Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 1
Fetar í fótspor
Völu Matt
ÞÓRUNN HÖGNADÓTTIR:
▲
FÓLK 30
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
BRETLAND, AP Tony Blair, forsætis-
ráðherra Bretlands, flaug til fundar
við George W. Bush Bandaríkjafor-
seta í gær. Meðal þess sem efst
verður á dagskrá viðræðna þeirra
eru útgjöld til þróunarmála í Aust-
ur-Afríku, en Blair er í mikið í mun
að eyða ágreiningi um það mál áður
en leiðtogafundur G8-hópsins hefst
í Skotlandi síðar í þessum mánuði.
Bandaríkjastjórn hét í gær að
veita 674 milljónum Bandaríkja-
dala, andvirði um 43 milljarða
króna, til matvælahjálpar í Erítreu
og Eþíópíu, en það breytir ekki
þeirri andstöðu sem Bush forseti
hefur sýnt viðleitni Blairs til stór-
aukinna útgjalda til þróunaraðstoð-
ar í Afríku. Blair lét hafa eftir sér í
gær að matvælaaðstoðarátak sem
þetta væri velkomið sem slíkt, en
það væri aðeins brot af því sem ráð-
ast yrði í. Sem forysturíki G8-hóps
helstu iðnríkja heims næsta árið
hafa Blair og nýendurkjörin ríkis-
stjórn hans sett á oddinn stefnu sem
miðar að stórefldri aðstoð við Afr-
íku og átaki í baráttunni gegn lofts-
lagsbreytingum af mannavöldum.
Enn frekar en Afríkuaðstoðin er
loftmengunarátakið til þess fallið
að skapa núning við ráðamenn í
Washington. Ef Blair skyldi takast
að telja Bush á að leggja þessum
oddamálum lið yrði það til þess
fallið að varpa jákvæðara ljósi á
pólitískan orðstír Blairs eftir þann
skell sem hann mátti þola vegna
þess hve sú ákvörðun hans að gera
innrás í Írak við hlið Bandaríkja-
manna hefur reynst óvinsæl meðal
breskra kjósenda. Að mati stjórn-
málaskýrenda fer Blair nú til fund-
ar við Bush í vissu um að eiga hönk
upp í bakið á honum, en þetta er í
fyrsta sinn sem leiðtogarnir tveir
hittast eftir naumt endurkjör Bla-
irs fyrir mánuði. ■
Leiðtogafundur Washington í aðdraganda fundar G8-ríkjanna:
Blair leitar stu›nings Bush
Nýtt v
iðski
ptabl
að
með Frét
tablaðinu
alla miðvikudaga
Sögurnar • Tölurnar • Fólkið
Auglýsingasími 550 5000
ÞAÐ STYTTIR UPP SYÐRA Í DAG
EN ÁFRAM verða lítilsháttar skúrir fyrir
norðan. Kólnandi veður um tíma, en áfram
nokkuð hlýtt fyrir austan.
VEÐUR 4
MIÐVIKUDAGUR
8. júní 2005 - 153. tölublað – 5. árgangur
Fersk tónlist úr nýjum
hráefnum
Hiphop-aðdáendur ættu að
flykkjast á Pravda í kvöld þar
sem tónlistarmennirnir Beat-
makin Troopa, PTH, Dj B-Ruff
og Diddi Fel láta ljós sitt skína..
TÓNLIST 23
Enn fleiri forföll hjá
íslenska liðinu
Heiðar Helguson er tæpur
vegna veikinda fyrir lands-
leik Íslands og Möltu í
kvöld. Þetta gætu
orðið enn ein
forföllin í liðinu en
tveir menn meiddust
gegn Ungverjum í
síðasta leik og þrír
fóru í leikbann.
ÍÞRÓTTIR 20-21
Ástand
fiskistofnanna
Sjávarútvegurinn
bíður enn eftir að
spá um auknar
þorskveiðar rætist
en nokkuð virðist í
land með það.
360° 14
Heldur sér
ungri í golfinu
MARGRÉT GEIRSDÓTTIR:
Í MIÐJU BLAÐSINS
● FERÐIR ● NÁM ▲
Landlæknir átelur lækna
fyrir ávísanir á morfín
HEILBRIGÐISMÁL Landlæknisem-
bættið hefur á undanförnum vik-
um og mánuðum haft samband við
hóp lækna og átalið þá fyrir óeðli-
legar ávísanir á morfínlyf og önn-
ur ávanabindandi lyf að sögn Sig-
urðar Guðmundssonar landlækn-
is.
Ýmist fá þeir tiltal eða ádrep-
ur, jafnvel áminningar. Síðast-
nefnda úrræðinu er ekki beitt
nema læknirinn sjálfur sé í vímu-
efnaneyslu af einhverju tagi eða
hann fari langt út fyrir velsæmis-
mörk í starfi sínu. Það sem af er
þessu ári hefur embættið veitt allt
að fjórar áminningar.
„Við höfum haft samband við
lækna sem hafa eitthvað misst
stjórn á sér,“ sagði landlæknir.
„Það verður rætt við fleiri á
næstu dögum og vikum. Við erum
að vinna með gögn sem við höfum
undir höndum úr lyfjagagna-
grunni, til að staðfesta eða af-
sanna orðróm.“
Landlæknir kvaðst ekki geta gef-
ið upp hve marga lækna hefði verið
rætt við né hversu margir hefðu
reynst fara fram úr hófi í tilvísun-
um á verkjalyf og önnur ávanabind-
andi lyf. Málið væri á því stigi þessa
dagana, að starfsmenn embættisins
skiptu með sér að ræða við lækna
og því lægju ekki fyrir samræmdar
tölur enn sem komið er.
Lyfjagagnagrunnur landlæknis-
embættisins hefur nú að hluta til
verið tekinn í notkun. Landlæknir
sagði, að gagnsemi hans væri strax
farin að skila sér. Með tilkomu hans
yrði mun auðveldara að leita uppi
frávik í lyfjaávísunum lækna til
fólks.
„Þetta tæki breytir miklu
varðandi eftirlit, þótt það ráði
ekki við að breyta grunnorsök-
inni, það er að segja af hverju
læknar skrifa út lyf til fíkla,“
sagði landlæknir. „Oft er það
þannig að menn gera þetta af ein-
hvers konar miskunnsemi, því
þeir vorkenna fíklinum. Í öðru
lagi geta fíklarnir talið fólki trú
um hluti sem öðrum tekst ekki.
Læknar geta verið móttækilegir
fyrir því eins og annað fólk. En
það er sem betur fer mjög lítið
um verstu ástæðuna, að læknar
séu að gera þetta til að auka tekj-
ur sínar beinlínis. Ég get ekki
sagt hversu stór sá hópur er, en
hann er til. Sá hópur þarf mest á
því að halda, að tekið sé í lurginn
á honum.“
jss@frettabladid.is
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
VEÐRIÐ Í DAG
TEKUR VIÐ INNLITI – ÚTLITI
TONY BLAIR OG GEORGE W. BUSH
Atlantic Petroleum í Kauphöll:
Færeyskt
félag skrá›
VIÐSKIPTI Atlantic Petroleum
verður skráð í Kauphöll Íslands
15. júní að öllum líkindum. Fé-
lagið verður þar með fyrsta er-
lenda fyrirtækið sem skráir sig
á íslenskan hlutabréfamarkað
og fyrsta færeyska félagið sem
fer á hlutabréfamarkað. Atlant-
ic Petroleum er olíuleitarfélag
sem stundar boranir við Bret-
land og innan færeysku lögsög-
unnar.
Talið er að verðmæti félags-
ins sé um tveir milljarðar króna
en um þrjú þúsund hluthafar
eiga hluti í því. Meðal hluthafa
eru helstu fyrirtæki og stofnan-
ir í Færeyjum.
- eþa / Sjá Markaðinn
MORFÍNFÍKN Fíklar sækjast mjög eftir
contalgin forðatöflum, verkjatöflum sem
innihalda morfín. Þeir leysa þær upp og
sprauta morfíninu í sig. Myndin er sviðsett
Landlæknisembætti› hefur átali› hóp lækna fyrir óe›lilegar ávísanir á morfínlyf og önnur ávanabind-
andi lyf. Sumir fleirra hafa fengi› áminningu. Sérstaklega er teki› í lurginn á fleim læknum sem hagnast
me› flessum hætti. N‡r lyfjagagnagrunnur sannar gildi sitt.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
JÁRNJÓMFRÚIN TRYLLIR LÝÐINN Tónleikar þungarokkshljómsveitarinnar Iron Maiden í Egilshöll með Íslandsvininn Bruce Dickinson í
broddi fylkingar gengu framar vonum. Ekkert alvarlegt bjátaði á hjá tónleikagestum sem skiptu þúsundum. Lögregla sagði umferð við
höllina hafa gengið vel fyrir sig enda er hún reynslunni ríkari eftir síðustu stórtónleika þegar talsverðar umferðartafir urðu.