Fréttablaðið - 08.06.2005, Qupperneq 2
SKIPULAGSMÁL Undirbúningur er
nú hafinn að alþjóðlegri sam-
keppni um framtíðarskipulag
Vatnsmýrarinnar.
„Við teljum að þetta sé ein-
stakt tækifæri til að halda al-
þjóðlega samkeppni um stórt
lykilsvæði í hjarta höfuðborgar,“
segir Dagur B. Eggertsson, borg-
arfulltrúi Reykjavíkurlistans.
„Þetta mál hefur allt til að bera
til að vekja heimsathygli meðal
arkitekta og skipulagsfræðinga.“
Kostnaður við keppnina ligg-
ur ekki fyrir. Stór óvissuliður í
því efni er skipan dómnefnda en
rætt er um að fá stór nöfn úr
arkitektaheiminum til að vekja
áhuga á keppninni erlendis.
Með keppninni vilja menn
gera sér í hugarlund hvað hægt
sé að gera á svæðinu. „Við viljum
ná umræðunni upp úr þeim skot-
gröfum að vera með og á móti
flugvellinum,“ segir Dagur. „Það
er hins vegar mín sannfæring að
hægt sé að finna niðurstöðu sem
langflestir geti sætt sig við, hvar
sem er á landinu.“
„Ég hef ákveðnar áhyggjur af
tímasetningunni sem talað er
um,“ segir Hanna Birna Krist-
jánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálf-
stæðismanna, og fulltrúi þeirra í
stýrihóp um skipulag Vatnsmýr-
arinnar. Hún telur mikilvægt að
forsendur keppninnar séu skýr-
ar til að góður árangur náist. „Nú
standa yfir viðræður borgaryfir-
valda og samgönguyfirvalda um
þetta svæði og í þeim er allt opið.
Það er óheppilegt að efna til sam-
keppni þegar forsendurnar
liggja ekki fyrir.“
Greinilegt er að skipulagsmál
verða ofarlega á baugi í kosn-
ingabaráttunni því á borgar-
stjórnarfundi í gær kynnti Stef-
án Jón Hafstein, borgarfulltrúi
Reykjavíkurlistans, tillögur um
framtíðarbyggð á Vatnsmýrar-
svæðinu með tengingu við Álfta-
nes. Samkvæmt þeim er gert ráð
fyrir að Vatnsmýrin og Álftanes
verði þróuð saman sem ein
heild og tengd saman með
hraðbraut yfir Skerjafjörðinn.
Ekki er langt síðan sjálfstæðis-
menn kynntu sínar tillögur í
skipulagsmálum.
Úrslit í samkeppninni verða
svo kynnt fyrir næstu borgar-
stjórnarkosningar. grs@frettabladid.is
2 8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Deilt á fiskveiðiráðgjöf Jóns Kristjánssonar:
Færeyingar helminga florskvei›arnar
SJÁVARÚTVEGUR Alþjóða hafrann-
sóknaráðið leggur til að dregið
verði úr sókn í þorskstofninn
við Færeyjar um 50 prósent á
næsta ári.
Jakob Rænert yfirmaður
fiskirannsókna í Færeyjum
sagði í samtali við Fréttastofu
útvarpsins í gær að þetta væri
afleiðing ofveiði og rangrar ráð-
gjafar Jóns Kristjánssonar
fiskifræðings. Ef haldið yrði
áfram með sama sóknarþunga
og nú væri hætta á að þorsk-
stofninn færeyski festist varan-
lega í sögulegu lágmarki.
„Þegar ég kom fyrst að Fær-
eyjaráðgjöfinni árið 2001 hafði
Alþjóða hafrannsóknaráðið
mælt með stöðvun ýsuveiða og
30 prósenta fækkun veiðidaga,“
segir Jón Kristjánsson.
„Ég var ósammála og ráð-
lagði óbreytta sókn og stofnarn-
ir stækkuðu. Enn komu fyrir-
mæli um niðurskurð en ekki var
farið eftir því og fjölda fiski-
daga haldið óbreyttum. Enn
stækkuðu stofnarnir og fóru í
sögulegt hámark 2003,“ segir
Jón.
Jón kveðst hafa verið forspár
um framhaldið. „Ég sagði í
skýrslu minni 2003 að þá tæki
þorskstofninn að minnka. Við
vitum ekki hversu löng né djúp
þessi niðursveifla verður, en
það versta sem menn gera þegar
skortur verður á fæðu er að
draga úr veiðum, segir Jón
Kristjánsson.
- jh
BORGARMÁL Guðlaugur Þór Þórðar-
son, borgarfulltrúi sjálfstæðis-
manna, gagnrýnir að Orkuveita
Reykjavíkur ætli sér að fjárfesta í
heilsutengdri ferðaþjónustu eins
og fyrir liggur. „Það er óþolandi
að stjórnarmenn Orkuveitunnar
séu sýknt og heilagt að vasast í
gæluverkefnum sem borgarbúum
er svo sendur reikningur fyrir.“
Orkuveitan vinnur að því í
samvinnu við einkafyrirtæki að
koma meðal annars á fót
baðsvæði að Nesjavöllum á borð
við það sem er í Bláa lóninu í
Svartsengi. Guðlaugur bendir á að
slíkur rekstur samrýmist með
engu móti hlutverki fyrirtækis-
ins. „Þessi rekstur er alls óskyld-
ur starfsemi Orkuveitunar og
þvert á þá stefnu sem sérstök
nefnd, sem skipuð var af R-listan-
um, lagði til að Orkuveitan mark-
aði sér.“
Alfreð Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitunnar, segir
ekkert óeðlilegt við þátttöku í
slíkum rekstri en bendir á að í
þessu tilfelli sé ekki um fjármagn
að ræða heldur fyrst og fremst
land sem fyrirtækið leggur til.
Guðlaugur gefur lítið fyrir það.
„Þeir hafa lýst því yfir að ætla í
þennan rekstur á svipuðum for-
sendum og þeir gera varðandi frí-
stundabyggðina við Úlfljótsvatn
og þar stendur til að taka fullan
þátt í rekstrinum ásamt einkaaðil-
um. Þarna er því um annað og
meira en land að ræða.“ -aöe
Hra›braut yfir Skerjafjör›
Reykjavíkurborg mun í haust efna til samkeppni um framtí›arskipulag Vatnsm‡rarinnar og á henni a›
vera loki› fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Reykjavíkurlistinn vill flróa Vatnsm‡rina og Álftanes sem
eina heild. Sjálfstæ›ismenn segja samkeppnina óheppilega flar sem forsendur eru ekki sk‡rar.
ÍSLANDSVINUR
2.220.000 kr.
2.320.000 kr.
Sedan:
Wagon:
Ver› frá:
Öllum n‡jum Subaru Legacy bílum fylgir nú 50.000 króna
úttekt í Intersport e›a Nevada Bob. Bættu vi› tjaldi, grilli,
golfsetti e›a flugustöng og borga›u ekki krónu!
50.000 króna gjafabréf
Fer›agasgrill fylgir öllum n‡jum Subaru Legacy.
SPURNING DAGSINS
Alfre›, ver›ur fletta Græna
lóni›?
„Það væri ekki vanþörf á grænu lóni.“
Alfreð Þorsteinsson er borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins og stjórnarformaður Orkuveitu Reykja-
víkur. Í fréttum í gær kom fram að Orkuveitan
hygðist útbúa baðsvæði á Nesjavöllum í anda
Bláa lónsins.
ÞORSKAFLI SVEIFLAST Línuritið sýnir sveiflur í þorskafla við Færeyjar undafarin 80 ár.
DAGUR B. EGGERTSSON Borgarfull-
trúi og formaður skipulagsráðs.
FRÁ NESJAVÖLLUM Þar rís í framtíðinni heilsumiðstöð á borð við þá sem er í Bláa lóninu
en gagnrýnt er að Orkuveita Reykjavíkur standi í slíku ásamt einkaaðilum.
Sjálfstæðismenn gagnrýna fyrirhugaða heilsulind:
Enn eitt gæluverkefni›
HANNA BIRNA KRISTJÁNSDÓTTIR
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
REYKJAVÍKURFLUGVÖLLUR Í VATNSMÝRI Hvað væri hægt að gera við þetta landrými?
Garðasókn:
Í lagi a›
fresta fundi
KIRKJUMÁL Óánægja hefur ríkt inn-
an Garðasóknar að undanförnu
með að ekki hafi verið boðað til
aðalsafnaðarfundar eins og lög
kveða á um. Sóknarnefnd ákvað á
fundi sínum á dögunum að fresta
aðalfundinum um óákveðinn tíma
meðan beðið er niðurstöðu kæru-
mála sóknarprests á hendur
nefndinni, presti og djákna.
Nú hefur Biskupsstofa svarað
sóknarnefndinni um hvort löglega
hafi verið að frestuninni staðið og
komst hún að þeirri niðurstöðu að
svo sé. „Almennt verður að telja
að ef málefnalegar ástæður mæla
með því að víkja beri frá megin-
reglu laganna sé ekkert við það að
athuga,“ segir í bréfi til nefndar-
innar frá því í gær. -shg
PÓLLAND
PÓLVERJAR KJÓSA UM STJÓRNAR-
SKRÁRSÁTTMÁLANN Pólverjar
hyggjast halda þjóðaratkvæða-
greiðslu um staðfestingu stjórn-
arskrársáttmála Evrópusam-
bandsins þrátt fyrir að Bretar
hafi frestað sinni kosningu.
Aleksander Kwasniewski forseti
Póllands segir mikilvægt að þjóð-
in fái að segja sína skoðun á sátt-
málanum hvað sem úrslitum ann-
ars staðar líður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FÍKNIEFNI Á FERÐ Lögregla á
Hornafirði lagði hald á níu
grömm af amfetamíni og svipað
magn af hassi við eftirgrennslan
í bíl sem var á leið til bæjarins.
Var ökumaðurinn handtekinn og
sendur til síns heima eftir
skýrslutöku.
HURÐ NÆRRI HÆLUM Ökumaður
þungaflutningabíls þótti heppinn
að bíll hans valt ekki þegar
sturtuvagn sem í bílinn var
tengdur valt þegar verið var að
sturta hlassi í Borgarfirði.
Skemmdist vagninn mikið en
enga sakaði.