Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 18
Dagbók
Við gerð lokaverkefna er tilvalið að halda dagbók. Þar er hægt að skrifa niður allar þær
hugmyndir sem kvikna í ferlinu og ætíð hægt að grípa til hennar ef manni finnst ekkert
miða áfram. [ ]
Nýir og glæsilegir nemendagarðar FSu
Umsóknir vegna haustannar 2005
Nýir nemendagarðar Fjölbrautaskóla Suðurlands voru teknir í
notkun í byrjun janúar 2005. Um er að ræða 32 tveggja manna
smáíbúðir í tveggja hæða byggingu að Eyravegi 26 á Selfossi.
Íbúðirnar eru leigðar með húsgögnum og nauðsynlegum tækjum,
þ.m.t. eldavél, ísskáp, örbylgjuofni og sjónvarpi auk tengingar við
tölvunet skólans. Í sameiginlegu rými er geymsluaðstaða og
þvottahús með þvottavélum og þurrkurum.
Gert er ráð fyrir að nemendur á görðunum eigi rétt á húsaleigubótum og,
eftir atvikum, náms- og dvalarstyrk frá Lánasjóði íslenskra námsmanna.
Sérstakur umsjónarmaður hefur eftirlit með nemendagörðunum.
Innritun í skólann stendur yfir en námsframboðið er mjög fjölbreytt.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, og
jafnframt á vef skólans, www.fsu.is
Umsóknir þurfa að berast skrifstofu skólans eigi síðar en 16. júní 2005.
Sigurður Sigursveinsson
skólameistari
Umsóknarfrestur vegna skólavistar
2005-2006 rennur út 14. júní nk.
Framhaldsskólinn á Laugum er heimavistarskóli
í sveit, um 60 km frá Akureyri og 40 km frá
Húsavík. Heimavistaraðstaða er með því besta
sem gerist. Boðið er upp á 4 námsbrautir:
félagsfræðibraut, íþróttabraut, náttúrufræði-
braut og almenna námsbraut.
Á Laugum er öflugt félagslíf, nemendur gefa út
blöð og stjórna staðbundinni sjónvarpsstöð.
Leiklist er metin til eininga í námi og á Laugum er
boðið upp á frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunar.
Skólinn rekur kvikmyndahús sem sýnir einu sinni
í viku. Í herbergjum á heimavistum er boðið upp
á internet og síma.
FRAMHALDSSKÓLINN Á LAUGUM
Allar upplýsingar á og í síma
www.laugar.is 464-3112
Níundubekkingar fá inngöngu í MA
Menntaskólinn á Akureyri nýtir sér kosti bekkjakerfisins til að koma til móts við þarfir nemenda.
Menntaskólinn á Akureyri
býður í haust upp á nýja bók-
námsbraut. Brautin er ætluð
duglegum nemendum sem lok-
ið hafa námi í 9. bekk og vilja
komast í framhaldsskóla ári á
undan jafnöldrum sínum.
Þótt Menntaskólinn á Akureyri
byggi á aldagamalli hefð hefur
skólinn ávallt lagt metnað sinn í
að vera framsækinn og nýjunga-
gjarn. Það nýjasta sem skólinn
býður upp á er svokölluð Almenn
bóknámsbraut 1 sem tekur til
starfa í haust. Um er að ræða
eins árs prógram fyrir duglega
nemendur sem lokið hafa 9. bekk
og vilja flýta fyrir sér með því að
taka námsefni 10. og 1. bekkjar á
einum vetri.
Jón Már Héðinsson, skóla-
meistari MA, segir að nýja náms-
brautin sé í rauninni svar
bekkjaskólanna við breyttu
námsumhverfi. „Nú er mikið tal-
að um þessi fljótandi skil á milli
grunnskóla og framhaldsskóla
og undanfarin ár hefur nemend-
um í 10. bekk gefist kostur á að
taka einn og einn áfanga á fram-
haldsskólastigi samhliða námi í
10. Bekk. Bekkjaskólar eins og
MA geta lítið tekið þátt í þeirri
þróun en með þessu verkefni
reynum við að breyta því og nýt-
um okkur um leið kosti bekkja-
kerfisins,“ segir Jón Már. „Við
sóttum um þetta sem fjögurra
ára tilraunaverkefni til mennta-
málaráðuneytisins og fengum
mjög góð viðbrögð þar. Það sem
kannski er byltingakenndast í
þessu er það að ráðuneytið skuli
samþykkja að meta einkunnir úr
9. bekk sem fullgilt grunnskóla-
próf en það er mikil viðurkenn-
ing fyrir grunnskólann.“
Á almennri bóknámsbraut 1
taka nemendur sömu áfanga og
kenndir eru á fyrsta ári í MA en
samhliða því ljúka þeir viðfangs-
efnum 10. bekkjar. Kennt verður
í einum 15 manna bekk sem
fylgist að allan veturinn en að
því loknu geta nemendur sest í 2.
bekk og haldið áfram hefð-
bundnu námi á þeirri námsbraut
sem þeir kjósa.
Þótt námsefni 10. og 1. bekkj-
ar sé blandað saman með þessum
hætti telur Jón Már ekki hætt við
að yfirferðin verði of mikil. „Það
er mikil skörun milli námsefnis í
10. og 1. bekk og dágóður tími fer
í upprifjun í 1. bekk. Vissulega
þarf að bæta einhverju við en
skammturinn verður alls ekki
tvöfaldur og þessir nemendur
koma ekki til með að þurfa að
vera meira í skónum en aðrir.
Þar sem hópurinn er lítill gefst
góður tími til að sinna hverjum
og einum og auk þess ætlum við
að bjóða upp á heimanámsað-
stoð.“
Dugmiklir níundubekkingar
sem þessa dagana taka við ein-
kunnum sínum úr grunnskóla
geta enn sótt um skólavist í MA.
Umsóknarfrestur rennur út þann
14. júní og hægt er að nálgast
umsóknareyðublöð á vef skólans:
www.ma.is
thorgunnur@frettabladid.is
Jón Már Héðinsson, skólameistari MA,
segir mikinn áhuga fyrir nýja náminu.
Nemendur í sumarskólanum
koma úr flestum framhaldsskól-
um landsins og flestir eru þar til
að flýta fyrir sér í námi, að sögn
Magnúsar Ingvasonar skóla-
stjóra. Einnig segir hann þann
hóp fara stækkandi sem komi í
skólann vegna falls á samræmdu
prófi. „Við erum alltaf að sjá tölu-
vert fall í stærðfræði og mér
finnst óeðlilegt að það skuli vera
svona mikið ár eftir ár. Ég held að
það þurfi að endurskoða þessi
próf eða kennsluna eitthvað,“ seg-
ir hann. Eina af ástæðunum segir
hann vera þá að unglingarnir séu
stressaðir fyrir stærðfræðiprófið
og mikli það stundum fyrir sér. „Í
ofanálag hafa birst fréttir í fjöl-
miðlum um að framhaldsskólarn-
ir geti ekki tekið við öllum þeim
nemendum sem sækja um skóla-
vist á haustin. Það eitt og sér
skapar óvissu hjá mörgum nem-
enda svo ekki sé talað um for-
eldra þeirra og forráðamenn,“
segir Magnús.
Sumarskóli FB tók til starfa í
lok maí og kennt er frá 17.30 til
22.10 á virkum dögum. Þar eru
kenndir 67 áfangar en nám fyrir
þá sem gekk ekki sem skyldi á
samræmdu prófunum hefst í dag,
8. júní. Ennþá er hægt að innrita
sig í skólann en áhugasömum er
bent á frekari upplýsingar á
www.fb.is eða í síma 570-562. ■
Mikil ásókn í sumarskóla á vegum FB
Sumarskóli er starfræktur í Fjölbraut Breiðholti eins og undanfarin tólf sumur. Sífellt fjölgar
þeim sem nýta sér þennan möguleika til náms og í sumar eru þar um 700 nemendur.
Tveir af umsjónarmönnum Sumarskóla Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Torfi Magnússon og
Magnús Ingvason.