Fréttablaðið - 04.05.2005, Side 48
MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2005 MARKAÐURINN20
H É Ð A N O G Þ A Ð A N
Hjóla í vinnuna
Yfir fögur hundruð lið frá íslenskum fyrirtækjum
taka þátt í hjólaátaki og skilja bílinn eftir heima.
FYRIRTÆKI TIL SÖLU…
SÖLUSKRÁ HÚSSINS ER Á VEF WWW.HUSID.IS
Salómon Jónsson • Löggiltur fasteignasali
Ingvaldur Mar Ingvaldsson • viðskiptafræðingur
ingvaldur@husid.is
LÍTIL HEILDSALA
MEÐ ÁFENGI. Góð
vörumerki á uppleið.
HÚÐMEÐFERÐAR-
STOFA, tilvalið fyrir
snyrtifræðing eða
hjúkrunarfræðing, góð
staðsetning og góð
viðskiptavild.
MATSÖLUSTAÐUR á
mjög góðum stað, góð
hugmynd sem hægt er
að útfæra enn frekar.
HÁRSNYRTISTOFA, 6
stólar, góð rekstrar-
saga, upplagt fyrir eina
til tvær manneskjur.
MATSÖLUSTAÐUR,
tveir staðir, lítið
mannahald og góðar
staðsetningar.
JÓLATRÉSALA, gott
tækifæri fyrir ungt at-
hafnafólk, stutt vertíð
og góð innkoma.
GRILL OG SÖLUTURN
í eigin húsnæði í út-
hverfi borgarinnar.
Staður í góðum rekstri,
20 ára saga.
TIL LEIGU GISTIHÚS
utan höfuðborgar-
svæðið, 17 herbergi og
veitingarrekstur.
Áhugaverður kostur
fyrir þá sem eru með
góðar hugmyndir en
vilja lágmarka áhættu.
GISTIHEIMILI á góð-
um stað í höfuðborg-
inni. Er nú í langtíma-
leigu.
VIÐGERÐAR- OG
DEKKJAVERKSTÆÐI í
fullum rekstri, glæsi-
legt húsnæði, tvær inn-
keyrsludyr, góð stað-
setning. Fín eining fyrir
tvær manneskjur.
Hjólandi fólk er einn af vorboðunum og stendur átakið
Hjólað í vinnuna yfir frá öðrum til þrettánda maí. 242
vinnustaðir um allt land hafa skráð 397 lið til leiks og rík-
ir mikill keppnisandi hjá fjölmörgum liðunum. Aldrei
hafa fleiri lið verið skráð og því mun þátttökumetið falla
þetta árið, líkt og áður, en keppnin er nú haldin í þriðja
sinn. Ellert B. Schram forseti ÍSÍ opnaði Hjólað í vinnuna
formlega og í framhaldinu fluttu Jón Kristjánsson heil-
brigðisráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgar-
stjóri og Ásgeir Eiríksson framkvæmdastjori Strætó BS
hressileg ávörp í tilefni dagsins. Anna Elísabet Ólafsdótt-
ir sló síðan botninn í dagskrána með því að færa Hjólað í
vinnuna sérsaminn söng frá Lýðheilsustöð. - dh
Hjólað í vinnuna
Það er hressandi að hjóla í vinnu,
hreyfa skrokkinn og liðka í senn.
Og í buddunni bata þú finnur
því að bensínið hækkar víst enn.
Fyrir umhverfið umhyggju berðu
og þinn útblástur skaðar ei neitt.
Allt í nærmynd í náttúru sérðu
og nýtur lífsins, já alveg út í eitt.
Þó á hjóli þú ferðist í friði
framtaksemin á Netið er skráð,
því að nú er sko Ísland á iði,
út og suður er baráttan háð.
Hvort sem liðið þitt sigurinn sækir
er að sjálfsögðu ágóðinn vís.
Þú með hjólreiðum heilsuna rækir,
og hlýtur veglegan lífstíðarprís.
Lag: Undir bláhimni.
Texti: Unnur Halldórsdóttir
HRESSANDI AÐ HJÓLA Í VINNU Steinunn Valdís Óskars-
dóttir, borgarstjóri og Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri
Strætó BS.
HJÓLAÐ AF STAÐ Þátttaka hefur aldrei verið meiri
„ÞÚ MEÐ HJÓLREIÐUM HEILSUNA RÆKIR“ Ellert B. Schram, for-
seti ÍSÍ, Anna Elísabet Ólafsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, Jón Krist-
jánsson, heilbrigðisráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri
og Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri Strætó BS.