Fréttablaðið - 28.04.2005, Side 33

Fréttablaðið - 28.04.2005, Side 33
7FIMMTUDAGUR 28. apríl 2005 SKARTHÚSIÐ Laugavegi 12, s. 562 2466 Sendum í póstkröfu Kínaskór! EITT PAR KR. 1290- TVÖ PÖR KR. 2000- Litir: rauðir, bleikir, túrkis, orange, grænir, svartir og hvítir. Einnig mikið úrval af skóm með kínamunstri Ný sending af blóma- skóm kr. 990- Barna- og dömustærðir Tilboð            !"#"  $ %& ' '%& Hvert tískuhús hefur sinn hátt á að skera sig úr, vera einstakt. Þó fylgja þau öll að einhverju leyti straumum og stefnum tímans. Í dag reyna tískuhúsin að skapa sinn eigin heim og mynda nálægð við viðskiptavininn. Tom Ford lét gjörbreyta öllum búðum Yves Saint Laurent sem til voru og þær nýju sem opnuðu undir hans stjórn frá 2000 til 2004 eru í anda hugmyndar sem upprunnin er í einkaíbúðum Yves Saint Laurent sjálfs í París. Ford vildi endur- skapa andrúmsloftið. Bjó til mörg lítil herbergi þannig að við- skiptavinurinn upplifði sig í einkaheimsókn en ekki í verslun. Herbergin eru klædd steini og viði og eru með stórum legu- bekkjum til að setjast á. Við- skiptavinunum er boðið upp á kaffi, gos eða jafnvel kampavín. Þetta var ein af ástæðum þess að upp úr slitnaði milli Francois Henri Pinault, aðaleiganda Gucci group (þriðju stærstu lúxussam- steypu í heimi sem varð til 1999 er hann keypti YSL og sameinaði Gucci ásamt Tom Ford), og fé- laga hans Dominique de Sole. Á endanum hafði Ford eytt öllum peningum YSL-hlutans í búðirnar og Pinault var orðinn langeygður eftir hagnaði. Þess vegna hætti Ford hjá Gucci og YSL á síðasta ári og Pinault keypti hann út úr Gucci. (Ef þið viljið vita meira um Tom Ford, kíkið á bókina Tom Ford eftir Tom Ford frá Assouline útgáfunni.) Tískufræðingar í dag tala um tískuna eins og bylgjur, líkt og jarðskjálfta. Þannig er til dæmis um nýju Prada-búðina í Los Ang- eles, í hjarta jarðskjálftasvæðis- ins í Kaliforníu, sem er draumi líkust, gerð af arkitektunum Rem Koolhaas og Ole Sheeren. Hún hæfir tískuhúsi sem lætur tísku- jörðina titra á hverju ári. Í öðru jarðskjálftalandi er annars konar miðja í nýju Louis Vuitton búð- inni í Omotesando í Tokyo, búð í búð. Í henni miðri er eins konar leyniherbergi, VIP-svæði fyrir mikilvæga viðskiptavini, innsti kjarni tískuhússins. En búðin sjálf er á áttundu hæð og fleiri af merkjum LVMH tískurisans eru í sömu byggingu. Ein hæð er ein- göngu með vörur sem eru í tak- mörkuðu upplagi og tölusettar. Chanel í Japan gengur enn lengra og opnar bráðlega 6000 fermetra turn helgaðan hugar- heimi Chanel með galleríi og tón- leikasal í bland við verslunar- rými. Þar er heil hæð lögð undir einkasali fyrir mikilvæga við- skiptavini. Turninn er gerður úr gráu víravirki og steini í anda tweed-efnisins fræga sem Coco Chanel notaði í dragtir og er enn notað. Ekki tískuhús heldur must- eri. Úr háborg tískunnar BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS Í upptökum tískujarðskjálftans Aftur systur í Lakkrísbúðinni EKKERT AÐ ÓTTAST ÞÓTT SYSTURNAR SÉU FLUTTAR TIL KAUPMANNAHAFNAR. Systurnar Bára og Hrafnhildur Hólm- geirsdætur stofnuðu fatahönnunarfyrir- tækið sitt Aftur árið 2000 eftir að hafa vakið verðskuldaða athygli á tísku- hönnunarkeppninni Futurice. Systurnar reka nú verslun á Nörrebro, sem er eitt skemmtilegasta og vin- sælasta hverfi Kaupmannahafnar. Þar selja þær eigin hönnun í bland við flík- ur eftir aðra hönnuði, glingur og skart og notaðan fatnað. Föt þeirra eru nú seld í Lakkrísbúðinni á Laugavegi, fyrsta sending kom í hús fyrir skömmu og von er á fullt af flottu fönkí stöffi inn- an tíðar. Kjóll kr. 13.900 Kjóll kr. 18.900 Mjaðmaskraut kr. 9.500 Hettupeysa kr. 13.900 Á LAUGARDÖGUM Auglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins -

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.