hug á að láta vinna úr tillögum sem liggja fyrir í ráðuneyti hans og
taka meðal annars til kynferðisbrotakafla hegningarlaganna. Í tillögunum er lögð áhersla á
að kynferðisbrot gegn börnum fyrnist ekki.
Ráðuneyti skoðar
fyrningarákvæði
Björn Bjarnason vill að litið verði á afnám fyrningar kynferðisbrota gegn
börnum í samhengi, en í ráðuneytinu liggja fyrir tillögur í þeim efnum. Hann
segist taka því vel vísi allsherjarnefnd frumvarpi sama efnis til ráðuneytisins.
Fjögurra prósenta verðbólga og hærri viðskiptahalli:
Spá sex prósenta
hagvexti næstu ár