Fréttablaðið - 28.04.2005, Blaðsíða 44
10 ■■■ { LANDBÚNAÐUR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Myndarlega er byggt á Hóli í Svarfaðardal.
„Ég býst alveg eins við að verða
bóndi. En auðvitað horfir maður á
það hvort sveitirnar verði sterkar í
byggð. Það skiptir svo miklu máli,“
segir Karl Ingi og bætir við: „Það er
ekki skemmtilegt að sjá alla tínast í
burtu og verða einn eftir.“ Hann
segir fólkinu heldur hafa fækkað á
bæjunum frammi í botni dalsins á
síðustu fimm árum. „Þar er snjó-
þyngra og svo bjó þar eldra fólk en
enginn til að taka við. En það er
blómlegur búskapur hér á mörgum
bæjum og sumir búa í dalnum en
sinna öðru, eins og ferðaþjónustu og
verkstæðisvinnu.“
Á Hóli er um 200 þúsund lítra
mjólkurkvóti. Þrátt fyrir að myndar-
lega sé byggt segir Karl Ingi ekki
hafa verið farið út í miklar fram-
kvæmdir síðustu árin og fjósið sé án
nýjustu tækja til mjalta og gjafa.
Hins vegar sé allur vélakostur búsins
góður. „Þar eru nú frekar öfgarnar
en hitt,“ segir hann hlæjandi. „Faðir
minn hefur löngum þótt nokkuð
tækjaglaður!“
Fáeinar ær eru á Hóli. Karl Ingi segir
allt hafa verið skorið niður 1987
vegna riðu og fátt fé hafi verið tekið
aftur. „Menn þorðu ekki að treysta á
sauðfjárræktina,“ segir hann.
Karl Ingi er ánægður í dalnum sínum
og segir þar ágætt félagslíf. Auk þess
skreppi hann til Akureyrar til að
skemmta sér. En hann er ekki viss
um að hann verði bóndi. „Ég veit
ekki alveg hvað verður. Hefðirðu
komið fyrir ári síðan hefði ég örugg-
lega verið með stórar yfirlýsingar en
er aðeins meira hikandi núna,“ segir
hann brosandi.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/G
U
N
Býst eins við að verða bóndi
Hunangsflugan veit hvað vorinu líður. Hún heyrist suða á
hlaðinu á Hóli í Svarfaðardal þar sem blaðamaður hitti
Karl Inga Atlason, 27 ára búfræðing og stúdent, sem sinn-
ir stóru búi með foreldrum sínum.
Hér eru þau hjón Elías og Sigríður með eitt af sínum djásnum, stóðhestinn Blæ
undan Andvara frá Ey og Perlu frá Ási I.
Víðidalur í Húnavatnssýslu
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
un
Snorri Páll er 18 ára nemandi í
Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Hann á heima í Hvammi við
Kjarnaskóg en er að plægja akur í
landi Kropps sem Hvammsbúið hef-
ur aðgang að. Hverju skyldi hann
ætla að sá?
„Faðir minn ætlar að sá byggi hér í
þágu kornræktarinnar,“ segir hann
brosandi og bætir við að þetta sé
fjórða árið sem kornrækt sé stund-
uð í Hvammi.
„Við höfum verið með akrana
heima við en ætlum að færa þá
hingað og því er verið að brjóta
þetta land í fyrsta skipti,“ segir
hann og upplýsir blaðamann um að
í Hvammi sé 40 kúa bú og kýrnar
kunni vel að meta byggið. Það
spari líka kjarnfóðurkaup.
Snorri Páll er á Massey Ferguson
dráttarvél, módel 1998, og segir
hana flott tæki, góða í jarðvinnslu
og hvað sem er. Plógurinn er í eigu
búnaðarfélags sveitarinnar og því
sameign bænda. Hann kann vel við
sig í vélavinnunni og segir jarð-
yrkju mikilvægan part af búskapn-
um sem hann hafi mikinn áhuga á,
enda séu framtíðaráformin þau að
verða bóndi í Eyjafirði. En getur
hann lært eitthvað í búfræði í Verk-
menntaskólanum? „Nei, ekki beint,
en þó læri ég málmiðn þar sem nýt-
ist að vissu leyti. Annars er það
bara Hvanneyri í framtíðinni,“
svarar hann. Áður en hann er
kvaddur er forvitnast um hvort
hann hlusti á útvarpið þegar hann
er á vélinni. „Nei, ég vel mér tónlist
til að hafa í eyrunum. Það eru
Dátar, Nýdönsk og fleira. Eitthvað
íslenskt og gott.“
Eitthvað íslenskt og gott
Kornakrar eru að verða æ algengari sjón í sveitum landsins að sumrinu enda hefur viðr-
að vel til kornræktar síðustu ár. Snorri Páll Harðarson var ónáðaður þar sem hann var
að búa jarðveginn undir sáningu í vesturhlíðum Eyjafjarðarsveitar.
Víðidalurinn í Húnavatnssýslu kemur vel undan vetri eins og aðrar sveitir landsins.
Víðidalsáin bugðast eftir honum miðjum og setur á hann glæsilegan svip. Að
Stóru-Ásgeirsá búa Elías Guðmundsson og Sigríður Magnúsdóttir. Þau reka þar
myndarlegt kúabú og hestakosturinn er ekkert slor, minnast má heimsmeistarans
Gordons sem frá þeim var kominn.
Snorri Páll hefur skýr framtíðaráform. Hann ætlar að verða bóndi í Eyjafjarðarsveit.
Akurinn plægður.