Fréttablaðið - 08.06.2005, Side 31
Hafðu samband við fyrirtækjaráðgjöf Og Vodafone í síma 599 9500 eða sendu tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
85
72
05
/2
00
5
Það eru ekki endilega þeir stóru
sem éta þá smáu.
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 7
Ú T L Ö N D
Alan Greenspan, seðlabanka-
stjóri Bandaríkjanna, mun mæta
á fund þingnefndar á fimmtudag
til að ræða horfur í efnahagsmál-
um.
Undanfarið hafa birst fréttir í
Bandaríkjunum af slæmu
ástandi hagkerfisins, fækkun
nýrra starfa og minnkandi vexti í
iðnaðar- og þjónustugeirum, og
mun ræða Greenspans því vekja
enn meiri athygli en ella.
Staða efnahagsmála er þó
betri en margir vilja meina, en
örlítið hefur hægst á hagvexti
undanfarið.
Vonast menn í fjármálaheim-
inum til þess að Greenspan
freistist ekki til að boða hækkun
stýrivaxta. Gangi það eftir er lík-
legt að hlutabréfamarkaðurinn
taki við sér á ný eftir erfiðar und-
anfarnar vikur.
Lítið er vanalega um viðskipti
á meðan beðið er eftir ræðu
Greenspans en um leið og fundur
er settur færist fjör í leikinn. Al-
gengt er að gengi hlutabréfa
sveiflist ótt og títt á meðan
Greenspan talar, enda hefur
hvert orð af hans vörum áhrif á
gengi bréfa. - jsk
Hlutabréf á sádi-arabíska hlut-
bréfamarkaðnum féllu í verði um
tæpt eitt prósent eftir að fréttir
bárust af veikindum Fahds kon-
ungs. Þrátt fyrir þetta segja sér-
fræðingar langtímahorfur mark-
aðarins góðar.
Konungurinn var lagður inn á
spítala fyrir nokkru með lungna-
bólgu og háan hita: ,,Það er slæmt
fyrir markaðinn að konungurinn
sé veikur,“ sagði hagfræðingur-
inn Fawad Rizvi og bætti svo við:
,,En þetta ætti nú ekki að skipta
máli til langs tíma litið. Abdullah
krónprins ræður hvort eð er öllu
sem hann vill ráða og hefur gert í
tíu ár.“
Sádi-arabískir embættismenn
segja konunginn á batavegi. - jsk
Pervez Musharraf,
forseti Pakistans,
segir að Pakistanar
og Indverjar verði
að grafa stríðsöxina
og einbeita sér að
því að byggja upp
sterkari viðskipta-
tengsl.
Þetta sagði hann
á fundi með ind-
verskri viðskipta-
sendinefnd: ,,Við
verðum að horfa til
framtíðar. Það ger-
um við með því að
leysa deilumál okk-
ar og þróa enn frek-
ari viðskiptatengsl,
þannig að bæði Ind-
land og Pakistan
hafi hag af.“
Indverjar og
Pakistanar hafa
lengi deilt um yfir-
ráð yfir Kasmír-hér-
aðinu sem er á
landamærum ríkj-
anna tveggja og hefur tvisvar komið til styrjaldar. Bæði löndin búa
yfir kjarnorkuvopnum.
Viðskipti milli Indlands og Pakistan hafa aukist um rúmlega
helming undanfarið ár og hafa aldrei verið meiri. Formaður ind-
versku sendinefndarinnar, Onkar S. Kanwar, sagði viðskipti land-
anna geta aukist margfalt á næstu fimm árum verði samgöngur
bættar og viðskiptahindrunum aflétt. - jsk
Kóngurinn veikur
FAHD KONUNGUR SÁDI-ARABÍU
Hlutabréf féllu í verði þegar fregnir bárust af
veikindum hans. Sérfræðingar segja hins
vegar langtímahorfur góðar.
Greenspan fyrir þingnefnd
Hvert orð af vörum seðlabankastjórans hefur áhrif á gengi bréfa.
ALAN GREENSPAN SEÐLABANKASTJÓRI BANDARÍKJANNA Mætir fyrir þingnefnd á
fimmtudag. Gengi bréfa sveiflast ótt og títt meðan Greenspan talar.
PERVEZ MUSHARRAF FORSETI PAKISTAN Segir að
Pakistanar og Indverjar eigi að grafa stríðsöxina og ein-
beita sér að því að þróa viðskiptatengsl.
Viðskipti
lykillinn að friði
Löndin hafa lengi deilt vegna Kasmír en nú
virðist vera að birta til.