Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 22.06.2005, Blaðsíða 41
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 17 S K O Ð U N Verð á hráolíu hefur náð sögu- legu hámarki að undanförnu. Verð á olíu hefur hækkað um liðlega 40 prósent á árinu og verðið stefnir hraðbyri í 60 dollara tunnan af Brent-hrá- olíu. Greining Íslandsbanka fjallaði um olíuverðið í Morg- unkorni sínu í gær: „Ástæðan er sögð takmarkað framboð á unnum olíuvörum, s.s. dísilolíu og olíu til húshitunar á sama tíma og að spurn eftir þeim hefur aukist. Framvirkir samn- ingar á markaði benda til þess að markaðsaðilar álíti að olíu- verð haldist hátt a.m.k. næstu mánuði. Lengri skuldabréf er- lendis lækkuðu lítillega í verði en erlend hlutabréf hafa ekki orðið fyrir miklum áhrifum enda virðist sú neikvæða fylgni sem var á milli olíuverðs og hlutabréfaverðs á síðasta ári vera rofin. Hækkun olíu hefur haft lítil áhrif á innlendum verðbréfamarkaði en ljóst er að hún eykur kostnað fyrirtækja og verðbólguþrýsting. Seðla- bankinn ætti þó að horfa fram- hjá verðbólgu sem hlýst af hækkun olíuverðs þar sem hún er utan áhrifasviðs bankans. Slík verðbólga leiðir þó til auk- innar spurnar eftir verðtryggð- um bréfum með tilheyrandi þrýstingi til lækkunar ávöxtun- arkröfu þeirra. Arabaríkin velta fyrir sér framleiðsluaukningu um þess- ar mundir en Sádi-Arabar segj- ast ekki finna kaupendur að meiri hráolíu enda séu birgðir nú nálægt sex ára hámarki. Birgðir af unnum olíuvörum eru hins vegar sögulega lágar á sama tíma og spurn eftir þeim hefur aukist um 6,5% á milli ára þrátt fyrir verðhækkun. Þetta er helsta orsök hækkun- arinnar að undanförnu. Tvö helstu fyrirtækin á sviði afleiðuviðskipta á olíu hafa mjög mismunandi sýn á fram- tíðina. Í mars gaf Goldman Sachs út skýrslu þar sem því var spáð að olíuverð næði vel yfir 100 dollara í náinni fram- tíð. Í lok síðustu viku kom síðan skýrsla frá Morgan Stanley þar sem því er spáð að verð á olíu geti lækkað skarpt þegar hægir á hagvexti í heiminum. Það er aðallega eftirspurn frá Kína sem talin er hafa úrslitaáhrif á það hvernig olíuverð þróast en Kínverjar voru með þriðjung af eftirspurnaraukningu síðasta árs,“ segir í Morgunkorni Ís- landsbanka í gær. Mismunandi sýn á olíuverð 60% MARKAÐSHLUTDEILD Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2004 MANITOU skotbómulyftarar - Þarfur þjónn, sem uppfyllir ströngustu gæði og væntingar þeirra kröfuhörðustu. HANN ER GRIMMUR! MANITOU MLT 634 TURBO INTERCOOLER - VIÐURKENND VARAHLUTAÞJÓNUSTA í 44 ár - Útvegum notaða skotbómulyftara - Úrval notaðra lyftara á lager Fjórhjóladrifinn Fjórhjólastýrður Lyftigeta: 3.400 KG Lyftihæð: 6.050 MM Gafflar: 1.200 MM Vél: Perkins Turbo intercooler, 123 HÖ LOAD SENSING!! Samtímis glussahreyfingar án aukins snúningshraða vélar. SKOTBÓMULYFTARI PON PÉTUR O. NIKULÁSSON ehf. Melabraut 23 • 220 Hafnarfjörður Símar 552 2650 & 552 0110 • FAX: 552 1588 • e-maiL: pon@pon.is Olía á eld Almennt séð á maður að láta fjár- festingar sínar stjórnast af því hvað maður telur líklegast að hækki út frá núverandi stöðu. Hitt er svo annað að einn drif- kraftur hækkana á markaði og ein af orsökunum fyrir verðbólg- um er sú einfalda staðreynd að maður getur ekki á sér heilum tekið ef nágranninn myndi slys- ast til að verða ríkari en maður sjálfur. Mínir grannar eiga reyndar talsvert í land með að ná mér og þótt ekki beri mikið á milli í lífsstílnum er munurinn sá að ég á bílana mína og húsið. Þannig vita þeir ekki hvað ég á og halda að líf mitt sé á lánum eins og flestra hinna. Þótt ég sé alla jafna afar jarð- bundinn í fjárfestingum og hafi alltaf skoðað vel fyrirtæki sem ég fjárfesti í, auk þess að lesa í hvers sé að vænta á næstunni, hef ég fjárfest í fyrirtækjum vegna þess að kunningjar hafa keypt í þeim. Ég eins og fleiri keypti í Decode á sínum tíma vegna þess að nágrannar mínir og vinir höfðu keypt í fyrirtæk- inu. Ég komst reyndar inn á hag- stæðara gengi en þeir í gegnum FBA enda ekki til neins að vera alvöru fjárfestir ef maður nýtur ekki stöku sinnum betri kjara en næsti maður. Ég hef hins vegar grætt alveg jafn lítið og allir aðrir á þeirri fjárfestingu. Ég skildi hvorki haus né sporð á því hvernig þetta fyrirtæki ætl- aði að græða alla þá milljarða sem gengið á gráamarkaðnum gaf til kynna, en ég gat bara ekki hugsað mér að sitja eftir ef draumar grannanna og vinanna skyldu nú rætast. Ég lærði nokkuð af reynslunni og myndi ekki setja jafn mikla peninga í þetta í núna. Vandinn sem ég stend frammi fyrir núna er sá að ég á frænda í F æ r e y j - um. Hann er dáldið d r j ú g u r með sig og vanur að gera mikið úr því þegar vel geng- ur. Ég þoli hann ekkert sérstaklega vel, en get alveg umborið hann meðan ég veit í hjarta mínu að ég nýt miklu meiri velgengni en hann. Hann hefur fjárfest smá í fær- eyska olíuleitarfélaginu sem var nýlega skráð í Kauphöllina. Ég veit ekkert hverjar líkurnar eru á því að þeir finni olíu við Fær- eyjar og veit að fyrirtækið er áhættusamt. Ég gæti bara ekki lifað við það ef Rógvan frændi yrði ríkur á því að þeir fyndu olíu, en ég ekki. Það yrði eins og olía á eld afbrýðsemi. Spákaupmaðurinn á horninu S P Á K A U P M A Ð U R I N N Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N Birgðir af unnum olíuvörum eru hins vegar sögulega lágar á sama tíma og spurn eftir þeim hefur aukist um 6,5% á milli ára þrátt fyrir verðhækkun. Þetta er helsta orsök hækkunarinnar að undanförnu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.