Fréttablaðið - 08.06.2005, Side 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500
Þakviðgerðir
Nánari upplýsingar á www.pace.is
Málarameistari
sér um þakið
Síðan 1991
Lyklar að áhyggjulausu fríi
Kreditkort
- traustar ferðatryggingar og auðveldur
aðgangur að peningum hvar sem er
Greiðsluþjónusta
- láttu okkur sjá um reikningana meðan þú
slappar af með fjölskyldunni
Reglulegur sparnaður
- núna er tíminn til að leggja grunn að næsta fríi
Netbankinn
- þú getur sinnt öllum þínum bankamálum á
fljótlegan og öruggan hátt um allan heim
sumar
Þegar þú kaupir gjaldeyri fyrir
20.000 kr. eða færð þér kreditkort
fylgir fallegt ferðahandklæði!
Gildir meðan birgðir endast.
Hafðu það gott í sumar ...
Íslandsbanki hvetur fólk til að njóta sumarsins og hafa ekki áhyggjur af fjármálunum.
Við bjóðum fjölmargar leiðir sem stuðla að þægilegu og áhyggjulausu sumarfríi.
Þú færð nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúum í útibúum Íslandsbanka,
í þjónustuveri í síma 440 4000 og á isb.is.
... og mundu eftir handklæðinu!
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
2
8
6
1
Blöndal og ég
Kjarkur og þor eru eiginleikarsem ekki má gera lítið úr. Það
er ekki nóg að hafa skoðanir og þora
svo ekki að viðra þær. Einkum og
sér í lagi þegar gert er á manns hlut,
þegar verið er að ofbjóða manni og
jafnvel vegið að virðingunni. Það er
ekki síst af þessum sökum sem ég
fæ varla orðað hvað ég er glaður
með Halldór Blöndal, fráfarandi for-
seta Alþingis, þegar hann lætur
garðeigendurna á Austurvelli heyra
það. Það sér hver maður að
steypukubbar í næsta nágrenni
þinghússins munu stórskaða virð-
ingu Alþingis.
SKIL EKKERT í borgarstjóranum
að gera þetta, sumar eftir sumar eru
settir niður þessir ljótu steypukubb-
ar og þeir lagast lítt þótt festar séu
myndir á kubbana. Þeir eru samt
ljótir. Og afleiðingarnar eru öllum
ljósar. Virðing Alþingis hefur beðið
hnekki og það er þess vegna sem
Halldór Blöndal bregst við af
ákveðni og kjarki. Þótt borgarstjór-
inn ráði yfir Austurvelli er gjörsam-
lega vonlaust að Austurvöllur sé
brúkaður til þess að draga úr virð-
ingu Alþingis.
SKIL EKKERT í fólki sem hefur
það sem stefnu í lífinu að rífa niður
það sem aðrir byggja upp. Þjóðin
veit að Halldór Blöndal hefur svo
sannarlega farið á undan sínu fólki,
þingheimi öllum, og byggt upp óum-
deilda virðingu þingsins meðal okk-
ar sem ekki erum á þingi. Þess
vegna er eðlilegt að Halldór sendi
bréf og bendi borgarstjóranum á
hversu langt er gengið í að eyði-
leggja uppbyggingarstarf þing-
heims. Einmitt þegar virðingin er í
hávegum kemur borgarstjórinn aft-
ur með kubbana.
SKIL EKKERT í öðrum, svo sem
talsmönnum Dómkirkjunnar og
annarra sem lifa við Austurvöll að
ganga ekki í lið með forseta Alþing-
is. Hann sem hefur lagt svo mikið á
sig við að viðhalda og auka virðingu
þingsins, með svo fínum árangri.
Allir vita að brúki þingmaður munn,
er hann víttur samstundis. Og virð-
ingin eykst og eykst. Þess vegna
væri aldeilis flott ef forseti þingsins
gæti vítt borgarstjórann og kirkjuna
sem kvartar ekki. Stöndum vörð um
virðingu þingsins og krefjumst þess
að kubbarnir verði teknir af Austur-
velli. Blöndal er minn maður.
BAKÞANKAR
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR