Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 72

Fréttablaðið - 08.06.2005, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 555 7500 Þakviðgerðir Nánari upplýsingar á www.pace.is Málarameistari sér um þakið Síðan 1991 Lyklar að áhyggjulausu fríi Kreditkort - traustar ferðatryggingar og auðveldur aðgangur að peningum hvar sem er Greiðsluþjónusta - láttu okkur sjá um reikningana meðan þú slappar af með fjölskyldunni Reglulegur sparnaður - núna er tíminn til að leggja grunn að næsta fríi Netbankinn - þú getur sinnt öllum þínum bankamálum á fljótlegan og öruggan hátt um allan heim sumar Þegar þú kaupir gjaldeyri fyrir 20.000 kr. eða færð þér kreditkort fylgir fallegt ferðahandklæði! Gildir meðan birgðir endast. Hafðu það gott í sumar ... Íslandsbanki hvetur fólk til að njóta sumarsins og hafa ekki áhyggjur af fjármálunum. Við bjóðum fjölmargar leiðir sem stuðla að þægilegu og áhyggjulausu sumarfríi. Þú færð nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúum í útibúum Íslandsbanka, í þjónustuveri í síma 440 4000 og á isb.is. ... og mundu eftir handklæðinu! H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 2 8 6 1 Blöndal og ég Kjarkur og þor eru eiginleikarsem ekki má gera lítið úr. Það er ekki nóg að hafa skoðanir og þora svo ekki að viðra þær. Einkum og sér í lagi þegar gert er á manns hlut, þegar verið er að ofbjóða manni og jafnvel vegið að virðingunni. Það er ekki síst af þessum sökum sem ég fæ varla orðað hvað ég er glaður með Halldór Blöndal, fráfarandi for- seta Alþingis, þegar hann lætur garðeigendurna á Austurvelli heyra það. Það sér hver maður að steypukubbar í næsta nágrenni þinghússins munu stórskaða virð- ingu Alþingis. SKIL EKKERT í borgarstjóranum að gera þetta, sumar eftir sumar eru settir niður þessir ljótu steypukubb- ar og þeir lagast lítt þótt festar séu myndir á kubbana. Þeir eru samt ljótir. Og afleiðingarnar eru öllum ljósar. Virðing Alþingis hefur beðið hnekki og það er þess vegna sem Halldór Blöndal bregst við af ákveðni og kjarki. Þótt borgarstjór- inn ráði yfir Austurvelli er gjörsam- lega vonlaust að Austurvöllur sé brúkaður til þess að draga úr virð- ingu Alþingis. SKIL EKKERT í fólki sem hefur það sem stefnu í lífinu að rífa niður það sem aðrir byggja upp. Þjóðin veit að Halldór Blöndal hefur svo sannarlega farið á undan sínu fólki, þingheimi öllum, og byggt upp óum- deilda virðingu þingsins meðal okk- ar sem ekki erum á þingi. Þess vegna er eðlilegt að Halldór sendi bréf og bendi borgarstjóranum á hversu langt er gengið í að eyði- leggja uppbyggingarstarf þing- heims. Einmitt þegar virðingin er í hávegum kemur borgarstjórinn aft- ur með kubbana. SKIL EKKERT í öðrum, svo sem talsmönnum Dómkirkjunnar og annarra sem lifa við Austurvöll að ganga ekki í lið með forseta Alþing- is. Hann sem hefur lagt svo mikið á sig við að viðhalda og auka virðingu þingsins, með svo fínum árangri. Allir vita að brúki þingmaður munn, er hann víttur samstundis. Og virð- ingin eykst og eykst. Þess vegna væri aldeilis flott ef forseti þingsins gæti vítt borgarstjórann og kirkjuna sem kvartar ekki. Stöndum vörð um virðingu þingsins og krefjumst þess að kubbarnir verði teknir af Austur- velli. Blöndal er minn maður. BAKÞANKAR SIGURJÓNS M. EGILSSONAR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.