Fréttablaðið - 08.06.2005, Blaðsíða 33
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
SMS-skilaboð geta hjálpað ungu
fólki að hætta að reykja, sam-
kvæmt nýsjálenskri rannsókn.
Rannsóknin náði til 850 ungra
reykingamanna og var birt í
tímaritinu Tobacco Control.
Reykingamönnunum var skipt
í tvo hópa og áttu að hætta reyk-
ingum á fyrir fram ákveðnum
degi. Annar hópurinn var í sífellu
minntur á reykingabannið með
SMS-skilaboðum á borð við:
,,Skrifaðu niður fjórar manneskj-
ur sem lemja þig í kássu ef þú
byrjar aftur að reykja.“
Hinn hópurinn fékk engin
skilaboð.
Tæp 30 prósent úr fyrri hópn-
um hættu að reykja á meðan að-
eins þrettán prósent fólks úr
þeim seinni lögðu rettuna á hill-
una.
Umsjónarmaður rannsóknar-
innar, Anthony Rodgers, sagði að
sífelldar SMS-sendingar hefðu
truflað fólk og fengið það til að
hugsa um eitthvað annað en
reykingar: ,,Þetta er eins og að
flækja fingurna í tyggigúmmí,
puttarnir eru bundnir við önnur
verkefni en að kveikja í sígarett-
um.“ - jsk
SMS gegn reykingum
Nýsjálensk rannsókn sýnir að SMS-skilaboð eru
vopn í baráttunni gegn reykingum.
Njósnað
í Ísrael
Lögreglan í Ísrael segir mörg
stórfyrirtækja landsins hafa
stundað njósnir um keppinauta
sína.
Að minnsta kosti fimmtán ísra-
elsk fyrirtæki eru sökuð um að
hafa átt hlut að máli og hafa átján
menn verið handteknir í Ísrael og
tveir til viðbótar í Bretlandi.
Lögreglan segir að notaður
hafi verið svokallaður Trójuhest-
ur til að brjótast inn í tölvukerfin,
en það er tölvuvírus sem sendur
er inn í tölvukerfi og gerir send-
andanum kleift að fylgjast með
öllu sem fram fer innan kerfisins.
Stærsta símafyrirtæki lands-
ins, Bezeq, var upphaflega sakað
um að standa á bak við njósnirnar
en síðar kom í ljós að allt að 60
fyrirtæki kunna að hafa verið við-
riðin málið.
Kunnugir segja þetta mesta
viðskiptahneyksli sem upp hafi
komið í Ísrael: „Þetta er sagan um
viðskiptajöfrana sem skildu sið-
ferðiskenndina eftir í glæsibif-
reiðum sínum,“ sagði Sever Plot-
sker, blaðamaður á stærsta við-
skiptablaði Ísraels, Yediot
Ahronot. - jsk
Apple
endurgreiðir
Apple hefur ákveðið að fram-
lengja ábyrgðarskírteini þeirra
sem keyptu iPod-spilara með
gallaðri rafhlöðu í Bandaríkjun-
um og gefa fólki kosti á að fá
endurgreitt.
Apple bregst með þessu við
fjölda lögsókna á
hendur fyrirtæk-
inu frá þeim sem
telja sig hafa
keypt köttinn í
sekknum. Kaup-
endurnir sögðu
rafhlöðuna ekki
endast jafnlengi
og sagði á
pakkningunum.
,,Nú get ég
verið viss um að
peningum mín-
um hafi verið vel
varið. Ég trúi því
að Apple muni
fara rétt að komi
svona mál upp í framtíðinni,“
sagði einn lögsækjenda.
Flestir þeirra sem fyrir
skaða urðu keyptu iPod-spilara
árið 2003. - jsk
AÐ SENDA SMS Sífelldar SMS-sendingar
geta hjálpað reykingamönnum við að
hætta reykingum.
Traustslyf fundið
Teymi svissneskra og banda-
rískra vísindamanna hefur ein-
angrað hormón í heilanum sem
ræður því hvort við treystum ná-
unganum.
Rannsóknir þeirra sýndu að
fólk sem fékk aukaskammt af
hormóninu oxytokin átti auðveld-
ara með að treysta öðrum.
Dr. Ernest Fehr, sem stýrði
rannsókninni, sagði hormónið
auka samskiptahæfni fólks og því
væri það tilvalið til að lækna fólk af feimni. Starfsbróðir Fehrs, Dr.
Antonio Damasio, hafði þó áhyggjur af því að óprúttnir stjórnmála-
menn kynnu að misnota lyfið: ,,Margir hafa áhyggjur af því að
stjórnmálamenn noti hormónið í úðaformi á stjórnmálafundum og
fái þannig fólk til að styðja stefnumál sín.“ - jsk
APPLE IPOD
Apple hefur gert
þeim sem keyptu
iPod með gallaðri
rafhlöðu kost á að
fá endurgreitt.
TRÓJUHESTURINN Ísraelska lögreglan
segir fyrirtæki í landinu hafa notast við
tölvuvírus sem kenndur er við Trójuhestinn
til að njósna um keppinauta sína.
ÚTIFUNDUR Margir hafa áhyggjur af því
að stjórnmálamenn kunni að misnota lyf
sem nú hefur verið þróað og fær fólk til að
treysta náunganum.