Fréttablaðið - 28.04.2005, Page 28
Litir
Skemmtilegt getur verið að breyta til frá hinu hefðbundna hvíta matar-
stelli og sleppa sér í fallegum litum. Sterkir og skrautlegir litir geta lífgað
upp á borðið og gert máltíðirnar skrautlegar og skemmtilegar.[ ]
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Plattar með myndum úr
ævintýrunum fást í
Gullkistunni.
200 ára afmæli
H.C. Andersen
GULLKISTAN
Frakkastíg 10 - sími 551 3 60
Kringlunni - sími : 533 1322
12 manna hnífaparasett
m / fylgihlutum.
Verð áður kr. 19.900 • Nú aðeins kr. 12.900
Vandaðar heimilis-
og gjafavörur
Dreymir um góðan hægindastól
Erla Hjördís Gunnarsdóttir
blaðamaður slappar vel af í
sófanum á kvöldin eftir eril-
saman dag.
„Uppáhaldsstaðurinn minn er
annar endinn á hornsófanum, en
þegar ég sest þar er ég virkilega
að setjast til að slappa af og sit
þarna og sauma út yfir sjónvarp-
inu,“ segir Erla Hjördís Gunn-
arsdóttir, blaðamaður á Vikunni,
sem hefur nýlokið barneigna-
leyfi og vinnur nú heima þannig
að dagurinn heima fyrir getur
verið nokkuð erilsamur.
„Það er mjög kærkomið á
kvöldin að setjast niður í sófann
eftir að ég er búin að sinna dótt-
urinni, setja í vél og klára að
vinna,“ segir Erla en bætir við að
ef til vill sé þetta uppáhaldsstað-
urinn sökum þess að það sé svo
gott ljós í horninu fyrir útsaum-
inn.
„Annars er draumurinn að
eignast minn eigin hægindastól,
helst flottan leðurstól, og efast
ég um að ég fengi mér aftur
hornsófa ef ég þyrfti að skipta,“
segir Erla en fljótlega stendur til
að hún flytji ásamt fjölskyldu
sinni í nýtt húsnæði og því aldrei
að vita nema draumurinn um
stólinn verði að veruleika.
„Svo er auðvitað aldrei að vita
að nema maður eignist annan
uppáhaldsstað á nýja staðnum,“
segir Erla.
kristineva@frettabladid.is
Litla ryksugan Roomba
ÞRÍFUR MEÐAN AÐRIR SKEMMTA SÉR.
Tækninýjungar í heimilistækjum eru örar eins og annars staðar og
nú er það litla ryksugan Roomba sem allir verða að eignast.
Hver myndi slá hendinni á móti svona heimilistæki, sjálfvirkri
ryksugu sem sér um hreingerninguna á meðan heimilisfólk-
ið er í vinnunni og allt er hreint og fínt þegar heim er kom-
ið. Nýjasta uppfinning fyrirtækisins IRobot er þetta litla tæki,
eins konar vélmenni sem sér um að þrífa heimilið á meðan
mannfólkið gerir eitthvað annað skemmtilegra. Roomba hefur
verið í örri þróun og nú eru til nokkrar útgáfur af henni en sú nýjasta er Roomba
Discovery. Þessi ótrúlega ryksuga er einungis um 25 cm í þvermál, gengur fyrir raf-
hlöðu og hleður sig sjálf. Ryksugunni fylgir fjarstýring, hleðslutæki, nokkrar síur og
fjöltengingar og hún kostar frá um 10-25.000 kr. Auðvelt er að fá nánari upplýsingar um
Roomba á netinu og panta eina slíka til að hjálpa til við heimilisstörfin ef svo ber undir.
M
YN
D
/H
EI
Ð
A
H
EL
G
AD
Ó
TT
IR
Erla Hjördís Gunnarsdóttir unir sér best í
horninu á sófanum að sauma út.