Fréttablaðið - 08.06.2005, Page 65
YGGDRASILL Færeyingarnir djassa á þjóðlegu nótunum í Norræna húsinu í kvöld.
MIÐVIKUDAGUR 8. júní 2005 25
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
5 6 7 8 9 10 11
Miðvikudagur
JÚNÍ
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Upphitunarkvöld harðkjarna-
hátíðarinnar MOTU verður í Hellin-
um, Hólmaslóð 2.
20.00 Chris Morris Praise-and-
Worship Band og Fríkirkjukórinn í
Hafnarfirði verða með létta sveiflu í
alþjóðlegum anda á sumartónleik-
um í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
20.00 Færeyska hljómsveitin Ygg-
drasill leikur í Norræna húsinu.
20.30 Beatmakin Troopa, PTH, B
Ruff og Diddi Fel koma fram á
hiphopkvöldi á Pravda Bar.
22.00 Ragnheiður Gröndal verður
með tónleika á ljúfu nótunum á
Næsta bar. Með henni spila gítarleik-
arinn Ásgeir Ásgeirsson og bassa-
leikarinn Róbert Þórhallsson.
■ ■ BJARTIR DAGAR
19.30 Rithöfundarnir Andri Snær
Magnason og Einar Kárason lesa
upp úr verkum sínum á bókakvöldi í
Gamla bókasafninu.
20.00 Samúel Samúelsson og
Antonía Hevesi spinna út frá þekkt-
um lögum á básúnu og orgel á tón-
leikum í Hafnarfjarðarkirkju. Séra
Þórhallur Heimisson flytur stutta
bænastund fyrir tónleikana.
20.00 "Ég er ögn í líffrænni kviksjá"
nefnist myndlistargjörningur Örnu
Valsdóttur í húsnæði Hafnarfjarðar-
leikhússins að Strandgötu 50. Að-
gangur er ókeypis.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Færeyska hljómsveitin Yggdras-
ill er orðin aldarfjórðungs gömul
og hefur gengið í gegnum miklar
mannabreytingar. Tónlistin hef-
ur sömuleiðis sveiflast til, en að
öllu jöfnu má þó lýsa tónlist Ygg-
drasils sem djassaðri og þjóð-
legri tónlist með heimspopps-
ívafi.
Eftir hljómsveitina liggja níu
plötur og eru mörg laganna á
þeim byggð á færeyskum rímna-
söngvum, sálmum og þjóðlögum.
Einnig sækja liðsmenn sér efni-
við í inúítasöngva og þjóðlög frá
Hjaltlandseyjum og Norðurlönd-
unum.
Yggdrasill er nú kominn til Ís-
lands og verður með tónleika í
Norræna húsinu í kvöld.
Eivör Pálsdóttir, sem söng inn
á tvær síðustu plötur Yggdrasils,
syngur ekki með Yggdrasil að
þessu sinni enda heldur sólóferill
hennar henni þéttbókaðri á öðr-
um vígstöðvum.
Í hennar stað sér Kári Sverris-
son um sönginn. Hann er einn
virtasti og dáðasti tónlistarmað-
ur Færeyja og mætti kalla hann
færeyskan Bubba. Hann hefur
staðið í fremstu víglínu í fær-
eyska músíkbransanum í áratugi,
lengst af með nútímalegri þjóð-
lagahljómsveit sem heitir Enekk,
en einnig sinnt sólóferli sínum. ■
Upphitunartónleikar verða í kvöld
í Hellinum úti á Granda fyrir harð-
kjarna- og rokkhátíðina MOTU
sem haldin verður nú um helgina á
Grand Rokk og í gamla Sjónvarps-
húsinu.
Í kvöld spilar bandaríska hljóm-
sveitin Paint it Black ásamt Myra,
Isidor og Mania Locus, en síðan
verður þessum tónleikum fylgt
fast eftir með tónleikum á föstu-
dagskvöldið þar sem danska hljóm-
sveitin Urkraft spilar á Grand
Rokk ásamt Momentum, The Nine
Elevens og Hr. Möller Hr. Möller.
Á laugardaginn verður síðan
mikil veisla í gamla Sjónarpshús-
inu þar sem dönsku sveitirnar Lack
og Urkraft gera allt snælduvitlaust
ásamt frönsku metalsveitinni Scar-
ve. Með þeim spilar rjóminn af
harðkjarna- og metalböndum Ís-
lands, svo sem Nevolution, Sólstaf-
ir og Drep.
MOTU-hátíðin var haldin í
fyrsta sinn síðasta sumar og hét þá
Mothers of the Universe, en fljót-
lega fóru allir að nota skammstöf-
unina MOTU og verður hún hér
eftir nafn hátíðarinnar, sem vænt-
anlega verður árviss viðburður í
tónlistarlífinu. ■
Kári í sta› Eivarar
SCARVE Bandaríska hljómsveitin Scarve kemur hingað til lands á laugardaginn.
Upphitun fyrir
har›kjarnahátí›