Fréttablaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 10
SÆRÐUR ÍRAKI Venju samkvæmt var
róstusamt í Írak í gær. Þannig fórust í það
minnsta 18 manns í þremur sjálfs-
morðsárásum sem gerðar voru nánast á
sama tíma á eftirlitsstöðvar í Hawjia, 240
kílómetra norður af Bagdad.
10 8. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Skert veitingaþjónusta í Viðeyjarstofu:
Loka› á virkum dögum
NEYTENDUR „Þetta var sameiginleg
ákvörðun enda umferð fólks í Við-
ey á virkum dögum mjög lítil,“
segir Jóhannes Stefánsson, eig-
andi Múlakaffis, sem mun reka
veitingasölu í Viðeyjarstofu um
helgar í sumar. Er það talsverð
breyting frá því sem verið hefur
undanfarin ár þegar veitingar
hafa verið í boði alla daga.
Rekstraraðilar Viðeyjarferj-
unnar eru meðal þeirra sem gagn-
rýnt hafa þessa ákvörðun borg-
arminjavarðar, Guðnýjar Gerðar
Gunnarsdóttur, en skammt er síð-
an fram fór útboð vegna ferjusigl-
inga til eyjarinnar og kom ekki
fram þar að veitingarekstur yrði
aðeins um helgar. Slíkt setur eðli-
lega þeim fjölda fólks skorður,
sem áhuga hefur á að skreppa yfir
sundið, og hafa allnokkrir erlend-
ir ferðamenn sem komið hafa að
lokuðum dyrum Viðeyjarstofu
lýst yfir furðu sinni á þessu.
Þeim er sækja eyjuna heim
hefur fækkað um tæpan helming
á tíu árum og er þessi ákvörðun
ólíkleg til að auka straum ferða-
manna til þessarar náttúruperlu.
-aöe
Skorrdælir ekki
teknir silkihönskum
Skorrdælingar mega flakka fyrir ef börn fleirra fá pláss í leikskólanum flegar
eftirspurn eftir leikskólaplássi eykst. Nágrannarnir hyggjast beita flá hör›u eft-
ir a› fleir höfnu›u sameiningu.
SAMEININGARMÁL „Það verður ekki
tekið á Skorrdælingum með neinum
silkihönskum þegar kemur að því
að endurmeta þá samstarfssamn-
inga sem við eigum við þá,“ segir
Helga Halldórsdóttir forseti bæjar-
stjórnar Borgarbyggðar. Hún segir
að Borgarbyggð hagnist ekki á
þessu samstarfi og því verði það
endurskoðað þegar þjónustusamn-
ingarnir renna út.
Skorrdælingar höfnuðu samein-
ingu við fjögur sveitarfélög norðan
Skarðsheiðar öðru sinni um síðustu
helgi með 26 atkvæðum gegn 17
sem er mjög svipuð niðurstaða og í
sameiningarkosningunum í apríl
síðastliðnum.
Skorradalshreppur hefur hingað
til keypt ýmsa þjónustu frá ná-
granna sveitarfélögunum en nú
virðast flestir sveitarstjórnarmenn
þar ekki vera jafn jákvæðir og áður
fyrir því að selja Skorrdælingum þá
þjónustu.
Skorradalshreppur er með
samning við Borgarfjarðarsveit
sem tryggir skorrdælskum ung-
mennum skólavist í grunnskólanum
næstu níu árin. Enginn slíkur samn-
ingur er þó til um leikskólabörnin.
Sveinbjörn Eyjólfsson oddviti í
Borgarfjarðarsveit segir að ef til
þess komi að pláss verði ónæg fyrir
börn á leikskólanum Andabæ verði
Skorrdælingar að finna annan leik-
skóla til að vista börn sín í. „Börn í
sveitarfélaginu sem vinnur að upp-
byggingunni ganga að sjálfsögðu
fyrir,“ segir Sveinbjörn.
Margt bendir því til þess að fé-
lagsmálaþjónusta, brunavarnir,
menntamál, skipulagsmál og önnur
þjónusta í Skorradalshreppi komist
í uppnám þegar samstarfssamning-
arnir verða endurmetnir á næstu
árum.
Davíð Pétursson oddviti í
Skorradalshreppi segir að ef til þess
komi að nágrannasveitarfélögin
hætti að selja þeim þjónustu verði
tekist á við það þegar að því kemur.
Hann segir að ótti fólks um að
skipulags- og umhverfismál í
Skorradal hefðu verið sett á hakann
í nýju sveitarfélagi hafi ráðið mestu
um það að Skorrdælingar höfnuðu
sameiningunni.
Að sögn Helgu halda hin sveitar-
félögin fjögur sameiningarferlinu
áfram en Skorrdælinga verði þó
sárt saknað. jse@frettabladid.is
Óvenjuleg handtaka:
Stö›va›i
bílinn sinn
BANDARÍKIN, AP Bandarískur lög-
reglumaður á frívakt lenti í
þeirri undarlegu stöðu að mæta
bílnum sínum sem stolið hafði
verið frá honum nokkru áður.
Hann gerði sér lítið fyrir og
framdi borgaralega handtöku á
þeim þremur sem í bílnum voru
með því að aka í veg fyrir bílinn
og draga þá út. Hann hafði svo
samband við kollega sína á lög-
reglustöðinni sem komu og
færðu bílþjófana þrjá í fanga-
geymslur. Þeir voru að vonum
heldur skömmustulegir enda
höfðu þeir ekki búist við að hitta
eigandann við þessar aðstæður.■
MÓTMÆLI Í ADDIS ABABA Þúsundir mót-
mæla nú kosningaúrslitum í Eþíópíu.
Óeirðir í Eþíópíu:
Kosningum
mótmælt
EÞÍÓPÍA, AP Sérsveitir eþíópísku lög-
reglunnar hafa barið niður mót-
mælendur af mikilli hörku undan-
farna tvo daga. Mótmælendurnir
hafa safnast saman til að mótmæla
því sem þeir vilja meina að hafi ver-
ið víðtækt kosningasvindl stjórnar-
flokksins í þingkosningum sem
haldnar voru í landinu á dögunum.
Lítil stúlka lést þegar til bardaga
kom á milli lögreglu og mótmælenda
en auk þess hafa tugir manna særst.
Lögregla hefur beitt táragasi, kylf-
um og gúmmíkúlum á mótmælend-
ur, sem kastað hafa grjóti á móti. ■
AÐEINS FJÓRÐI HVER BLÓÐGJAFI ER KONA. HÉR ER EKKI
VANÞÖRF Á AÐ HEFJA BLÓÐI DRIFNA JAFNRÉTTISBARÁTTU
SEM ÞÓ BJARGAR MANNSLÍFUM. ERTU MEÐ ÞETTA Í BLÓÐINU?
OKKUR
BLÓÐLANGAR
Í JAFNRÉTTI
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
O
G
V
2
84
26
06
/2
00
5
HELGA HALLDÓRSDÓTTIR Helga Halldórs-
dóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar
segir að inn við beinið hafi hún svolítið
gaman af þráheldni Skorrdælinga. Það
breytir því þó ekki að Skorrdælingar verða
eflaust teknir á beinið þegar kemur að
endurnýjun þjónustusamninga.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
N
S
IG
U
RÐ
U
R
LOK LOK OG LÆS Þeir sem hug hafa á að
skoða sig um í Viðey á virkum dögum
ættu að taka með sér nesti enda ekkert
annað í boði þar í sumar.
ENDURBÆTUR VIÐ LEIRUTJÖRN
Hafnar eru framkvæmdir við ann-
an áfanga endurbóta á umhverfi
Leirutjarnar á Reyðarfirði. Á vef
Fjarðabyggðar kemur fram að í
fyrra hafi verið gengið frá austur-
hluta svæðisins, sáð í það og plant-
að. „Nú verður unnið við að forma
landið meðfram Hjáleiðinni, við
hringtorgið og við innkeyrsluna í
bæinn,“ segir þar.
STAL NÆRBUXUM NÁGRANNANS
Karlmaður frá bænum Warren í
Michigan hefur verið kærður
fyrir að brjótast inn til nágranna-
konu sinnar og stela nokkrum
nærbuxnapörum. Konan greip
hann við iðju sína í svefnherbergi
hennar. Við húsleit hjá manninum
fundust fleiri kvennærbuxur.
AUSTFIRÐIR
BANDARÍKIN
DODGE BROTHER 1923 Ferðamenn geta
skoðað þennan elsta bíl landsins í hvert
sinn sem ferðin liggur um Selfoss.
Keyptu elsta bíl landsins:
Elsti bíllinn
á Selfossi
BÍLASALA „Með þessu móti höldum
við þessum elsta bíl landsins í þeim
mikla bílabæ Selfossi,“ segir Hilm-
ar Pálsson, en hann keypti um helg-
ina ásamt félaga sínum Sigurði
Karlssyni, elsta bíl landsins.
Bíllinn er Dodge Brother árgerð
1923 en hann var keyptur til lands-
ins og gerður upp 1993 af Sverri
Andréssyni á Selfossi. Mun bíllinn
verða til sýnis á bílasölu þeirra fé-
laga, Betri bílar, um ókomna tíð en
hann er vel gangfær og eins og nýr
segja þeir sem ekið hafa. Þeir félag-
ar vildu ekki gefa upp kaupverðið
en segja það engu máli skipta. Fyr-
ir öllu sé að bíllinn verði áfram á
Selfossi en ekki seldur annað. ■