Fréttablaðið - 22.06.2005, Side 18
Það eru ekki bara Grænlend-
ingar sem kunna að sigla á
kajökum því fleiri hafa upp-
götvað þennan ferðamáta.
Þeirra á meðal er Haukur
Snorrason, ljósmyndari og
útivistarmaður.
„Ég hef siglt um Langasjó fram
og til baka, um Þingvallavatn,
Mývatn, umhverfis Snæfellsnes
og víða við strendur landsins.
Meira að segja gegnum gatið á
Dyrhólaey,“ segir Haukur þegar
hann er spurður út í kajaksigl-
ingarnar sem hann stundar
gjarnan sem sport. Ein ferð
stendur þó upp úr í hans huga.
„Ég hef aldrei lent í öðru eins
blíðu veðri og annarri eins
himnasælu eins og þegar við
Hadda Björk, konan mín, vorum
í Hornvík í heila viku sumarið
2003. Við sigldum í blankalogni
eldsnemma á morgnana en
komum í land um fótaferðartíma
þegar hafgolan fór að gera vart
við sig. Þá tóku gönguferðir við.
Svo sigldum við í kvöldsólinni,
rétt fyrir miðnætti og grilluðum
stundum hinum megin við
víkina. Þetta var mjög sérstök
ferð því við vorum að mestu ein.
Eitt írskt par kom þó í Hornvík-
ina og annað austurrískt en
hvort um sig var bara yfir nótt.
Við buðum þessu fólki í mat, því
það var bara með duft með sér
en við með kræsingar. Eftir
þetta vorum við tvo daga í Aðal-
vík og alltaf hélst góða veðrið.
Þetta var alveg magnað.“
Haukur kveðst sjaldan hafa
myndað jafn ákaft og í þessari
Hornstrandaferð. Sumar þeirra
mynda munu birtast í nýju bók-
inni hans sem kemur út í haust.
Þema þeirrar bókar snýst
einmitt um að upplifa landið
með mismunandi hætti svo sem
á flugi, snjósleðum, göngu og
kajak. Haukur heldur úti vefn-
um www.snorrason.is og þar
getur að líta margar flottar
myndir.
gun@frettabladid.is
Bakpoki
Góður bakpoki getur skipt sköpum á göngu um fjöll og firnindi. Gefðu þér góðan tíma í
að finna rétta pokann og mátaðu hann áður en þú kaupir hann. [ ]
Ferðaþjónustan í Lundi
í Öxarfirði
Opið frá 10. júní-28. ágúst 2005
Netfang: lundur@dettifoss.is
Símanúmer: 465-2247 gsm: 845-9538
Lundur er í Birkiskógi og við
þjóðbraut, í næsta nágrenni
eru merkir áningastaðir s.s.
Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfr-
um (6 km.) Hljóðaklettar, Detti-
foss, Rauðinúpur og Hrauhafn-
artangi. Í boðið eru uppbúin
rúm og svefnpokagisting,einnig
er veitingasala á staðnum.
Tjaldgisting á góðu tjaldsvæði,
mjög góð leikaðstaða er fyrir
börnin, einnig er sundlaug með
heitum potti. Staðurinn er til-
valinn fyrir allskyns ættarmót
og stærri samkomur.
Alger himnasæla í Hornvík
Haukur og Hadda gistu í tjaldi í Hornsvík-
inni. Hér eru þau komin í kajakbúningana.
Verkefnið „Göngum um Ísland“ hefur göngu sína formlega í dag. Um er að
ræða samstarfsverkefni UMFÍ, Ferðamálaráðs og Landmælinga. Markmiðið er
að stuðla enn frekar að uppbyggingu gönguleiða hérlendis. Þá er fólk hvatt til
að ganga um landið og kynnast því þannig með heilsusamlegum hætti.
Þetta er fjórða árið í röð sem þessu verkefni er hleypt af stokkunum og skráð-
ar gönguleiðir eru nú orðnar rétt tæplega 300 talsins. Í tilefni dagsins kemur út
bók um allar þessar gönguleiðir sem dreift verður ókeypis til landsmanna í
50.000 eintökum.
Allar nánari upplýsingar um verkefnið má nálgast á heimsíðunni;
www.ganga.is og þar er einnig að finna upplýsingar um gönguleiðir víðs vegar
um landið.
Göngum um Ísland
VERKEFNIÐ „GÖNGUM UM ÍSLAND“ HEFST Í DAG. SKRÁÐAR GÖNGULEIÐIR
UM ÞRJÚ HUNDRUÐ.
Gönguferðir eru góð hreyfing og útivist. Í tengslum við verkefnið „göngum um Ís-
land“ hafa fjölmargar gönguleiðir verið skráðar.
um landið }
Hekla kerling
heimsótt
GENGIÐ VERÐUR Á ELDFJALLIÐ
HEKLU Á VEGUM ÚTIVISTAR 3. JÚLÍ.
Hekla kerlingin er samofin sögu
þjóðarinnar enda er hún frægasta og
um leið eitt ægilegasta eldfjall lands-
ins. Hún hefur þó sérstakt aðdráttar-
afl og eru skipulagðar ferðir á fjallið
jafnan vel sóttar. Ganga Útivistar
hefst við Skjólkvíar en í stað þess að
fara aftur niður á sama stað er stefnt
að því að ganga yfir Heklu ef að-
stæður leyfa, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Komið verður niður
við Suðurbjalla á móts við Næfur-
holtsfjöll. Leiðin liggur um sendið
hraun, gjall og snjó. Vegalengdin
sem gengin er þennan dag er 17 -
18 kílómetrar og hækkunin nemur
um 1.000 metrum. Reiknað er með
að göngutími verði sjö til átta tímar.
Hadda Björk í friðsæld og rjómablíðu innan um fuglana í Hornsvík.
M
YN
D
IR
: H
AU
KU
R
SN
O
R
R
AS
O
N
Rómantík í fjörunni. Hvað segirðu títt?