Fréttablaðið - 08.06.2005, Side 26
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
Framkvæmdastjórar tíu stærstu
lífeyrissjóðanna, að stjórnendum
Almenna- og Frjálsa lífeyrissjóðs-
ins undanskildum, voru með mán-
aðarlaun á bilinu 562.000-
1.912.000 krónur á síðasta ári
samkvæmt ársreikningum sjóð-
anna. Meira en þrefaldur munur
var á launum þess hæst launaða
og þess lægst launaða. Laun
starfsmanna Almenna lífeyris-
sjóðsins og Frjálsa lífeyrissjóðs-
ins eru greidd af Íslandsbanka
annars vegar og KB banka hins
vegar og er ekki greint frá launa-
kjörum framkvæmdastjóranna í
ársskýrslum viðkomandi lífeyris-
sjóða.
Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri
Lífeyrissjóðs verzlunarmanna,
fékk tæpar 23 milljónir króna í
árslaun á síðasta ári og var launa-
hæstur af stjórnendum í tíu
stærstu sjóðunum. Mánaðarlaun
hans voru að jafnaði um 1.900
þúsund krónur. Jóhannes Sig-
geirsson, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Sameinaða lífeyris-
sjóðsins, kom næstur með fimmt-
án milljónir króna í árslaun (1.253
þúsund á mánuði) og Margeir
Daníelsson, framkvæmdastjóri
Samvinnulífeyrissjóðsins, var í
þriðja sæti. Hann fékk 13,8 millj-
ónir í laun á síðasta ári (1.153
þúsund á mánuði).
Laun stjórnarformanna á mán-
uði námu að meðaltali 56.500-
171.946 krónum. Stjórnarformað-
ur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna,
Víglundur Þorsteinsson, fékk
hæstu stjórnarlaunin á liðnu ári.
Árslaun hans námu rúmum
tveimur milljónum króna. Marí-
anna Jónasdóttir, formaður
stjórnar LSR, fékk 1.351 þúsund
krónur í árslaun og Þorbjörn Guð-
mundsson, stjórnarformaður
Sameinaða lífeyrissjóðsins, fékk
1.218 þúsund krónur fyrir störf
sín í þágu sjóðsins á síðasta ári.
Björn Snæbjörnsson, hjá Líf-
eyrissjóði Norðurlands, fékk
lægstu launin fyrir stjórnarfor-
mennsku; 678.000 krónur á síð-
asta ári.
Þegar öll laun stjórnar og
framkvæmdastjóra eru tekin
saman er ljóst að Lífeyrissjóður
verzlunarmanna greiðir hæstu
launin en alls greiddi sjóðurinn
um 32 milljónir í fyrra. Sameinaði
lífeyrissjóðurinn kemur næstur
með heildarlaun upp á tæpar tutt-
ugu milljónir. Lífeyrissjóður
bankamanna greiðir lægstu upp-
hæðina eða 10,6 milljónir króna.
Vika Frá áramótum
Actavis 1% 6%
Atorka 0% 2%
Bakkavör 1% 46%
Burðarás 5% 23%
Flaga Group 0% -19%
FL GROUP 1% 47%
Íslandsbanki 3% 20%
Kaupþing Bank hf. 2% 21%
Kögun -1% 30%
Landsbankinn 1% 36%
Marel 0% 14%
Og fjarskipti -2% 25%
Samherji 0% 9%
Straumur 1% 25%
Össur 0% 1%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Þorgeir Eyjólfs-
son launahæstur
Yfir þrefaldur munur var á árstekjum lægst og hæst launuðu fram-
kvæmdastjóranna. Víglundur Þorsteinsson fékk hæstu stjórnar-
launin. Lífeyrissjóður verzlunarmanna greiðir besta kaupið.
410 4000 | www.landsbanki.is
Við færum þér fjármálaheiminn
Nú býðst þér að eiga milliliðalaus verðbréfaviðskipti með E*TRADE í gegnum
netið á stærsta verðbréfamarkaði heims, Wall Street í Bandaríkjunum, og á
mörkuðum í Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku.
Kynntu þér málið á www.landsbanki.is
Fari sjávarútvegsráðherra að ný-
birtum tillögum Hafrannsókna-
stofnunarinnar um hámarksafla
munu áhrifin á hagkerfið verða
óveruleg, segir á vef greiningar-
deildar Íslandsbanka.
Verðmæti sjávaraflans mun
aukast lítillega á heildina litið og
sömuleiðis tekjur af útflutningi
vöru og þjónustu. Stofnunin ráð-
leggur að þorskkvótinn verði
minnkaður um 7 þúsund tonn en
að ufsa- og ýsukvóti verði auk-
inn.
Gert er ráð fyrir að heildar-
aflaverðmætið aukist um 380
milljónir króna.
Tillögur Hafrannsóknastofn-
unar eru í samræmi við vænting-
ar og því voru áhrifin á fjármála-
markaðinn lítil sem engin er til-
lögurnar voru birtar. - jsk
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Þrír fyrstu fjárfestahóparnir
dvelja alla þessa viku í svoköll-
uðu gagnaherbergjum Símans í
húsnæði Ríkissáttasemjara og
undirbúa gerð bindandi tilboða í
fyrirtækið. Fær hver hópur að-
gang að einu slíku herbergi sem í
eru staflar af möppum sem
geyma ítarlegar upplýsingar úr
rekstri Símans. Í hverju herbergi
mega mest vera tíu einstaklingar
og er fylgst með að engin gögn
séu ljósrituð. Allar upplýsingar
verður að handskrifa.
Endurskoðendur, sem voru að
aðstoða fjárfestana í gær, sögðu
að nú væru fulltrúar frá KPMG
endurskoðun, Pricewaterhou-
seCoopers og Deloitte á Íslandi
uppteknir við gerð áreiðan-
leikakannana.
Tólf fjárfestahópum var boðið
að halda áfram á seinna stig sölu-
ferilsins með það fyrir augum að
undirbúa bindandi kauptilboð. Í
sex þeirra eru einungis erlendir
aðilar. Næstu fjórar vikurnar
munu hóparnir fá aðgang að
gagnaherberginu en einungis
þrír í einu. Stefnt er að því að til-
boðsfrestur renni út í lok júlí.
Einn endurskoðandinn sagði
gögnin um Símann aðgengileg og
nokkuð ítarleg. Spurður hvers
kyns þau væru sagði hann möpp-
urnar geyma samþykktir félags-
ins, tölur úr rekstri, fjölda samn-
inga og upplýsingar um deilur og
dótturfélög. Mikil vinna væri að
fara í gegnum nauðsynlegar
möppur enda áætlað að hver hóp-
ur gæti dvalið í gagnaherberginu
frá klukkan níu til sex fimm daga
vikunnar. Þá væru fyrirhugaðir
fundir með æðstu stjórnendum
Símans.
Eimskipafélag Íslands hefur gert
samning um smíði tveggja full-
kominna frystiskipa með mögu-
leika á fjórum skipum í viðbót.
Dótturfélag Eimskips í Noregi,
CTG, mun annast allan rekstur
þessara skipa.
Flutningsgeta CTG í frysti- og
kæliflutningum mun tvöfaldast.
CTG flytur um þriðjung af sjáv-
arafurðum Eimskips á Norður-
Atlantshafi.
Aukin áhersla á flutning sjáv-
arafurða á brettum gerir skip
sem þessi spennandi valkost að
því er segir í fréttatilkynningu
frá Eimskip.
Kaupverð þessara tveggja
skipa er samtals um 2,6 milljarð-
ar íslenskra króna og verða þau
smíðuð í Noregi og afhent í janú-
ar 2007 og apríl 2007.
Innan skamms fær félagið af-
hent tvö ný frystiskip sem samið
var um í fyrra og því eru alls
fjögur ný frystiskip í smíðum
fyrir Eimskip.
Skipin munu geta borið 1800
bretti og fjórtán 45 feta gáma á
þilfari. -dh
Eimskip lætur smíða tvö frystiskip
Áhrif tillagna Hafró lítil
Fjárfestar lokaðir inni
í gagnaherbergjum
Bjóðendur í Símann liggja þessa dagana yfir
stöflum af möppum sem geyma ítarlegar upplýs-
ingar um fyrirtækið.
Aker Seafoods hefur samið við
Íslandsbanka og DnB NOR um
endurfjármögnun á samstæð-
unni. Samningurinn miðar við
lántöku í heildina upp á 1,3 millj-
arða norskra króna. Auk skulda-
bréfaútboðsins að jafngildi 400
milljóna norskra króna mun
DnB NOR veita Aker Seafoods
veðlán upp á 800 milljónir
norskra króna til tíu ára.
Íslandsbanki hefur sölu-
tryggt fjögurra milljarða króna
skuldabréfaútboð fyrir Aker
Seafoods og voru þau seld til
nær tuttugu íslenskra stofnana-
fjárfesta. Með skiptasamningi
við Íslandsbanka fær útgefand-
inn til fimm ára 400 milljónir
norskra króna. Skuldabréfa-
flokkurinn er verðtryggður og
verður skráður í Kauphöll Ís-
lands. Hlutabréf Aker Seafoods
voru nýverið skráð í norsku
kauphöllinni. - dh
ÞORGEIR
EYJÓLFSSON
Launahæstur fram-
kvæmdastjóra tíu
stærstu lífeyrissjóð-
anna. Hafði um tvær
milljónir í laun á
mánuði.
FISKI LANDAÐ Fari sjávarútvegsráðherra
að tillögum Hafró um hámarksafla munu
áhrifin á hagkerfið verða óveruleg.
ÍSLANDSBANKI TEKUR ÞÁTT Í FJÁR-
MÖGNUN AKER SEAFOODS Hlutabréf
félagsins voru nýlega skráð í norsku kaup-
höllina.
Íslenskir fjárfestar kaupa
skuldabréf í Aker Seafoods
Íslandsbanki sölutryggir og selur fjögurra millj-
arða króna skuldabréfaútboð.
HÚS RÍKISSÁTTASEMJARA Innan veggja
þessa látlausa húss við Borgartún sitja ráð-
gjafar fjárfesta bak við luktar dyr og grand-
skoða upplýsingar um rekstur Símans.
Ofbeldi selur ekki
Rannsókn The Dove Foundation, sem eru samtök sem hvetja til
framleiðslu fjölskylduvænna kvikmynda, sýnir að mun gróðavæn-
legra er að framleiða myndir sem ætlaðar eru
börnum í fylgd með foreldrum en þær sem
bannaðar eru innan sextán ára aldurs.
Alls voru rannsakaðar 2.982 kvikmyndir.
Hagnaður af meðal fjölskyldumynd var 560
milljónir króna, en tap mynda sem bannaðar
voru innan sextán ára aldurs var 42 milljónir að
meðaltali.
„Við höfum sýnt fram á það að ofbeldi selur
ekki. Sú hugmynd á sér ekki stoð í raunveruleik-
anum,“ sagði Dick Rolfe, stofnandi Dove Founda-
tion. - jsk
FJÖLSKYLDUVÆN SKEMMTUN Ný rannsókn sýnir
að betur gengur að selja fjölskylduvænar myndir en
þær sem innihalda ofbeldi.
Á R S L A U N F R A M K V Æ M D A S T J Ó R A
T Í U S T Æ R S T U L Í F E Y R I S S J Ó Ð A N N A *
Árslaun** Ávöxtun***
Þorgeir Eyjólfsson Lífeyrissjóður verzlunarmanna 22,96 12,1%
Jóhannes Siggeirsson Sameinaði lífeyrissjóðurinn 15,05 6,7%
Margeir Daníelsson Samvinnulífeyrissjóðurinn 13,84 15,5%
Bjarni Brynjólfsson Lífeyrissjóðurinn Framsýn 12,76 13,6%
Haukur Hafsteinsson LSR 11,61 9,3%
Friðjón Rúnar Sigurðsson Lífeyrissjóðurinn Lífiðn 11,21 9,1%
Árni Guðmundsson Lífeyrissjóður sjómanna 11,18 16,4%
Kári Arnór Kárason Lífeyrissjóður Norðurlands 10,36 13,3%
Sigurbjörn Sigurbjörnsson Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 8,00 10,1%
Sigtryggur Jónsson Lífeyrissjóður bankamanna 6,75 8,5%
* Almenni lífeyrissjóðurinn og Frjálsi lífeyrissjóðurinn eru ekki taldir með
** Árslaun í milljónum
*** Raunávöxtun sjóðsins 2004