Fréttablaðið - 22.06.2005, Qupperneq 25
Vinsælasti gosdrykkur heims:
Borið þungum sökum
Ólöglegt innhal:
Allar myndir
á netinu
Sony og Napster:
Samstarf um
tónlist í farsíma
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 22. JÚNÍ 2005 – 12. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Viðskipti með Mosaic | Við-
skipti hófust í Kauphöll Íslands
með hlutabréf bresku verslun-
arkeðjunnar Mosaic Fashions.
Var viðskiptagengi bréfanna
tæplega níu prósent yfir útboðs-
genginu.
Tekjur hækka | Meðalatvinnu-
tekjur Íslendinga voru rúmar 2,7
milljónir í fyrra og hækkuðu um
þrjú prósent milli ára. Hæstar eru
tekjurnar í fjármálaþjónustu en
lægstar í landbúnaði. Konur fá
63,1 prósent tekna karla.
Penninn seldur |
Endanlega var
gengið frá kaup-
um hóps Krist-
ins Vilbergs-
sonar á Penn-
anum. Þar
með lýkur 36 ára
setu Gunnars
Dungal í for-
stjórastóli.
Allt í hnút | Engin lausn er í sjón-
máli í deilu Breta og Evrópusam-
bandsins. Bretar neita að hækka
framlag sitt til sambandsins
nema landbúnaðarkerfið verði
tekið í gegn. Frakkar, sem mestra
landbúnaðarstyrkja njóta, vilja
hins vegar ekki fallast á þá kröfu.
Forseti Evrópuráðsins óttast að
sambandið standi eftir lamað.
Fasteignaverð hækkar | Vísi-
tala íbúðaverðs hækkaði í maí um
3,8 prósent frá fyrra mánuði. Vísi-
talan hefur hækkað um rúm tíu
prósent síðastliðna þrjá mánuði
og um tæp fjörutíu prósent á tólf
mánuðum.
Olía á eld | Olíuverð er í sögu-
legu hámarki og stendur í 59 döl-
um. Spá sérfræðingar því að brátt
fari tunnan yfir 60 dali. Svo
óstöðugt er ástandið á markaðn-
um að smávægilegar truflanir á
framleiðslu valda miklum hækk-
unum.
Avion kaupir | Avion Group festi
kaup á þremur breskum ferða-
skrifstofum sem sérhæfa sig í
ferðum til Flórída. Velta félagsins
verður nálægt 125 milljörðum
króna á árinu.
Hvíta húsið til London:
Aðstoðar íslensk
fyrirtæki erlendis
Auglýsingastofan Hvíta húsið
hefur gert samstarfssamning við
markaðsfyrirtækið Loewy í
London. Markmiðið er að bjóða
íslenskum fyrirtækjum og fjár-
festum upp á þjónustu við mark-
aðsstarf ytra. Einnig opnast leið-
ir til að nýta tengslanet Loewy og
fá aðgang að upplýsingum um
nýja markaði og sérfræðiráð-
gjöf.
Meðal viðskiptavina Hvíta
hússins eru íslensk fyrirtæki
sem vinna að verkefnum erlend-
is. Samstarfið við Loewy Group á
að auðvelda Hvíta húsinu að ann-
ast þessi verkefni. - bg
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Þegar tíu stærstu hluthafar í Icelandic Group, sem
áður hét SH, var birtur eftir sameininguna við Sjóvík
10. júní síðastliðinn var félagið Fordace Limited það
sjötta á listanum með 4,47 prósent eignarhlut.
Þegar listinn yfir tíu stærstu hluthafana var upp-
færður síðasta föstudag var Fordace Limited dottið
út af honum. Á mánudagsmorgun var svo tilkynnt í
kauphöll Íslands um viðskipti fyrir tæpa 1,2 millj-
arða króna í Icelandic Group. Nýir á topp tíu listann
eru Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 og Arion safnreikn-
ingur með samanlagt um 4,5 prósent hlut.
Ekki hefur fengist uppgefið hver réði yfir þessum
sjötta stærsta hlut í félaginu. Ekki fást upplýsingar
um það frá starfsmönnum Icelandic Group og
stjórnarformaður félagsins, Jón Kristjánsson, segist
ekki hafa vitneskju um málið. Forstjóri Fjármála-
eftirlitsins vildi ekki gefa upp hvort hann vissi hver
hefði átt hlutinn og ekki fengust upplýsingar um það
frá Kauphöll Íslands.
Ljóst er að þetta félag eignaðist hlutinn eftir að
SH og Sjóvík voru sameinuð. Fengu eigendur Sjóvík-
ur 33 prósent af hlutafé Icelandic Group. Þar voru
Sunds-menn, með Jón Kristjánsson í broddi fylking-
ar, stærstir. Annar eigandi í Sjóvík, Serafin Shipping,
fékk um sex prósent í sameinuðu félagi samkvæmt
heimildum Markaðarins. Samkvæmt upplýsingum
frá Kauphöllinni var þeim hluta skipt á tvö félög þar
sem hvorugt fór yfir fimm prósenta markið. Fari
félag yfir markið verður að gera grein fyrir eignar-
aðild þess með tilkynningu til Kauphallarinnar.
Samkvæmt heimildum Markaðarins réð Ólafur
Ólafsson, stjórnarformaður SÍF, yfir hlut Serafin
Shipping í Sjóvík. Aðspurður um það vísar Ólafur á
Jón Kristjánsson. Jón segist ekki geta svarað fyrir
málið. Ólafur segist aðspurður ekki ráða yfir neinum
bréfum í Icelandic Group. Þegar hann er spurður
hvort hann hafi ekki fengið bréf í Icelandic Group
við sameiningu SH og Sjóvíkur vísar hann til fyrra
svars varðandi Serafin Shipping.
F R É T T I R V I K U N N A R
4 12-13 8
Dögg Hjaltalín
skrifar
Samkvæmt könnun The
Economist er Big Mac hamborg-
ari á McDonalds dýrastur í
Sviss en ef Ísland er tekið
með í niðurstöðurnar er Big
Mac langdýrastur hér á landi.
Með þessu er reynt að sýna
fram á hversu mikill munur
er á raunverulegu
virði gjaldmiðla.
Big Mac vísitalan er
nálgun á það hversu mik-
ill munur er á verðlagi eftir
löndum og þar sem Big Mac er
nánast eins hver sem er í heim-
inn er verðið á honum góður
mælikvarði á almennt verðlag.
Samkvæmt kenningum um
kaupmáttarjafnvægi eiga sam-
bærilegir hlutir að kosta það
sama óháð því hvar í heiminum
hluturinn er seldur. Einhver
skekkjumörk eru þó
vegna þess að kostnað-
urinn við hvern ham-
borgara er breytilegur
eftir því í hvaða landi
hann er keyptur.
Taka þarf þó tillit til
þess að kostnaðurinn við
framleiðslu eins Big Mac er
mismunandi, til dæmis er launa-
kostnaður á Íslandi, þar sem Big
Mac er dýrastur mun hærri en í
Kína, þar sem hann er ódýrastur.
The Economist sagði Big Mac
vísitöluna sýna að evran væri of-
metin gagnvart Bandaríkjadal
þar sem Big Mac er 17 prósent
dýrari á evrusvæðinu en í Banda-
ríkjunum. Einnig gefa niðurstöð-
urnar til kynna að kínverska
yuanið sé vanmetið gagnvart
Bandaríkjadal og sömuleiðis að
krónan sé sterklega ofmetin.
Baugur Group:
Kaupir þriðjung
í Domino’s
Baugur Group hefur keypt um
þriðjungshlut í Domino’s Pizza á
Íslandi. „Við kaupum hlutinn af
Birgi Þór Bieltvedt, sem mun
leiða félagið áfram,“ segir Skarp-
héðinn Berg Steinarsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Baugi Íslandi.
Birgir Þór verður áfram stór
hluthafi í Domino’s Pizza í gegn-
um eignarhaldsfélagið B2B.
Domino’s er með sterka stöðu
á flatbökumarkaðinum og hefur
verið skotið á að markaðshlut-
deild félagsins sé um 60 prósent.
Skarphéðinn segir að engar
breytingar verði á rekstrinum.
Viðskiptin tengist ekkert fjárfest-
ingu sömu aðila í dönsku verslun-
arkeðjunni Magasin du Nord.
Samkvæmt heimildum Mark-
aðarins lá fyrir óformlegt tilboð í
meirihluta í félaginu frá öðrum
fjárfestum, sem mátu félagið á
700 milljónir, en ekkert varð af
þeim kaupum. - eþa
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
28
63
6
06
/2
00
5
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
28
63
6
06
/2
00
5
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta.
Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans.
* Nafnávöxtun frá 02.05.2005–01.06.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingar-
sjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verð-
bréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og úrdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í
afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
Big Mac dýrastur á Íslandi
Krónan ofmetin gagnvart Bandaríkjadal miðað
við hamborgaravísitölu The Economist.
MAGNÚS LOFTSSON, STJÓRNARFOR-
MAÐUR HVÍTA HÚSSINS Segir viðskipta-
vini stofunnar starfa í alþjóðlegu umhverfi.
HLUTHAFAR FUNDA Hluthafar í Icelandic Group virðast ekki vita
hver varð sjötti stærsti hluthafinn eftir sameiningu SH og Sjóvíkur.
Verð í $ Miðað við USA
Ísland 6,73 120%
Danmörk 4,58 50%
Svíþjóð 4,17 36%
Evrusvæðið 3,58 17%
Bretland 3,44 12%
Bandaríkin 3,06 –
Pólland 1,96 -36%
Rússland 1,48 -52%
Kína 1,27 -58%
Huldufélag í Icelandic Group
Enginn virðist vita hver var sjötti stærsti hluthafinn í
almenningshlutafélaginu Icelandic Group eftir sameiningu
SH og Sjóvíkur.
Fr
é
tt
ab
la
ð
ið
/V
al
li
B I G M A C V Í S I T A L A N