Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 2
2 22. júní 2005 MIÐVIKUDAGUR
Forsætisrá›uneyti› fær
mest úr aukafjárlögum
FJÁRLÖG Frá því 1998 hefur for-
sætisráðuneytið fengið hlutfalls-
lega hæsta fjárveitingu í auka-
fjárlögum miðað við önnur ráðu-
neyti. Að meðaltali er forsætis-
ráðuneytinu úthlutað tuttugu
prósentum hærri upphæð í auka-
fjárlögum en gert er ráð fyrir í
fjárlögunum sjálfum.
Ráðuneytin öll á þessu tíma-
bili fengu að meðaltali tæplega
sjö prósenta fjárlagaauka og er
hlutfall forsætisráðuneytisins
mun hærra en annarra.
Ef fjármálaráðuneytið er ekki
meðtalið, vegna þess að í auka-
fjárlögum er tekið tillit til óreglu-
legra liða á borð við lífeyrisskuld-
bindingar og vaxtagjöld, fær
utanríkisráðuneytið hlutfallslega
næsthæstu upphæðina úr auka-
fjárlögum, tæplega tíu prósenta
fjárlagaauka að meðaltali.
Eitt ráðuneyti, sjávarútvegs-
ráðuneytið, greiðir að jafnaði til
baka í ríkissjóð í aukafjárlögum
miðað við fjárlög, upphæð sem er
um 0,3 prósent af fjárlögum
ráðuneytisins. Fjárveitingar til
sjávarútvegsráðuneytisins eru
því að jafnaði ofreiknaðar miðað
við aukafjárlög. Sjávarútvegs-
ráðuneytið fer hins vegar að
meðaltali 1,5 prósent fram úr
aukafjárlögum á ríkisreikningi.
Forsætisráðuneytið fer hins
vegar hvað minnst fram úr auka-
fjárlögum þegar litið er til ríkis-
reiknings, um 0,6 prósent. Það
ráðuneyti sem fór að jafnaði
mest fram úr aukafjárlögum á
tímabilinu, ef fjármálaráðu-
neytið er undanskilið af sömu
ástæðum og áður, er iðnaðarráðu-
neytið, sem fer rúm átta prósent
fram úr fjáraukalögum að jafn-
aði. Það er um fjórum prósentu-
stigum hærra en viðmiðunar-
mark fjármálaráðuneytisins, en
samkvæmt reglugerð um fram-
kvæmd fjárlaga ber ráðuneytum
að bregðast við ef útgjöld verða
meiri en fjögur prósent umfram
heimildir.
Samgönguráðuneytið og um-
hverfisráðuneytið voru einu
ráðuneytin sem voru að jafnaði
undir fjárheimildum á tímabilinu
en að meðaltali fóru öll ráðuneyt-
in 3,1 prósent fram úr fjárheim-
ildum á ári. sda@frettabladid.is
FERÐALÖG Ný tegund hjólastóla,
sem kemst yfir urð og grjót, var
reynd á Hellisheiði í gær. Stóllinn
var keyptur til landsins á dögun-
um ásamt sex öðrum fyrir til-
stuðlan Heimis Karlssonar sjón-
varpsmanns, sem beitti sér fyrir
peningasöfnun til stólakaupanna á
Stöð 2 og Bylgjunni.
Stólunum verður dreift um
landið til útláns en með þeim gefst
fötluðum færi á að ferðast utan
vega og gangstíga og njóta þar
með náttúrunnar í ríkari mæli.
- bþs
SPURNING DAGSINS
Steinunn Valdís, er R-listinn
eins og laxinn, bestur grafinn?
„Nei, en R-listinn er eins og laxinn, því
stærri, því skemmtilegri og betri.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri veiddi
fyrsta lax sumarsins í Elliðaánum í fyrradag.
ÁFRAM, ÁFRAM Arnar J. Aspar ýtir Birni
Friðriki Gylfasyni áfram í nýja stólnum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Torfærustóll á Hellisheiði:
Fer›ast yfir
ur› og grjót
AFGANISTAN, AP Stjórnvöld í
Afganistan þrýsta nú á Pakistana
að herða aðgerðir gegn hryðju-
verkamönnum í Pakistan. Afgan-
ar telja þá ekki leggja sig fram
og segja að það verði aldrei frið-
ur í Afganistan nema ríkisstjórn-
ir beggja landa taki höndum
saman í baráttunni við hryðju-
verkamenn.
Talið er að flugumenn al-Kaída
í Afganistan komi flestir frá
Pakistan. Stöðug átök hafa verið í
suður- og austurhluta Afganistans
síðustu mánuði og hafa 280 upp-
reisnarmenn og 29 bandarískir
hermenn fallið síðan í mars. ■
Afganar ósáttir:
Vilja taka á
hry›juverkum
Enn yfirheyrir Ríkislögreglustjóri í Baugsmáli:
Jón Gerald mætti til yfirheyrslu
LÖGREGLA Jón Gerald Sullenberger
mætti til yfirheyrslu hjá Ríkislög-
reglustjóra klukkan níu í gær-
morgun vegna rannsóknar á hugs-
anlegum fjárdrætti núverandi og
fyrrverandi forstjóra Baugs og
öðrum mögulegum brotum þeirra
gegn fyrirtækinu. Rannsókn lög-
reglu hefur staðið í tæp þrjú ár,
frá ágústlokum 2002.
Fjölmiðlar hittu Jón Gerald
fyrir þegar hann mætti til yfir-
heyrslu en hann vildi lítið tjá sig
um málið. Samkvæmt heimildum
blaðsins er þetta í fjórða eða
fimmta sinn sem Jón Gerald
kemur til yfirheyrslu. Gagnrýnt
hefur verið hversu langan tíma
rannsóknin tekur, en tvö ár munu
hafa liðið frá því lögregla réðist
inn í höfuðstöðvar Baugs þar til
endurskoðunarfyrirtæki var falið
að skoða 33 mánaðarlega reikn-
inga sem Jón Gerald og forsvars-
menn Baugs greindi á um strax í
upphafi.
Hvorki náðist í Jón Ásgeir
Jóhannesson, forstjóra Baugs, né
Tryggva Jónsson, fyrrum for-
stjóra. Báðir vísa sakargiftum á
bug. Jón H. Snorrason, yfirmaður
efnahagsbrotadeildar Ríkis-
lögreglustjóra, segist ekki vilja
tjá sig um gang rannsóknarinnar
að öðru leyti en því að hún standi
enn. -óká
JÓN GERALD SULLENBERGER Rannsókn
lögreglu á Baugi hófst haustið 2002 eftir
ásakanir Jóns Geralds, sem hér sést hjá
Ríkislögreglustjóra í gærmorgun, um ranga
reikningagerð og aðra vankanta á fjármála-
stjórn Baugs. Forsvarsmenn Baugs hafa frá
upphafi neitað sakargiftunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
VIÐSKIPTI Birgir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Iceland Express,
segir Samkeppnisstofnun van-
hæfa til að taka á deilum fyrir-
tækis hans og Flugleiða, því Gylfi
Magnússon, formaður Samkeppn-
iseftirlitsins, hafi unnið launuð
störf fyrir Flugleiðir tengd
deilum við Iceland Express. Um
næstu mánaðamót tekur Sam-
keppniseftirlitið við af Sam-
keppnisstofnun.
„Gylfi var einn af aðalráðgjöf-
um Flugleiða og skrifaði greinar-
gerð og rökstuðning gegn því að
Icelandair hefði beitt undirboð-
um,“ segir Birgir, en kveðst ekki
hafa kynnt sér hvort forsendur
séu til að kæra úrskurð stofnunar-
innar um samruna FL Group,
Bláfugls og Flugflutninga. „Þetta
er mun alvarlegra fyrir málið sem
við bíðum úrskurðar í og svo fyrir
trúverðugleika stofnunarinnar,“
segir hann, en mál fyrirtækisins á
hendur Flugleiðum bíður úr-
vinnslu Samkeppnisstofnunar.
„Maður snýr sér ekki til stofnunar
sem maður veit að samkeppnis-
aðilinn stjórnar. Flugleiðir hafa
síðustu mánuði ítrekað kært
okkur fyrir algjör smáatriði í
auglýsingum og í þeim málum
hefur Samkeppnisstofnun ekki
dregið lappirnar.“
- óká
Framkvæmdastjóri Iceland Express um samkeppnisyfirvöld:
Segir Samkeppnisstofnun vanhæfa
BIRGIR JÓNSSON Framkvæmdastjóri Iceland Express segir fyrirtækið hingað til hafa kom-
ist af í samkeppni hér án aðstoðar samkeppnisyfirvalda og býst við að svo verði áfram.
Forsætisrá›uneyti› eykur fjárheimildir um tuttugu prósent frá fjárlögum a›
me›altali me› aukafjárlögum og er fla› hlutfallslega mest allra rá›uneyta.
HLUTFALL AUKAFJÁRVEITINGA
Á AUKAFJÁRLÖGUM MIÐAÐ
VIÐ FJÁRLÖG
Forsætisráðuneyti 21,2%
Menntamálaráðuneyti 4%
Utanríkisráðuneyti 9,9%
Landbúnaðarráðuneyti 3,2%
Sjávarútvegsráðuneyti -0,3%
Dóms- og kirkjumálaráðuneyti 3,5%
Félagsmálaráðuneyti 7,5%
Heilbrigðis- og trygginga 4,3%
Fjármálaráðuneyti 15%
Samgönguráðuneyti 6,2%
Iðnaðarráðuneyti 8%
Viðskiptaráðuneyti 0,5%
Hagstofa Íslands 7,8%
Umhverfisráðuneyti 6,6%
STJÓRNARRÁÐIÐ Forsætisráðuneytið fær hlutfallslega mest allra ráðuneyta úr aukafjárlögum ef litið er aftur til 1998; tuttugu prósent af
fjárlögum ráðuneytisins.
Mótmælendur:
Töf›ust í
Reykjavík
MÓTMÆLI Alþjóðlegar mótmæla-
búðir við Kárahnjúka risu ekki í
gær eins og fyrirhugað var.
Birgitta Jónsdóttir, einn tals-
manna mótmælenda, segir að
fólkið hafi tafist í Reykjavík.
„Þriggja manna hópur kemur
austur um hádegisbil í dag og
setur upp tjöld. Á næstu dögum
mun innlendum og erlendum mót-
mælendum fjölga,“ segir Birgitta.
Ómar R. Valdimarsson, tals-
maður Impregilo, segir að búið sé
að fjölga aðvörunarskiltum á
virkjunarsvæðinu og setja upp
öryggishlið til að takmarka um-
ferð. - kk
Álver á Norðurlandi:
firjú svæ›i
rannsöku›
ÁLVER Fulltrúar Fjárfestingar-
stofu, Alcoa, Skagafjarðar, Húsa-
víkurbæjar og Akureyrar, ásamt
fulltrúum Atvinnuþróunarfélags
Eyjafjarðar og Atvinnuþróunar-
félags Þingeyinga, hafa komist að
samkomulagi um að ákvörðun um
staðsetningu hugsanlegs álvers á
Norðurlandi liggi fyrir eigi síðar
en 1. mars á næsta ári. Í sam-
komulaginu felst að fram að þeim
tíma verður unnið að staðarvals-
rannsóknum við Húsavík, í Eyja-
firði og í Skagafirði en jafnframt
á að kanna hvort grundvöllur sé
fyrir frekari úrvinnslu áls á svæð-
inu. - kk
Hróarsstaðir í Fnjóskadal:
Rafstö› brann
LÖGREGLA Slökkvilið Akureyrar og
Þingeyjarsveitar voru kölluð út
síðdegis í gær vegna bruna í skúr
utan um rafstöð við bæinn
Hróarsstaði í Fnjóskadal.
Tjón af völdum brunans varð
ekki mikið og gekk að sögn lög-
reglu á Húsavík greiðlega að
slökkva eldinn, sem átti upptök
sín í rafmagnstöflu. Lögregla var
kölluð til um klukkan 17.25, eftir
að slökkvistarfi lauk.
Í skúrnum er að finna heima-
virkjun sem tengd er inn á kerfi
Landsvirkjunar og í nærliggjandi
bæi. Lögregla sagði rafvirkja
hafa verið að störfum á staðnum í
gær, en eldsupptök eru í rann-
sókn.
- óká
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÓK Á KIND SEM DRAPST 25 ára
gamall maður ók um klukkan níu
í gærmorgun fólksbíl sínum á
kind þannig að hún drapst og bíll-
inn skemmdist. Áreksturinn varð
í Holtsmúlasundi, miðja vegu
milli Varmahlíðar og Sauðár-
króks.