Fréttablaðið - 28.04.2005, Side 62
28. apríl 2005 FIMMTUDAGUR
Ég hef engar áhyggj-
ur af því hvort
Eurovisionlagið hið
íslenska er stolið eða
ekki. Ég hef engar
áhyggjur af því hvort
Ísland nær að vinna
sig upp úr forkeppn-
inni. Ég get engan veginn spáð fyrir
um það hvar við lendum í ár, því ég
hef ekki lagt mig eftir því að heyra
hin lögin. Það er eitthvað svo dásam-
legt að vera svona áhyggjulaus.
Að sjálfsögðu fylgdist ég spennt
með fyrstu árin sem Ísland tók þátt í
keppninni. Man enn hvernig belgíska
lagið var árið sem Gleðibankinn náði
ekki að sigra hug og hjörtu Evrópu-
búa. En á síðari árum hefur áhugi
minn fyrir þessari samevrópsku
keppni dofnað. Ég er ekki frá því að
lögin séu að verða leiðinlegri – og
samhljóma. Það er trúlegra en að
kröfurnar séu að aukast með aldrin-
um. Æskugoðin í Duran Duran eru
enn æðisleg í mínum huga (þó svo að
ég hafi skipt um skoðun varðandi út-
lit kappanna og sjái ekki alveg núna
hvað það var sem ég sá í feimna
trommaranum, Roger Taylor) og
ítalska lagið Gente di mare er enn
magnað.
Nokkur þróun hefur verið í popp-
heiminum síðan 1986, þegar við send-
um Icy-tríóið. Fyrir utan klæðnað
keppenda og útlit hefur þessi þróun
einhvern veginn ekki náð að tryggja
sér sess í lagavali í Eurovision. Það
er komin einhver Eurovision-for-
múla sem allir reyna að fylgja. Það er
líklega ástæðan fyrir því að lögin eru
svona samhljóma og gleymanleg.
Ef einhver verulegur áhugi væri
almennt í álfunni fyrir þessari
keppni væri eitthvað gert til að reyna
að bjarga henni, annað en að búa til
eitthvert barna-Eurovision, sem við
Íslendingar tökum ekki þátt í. Þetta á
að vera dægurlagasöngkeppni, en
voðalega fá af þessum lögum myndu
komast ofarlega á vinsældalista, ef
ekki væri fyrir keppnina sjálfa. „Ef
ég hefði ást þína,“ er dæmigert svo-
leiðis lag. Hefði aldrei svo mikið sem
verið gefið út ef það væri ekki sér-
hannað til að keppa við önnur lög í
sama dúr.
En ég hef ekki áhyggjur af þessu,
vangaveltur um stolin lög geta haldið
áfram fyrir mér. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
SVANBORG SIGMARSDÓTTIR HEFUR MISST ÁHUGANN Á EUROVISION.
Höfum ekki áhyggjur
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Yo Gi Oh á DVD
Tímon og Púmba Umhverfis jörðina á DVD
Tímon og Púmba Á feralagi á DVD
Tímon og Púmba Út að borða á DVD
Incredibles á DVD
Shark tale á DVD
Aðrar DVD myndir
Kippur af Coke
Og margt fleira.
Taktu þátt
þú gætir unnið:
11. hver vinnur.
BTL BTF
á númerið
1900
og þú gætir unnið.
Vinningar verða afhendir
hjá BT Smáralind. Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn
í SMS klúbb. 199 kr/skeytið
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Guð minn góður!
Í alvöru talað!
Dagur án appel-
sínusafa...
...er eins og
dagur án sól-
skins.
Og dagur án sólskins
er eins og...
nótt.
Og dagur sem líður án
þess að vera hafður
að háði og spotti...
..er annarra
manna líf.
Hvernig ætli
lífið sé fyrir
utan?
Ááááááiiiiiiii!
Hannes
beit mig!
Hannes,
það má ekki
bíta fólk.
Ó-Ó að
bíta!
Það má
ekki bíta!
Jafnvel
þótt þú
sért reiður!
Alveg
satt
Alveg
satt
Alveg
satt
Jafnvel þótt sá hinn
sami setji hnetu-
smjör og sultu á
handleginn á sér og
biðji þig um að bíta.
Alveg
sa...
Hvað!
Skiptir
ekki máli.
Það lítur út
fyrir að það
snjói!
Gyðingar eru að drepa
múslima, múslimar drepa gyð-
inga! Kristnir hafa nú bara
drepið hvern sem er og þeg-
ar sjúkir sértrúasöfnuðir,
kaþólikkar og mótmælendur
koma saman verður eitt stórt
blóðbað.
Af hverju
höfum við öll
þessi trúar-
brögð?
Af því að
við erum
hrædd við
að deyja!
Því trúi ég. Amen!