Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2005, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 28.04.2005, Qupperneq 12
12 28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR VETNISBÍLAR Tilraunaverkefni um vetnisknúna strætisvagna lýkur í sumarlok en frá því að það hófst í október 2003 hafa vetnis- vagnarnir ekið rúmlega 65 þús- und kílómetra. Nú stendur yfir alþjóðleg ráðstefna þar sem nið- urstöður verkefnisins eru kynnt- ar. Af því tilefni var fyrsti vetnisknúni fólksbíllinn fluttur til landsins, Mercedes Bens A- class, sem notar svipaða gerð efnarafala og vetnisvagnarnir og geymir vetni undir þrýstingi. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra segir að stjórnvöld hafi áhuga á því að hér á landi verði haldið áfram að gera tilraunir með vetnisknúna bíla. Hann seg- ir að fyrir Alþingi liggi frumvarp um að virðisaukaskattur verði ekki innheimtur af slíkum bílum nema að hluta til og jafnframt sé til athugunar í efnahags- og við- skiptanefnd að fella hann niður að fullu. „Við getum tekið þátt í ráðgjöf og þróun á þessu sviði. Við erum samfélag sem byggir að veru- legu leyti á endurnýjanlegum orkugjöfum og meira en nokkurt annað land. Því er ljóst að við getum, sem þekkingarsamfélag á þessu sviði, tekið þátt í þessari þróun inn í framtíðina,“ segir Halldór. - sda DÖGG HJALTALÍN Hagnaður Straums fjárfestingarbanka á fyrsta árs- fjórðungi var 4,6 milljarðar króna og er það rúmlega tvöföldun hagn- aðar frá því á sama tíma í fyrra. Hagnaðurinn var í takt við spár bankanna. Stór hluti hagnaðarins skýrist af gengishagnaði af stórum eignarhlutum Straums í TM og Ís- landsbanka. Einnig fékk bankinn tæpa 1,4 milljarða greidda í arð af hlutabréfaeign sinni á fyrsta árs- fjórðungi. Heildareignir bankans í lok mars námu 109 milljörðum króna og höfðu vaxið um 22 prósent frá ára- mótum. Hlutabréfaeign bankans í lok ársfjórðungsins nam 55 millj- örðum króna og er það 129 prósent af eigin fé bankans. Bankinn hefur verið að byggja upp fjárfestingarbankastarfsemi sína og jukust útlán bankans um 25 prósent á fyrsta ársfjórðungi. Straumur hefur fjármagnað hluta- bréfakaup að hluta með lántöku og var vaxtamunur bankans því nei- kvæður á fyrsta ársfjórðungi. ■ Umfangsmesta friðun hér á landi Nú eru á lokastigi umfangsmestu friðunaraðgerðir sem gerðar hafa verið hér á landi. Allt sauðfé í Landnámi Ingólfs verður girt inni í beitarhólfum, en svæðið verður að öðru leyti friðað. Þau 20. til 30.000 tonn af hrossataði sem falla til á höfuðborgarsvæðinu geta farið til uppgræðslu. LANDVERND „Þarna er að verða til stærsta friðaða svæðið á landinu,“ segir Ólafur Dýrmundsson land- nýtingarráðunautur um eitt stærsta átak í landvernd og upp- græðslu hér landi. Á næstunni verður lokið við umfangsmikla girðingarvinnu í Landnámi Ing- ólfs. Þar með verður allt fé á svæðinu lokað inni á sérstökum b e i t a r h ó l f u m . Allt annað land á svæðinu verður friðað. Unnið hefur verið að þessu máli í meira en 20 ár en nú er það á loka- stigi. Svæðið nær allt frá Reykjanestá upp að Kjalarnesi, yfir um Þingvallavatn og að Ölf- usá. Þeir sem eiga hlut að þessu máli eru viðkomandi sveitarfélög, Vegagerðin, Landgræðslan og Bændasamtökin sem veitt hafa ráðgjöf. „Það veit enginn hve stórt þetta svæði er,“ sagði Ólafur, „en þetta eru allavega einhver hund- ruð ferkílómetra. Þarna verða all- ir vegir friðaðir fyrir ágangi fjár. Þá verða stór landsvæði aðgengi- legri til skógræktar og upp- græðslu.“ Ólafur sagði, að á nýafstöðnum aðalfundi Landverndar hefði ver- ið samþykkt ályktun um náttúru- vernd á höfuðborgarsvæðinu. Mikil spjöll hefðu verið unnin utan vega á svæðinu, bæði af tor- færumótorhjólum og bílum. Það vandamál hefði farið vaxandi á síðari árum. Þá væri mikið álag af umferð hesta. Malartekja víða á svæðinu færi illa og í sumum til- vikum hörmulega með landið. „Skipuleggja þarf uppgræðslu og ræktun þessa svæðis til fram- tíðar,“ sagði Ólafur Samtökin Gróður fyrir fólk hafa beitt sér fyrir því að hrossa- tað sem til fellur í hesthúsahverf- unum á þessu svæði verði notað til uppgræðslu. Það hefur verið flutt á urðunarstaði í Álfsnesi. Björn Halldórsson hjá Sorpu tjáði Fréttablaðinu að magnið sem bærist væri 20 – 30.000 tonn á ári. Móttökugjald væri ein króna á hvert kíló. „Núna skapast skilyrði með til- komu þessara girðinga til að nota hrossataðið til uppgræðslu,“ sagði Ólafur. „Það hefur ekki verið hægt til þessa vegna sjúkdóma- varna, þar sem hey hefur verið flutt af ýmsum stöðum í hesthúsa- hverfin. Menn hafa óttast að það gæti dreift riðu. En nú verður hægt að dreifa taðinu á friðuð svæði að teknu tilliti til vatnsbóla og annarra viðkvæmra svæða.“ jss@frettabladid.is ÓLAFUR Til er að verða stærsta svæði landsins friðað með girðingum. HALLDÓR ÁSGRÍMSSON ÓK Í NÝJA VETNISBÍLNUM Í GÆR „Við getum tekið þátt í ráðgjöf og þróun á þessu sviði. Við erum samfélag sem byggir að verulegu leyti á endurnýjanlegum orkugjöfum og meira en nokkurt annað land. Því er ljóst að við getum, sem þekkingarsamfélag á þessu sviði, tekið þátt í þessari þróun inn í framtíðina,“ segir Halldór. LANDNÁM INGÓLFS Fyrsti vetnisknúni einkabíllinn til landsins Halda tilraunum áfram ÚTLÁN AUKAST UM FJÓRÐUNG Þórður Már Jóhannesson. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N SPÁ UM AFKOMU STRAUMS – Í MILLJÓNUM KRÓNA Banki Hagnaður Íslandsbanki 3.132 KB banki 4.460 Landsbankinn 5.265 Hagnaður 4.577 Tekjur af arði 1.400 milljónir Í takt við spár
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.