Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 42

Fréttablaðið - 22.06.2005, Page 42
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN18 H É Ð A N O G Þ A Ð A N „Þegar ég var þrettán ára gamall ákvað ég að fermast ekki, enda alltaf verið trúlaus og séð ofsjónum yfir þeim mörg þúsund millj- ónum sem við setjum í rekstur þjóðkirkj- unnar á hverju ári. Pabbi kemur til mín að fyrra bragði áður en ég þori að tjá honum ákvörðun mína og spyr hvort ég vilji ekki fermast með bróður mínum, Gunnari Karli Guðmundssyni, ári síðar. Eins og gerist og gengur hjá unglingum er ég tilbúinn til þess en spyr hvað ég fái í staðinn. Úr verður að ég fæ mótorhjól sem var framleitt í Riga í Lettlandi. Ég fór strax á landakortið og fylgdist síðan alla tíð með Riga. Þegar Plast- prent hugði að fjárfestingum í löndum sem tilheyrðu áður Austurblokkinni kom ekkert annað til greina en Riga. Þetta var mjög óvísindaleg ákvörðun,“ segir Sigurður B. Guðmundsson, framkvæmdastjóri Plast- prents, þegar hann útskýrir hvernig það kom til að fyrirtækið hóf framleiðslu í Lettlandi árið 2003. Við sitjum að snæðingi á Þremur frökkum hjá Úlfari Eysteinssyni matreiðslumeistara . „Ég fæ mikið af útlending- um í heimsókn hingað til lands. Ef ég vil virkilega heilla þá fer ég með þá hingað. Ég er búinn að fara með þá marga hingað og reyndar á aðra góða veitingastaði á Íslandi. Þegar þeir koma aftur er þessi staður þeirra fyrsta val,“ segir Sigurður. RALLKAPPI Í YFIR 20 ÁR Hann er óvenjulegur forstjóri að því leyti að hann hefur keppt í rallakstri í yfir tuttugu ár, sem hann segir kannski ekkert svo skrít- ið fyrir mann í hans stöðu. Það þekkist víða erlendis að yfirmenn fyrirtækja og eigendur dreifi huganum við hraðakstur. Þótt örlögin hafi leikið hann grátt í bílabransanum undanfarin ár stefnir hann á sigur í móta- röðinni í sumar með aðstoðarökumanni sín- um, Ísak Guðjónssyni, sem Sigurður segir sína stoð og styttu í þessu umstangi. Hafa þeir í sameiningu verið meðal fremstu öku- þóra á Íslandi í mörg ár. „Rallið heldur mér ungum,“ útskýrir Sig- urður, sem er 47 ára gamall og var að eign- ast sitt þriðja barn í janúar með konu sinni. Þetta gefi honum gríðarlega mikið og miklu meira en að fljúga, en hann er einnig með einkaflugmannspróf. „Maður verður ekki gamall á því að gera það sem gamla fólkið gerir. Maður verður gamall þegar maður hættir að gera það sem unga fólkið gerir.“ Sigurður nýtir líka reynslu sína úr rallinu í daglegu lífi. „Þú lærir að taka ákvarðanir undir gífurlegri pressu. Þú lærir að sýna ærðuleysi. Þú lærir eitt sem er mjög mikil- vægt; þér hefnist fyrir ef þú klúðrar beygju og þá verður þú að gleyma því strax því ann- ars klúðrar þú næstu beygju. Þessa speki er hægt að yfirfæra á lífið almennt.“ Það má kannski segja að Sigurður hafi ekki klúðrað mörgum beygjum eftir að hann kom heim úr verkfræðinámi árið 1984. Í það minnsta hefur hann lært af mistökunum, ef einhver eru. Strax eftir nám réð hann sig sem framleiðslustjóra í Plastprenti. Árið 1988 tók hann við stöðu framkvæmdastjóra Sigurplasts hf. Rúmum tíu árum síðar var hann beðinn að koma aftur til Plastprents og þá sem f r a m k v æ m d a s t j ó r i . Gegndi hann stöðu fram- kvæmdastjóra í báðum þessum fyrirtækjum þang- að til þau voru sameinuð. VAXANDI FYRIRTÆKI Sigurður segir Plastprent hafa vaxið mikið síðustu ár. Árið 1996 var félagið skráð sem al- menningshlutafélag á Verðbréfaþingi, eins og það hét þá. Það var síðan tekið af markaði árið 2003 og hefur eignarhald nokkuð þjappast saman síð- an. Sigurður segir aðspurður að félög tengd Pálma Har- aldssyni í Feng eigi nú um helmingshlut í fyrirtækinu. Einnig eigi prentsmiðjan Oddi milli 18 og 20 prósent en sjálfur á hann um tíu pró- sent. Hann segir Pálma hafa tengst félaginu í langan tíma. Þegar Sigurður kemur til starfa aftur hjá Plastpenti er veltan um milljarður króna og um 150 manns starfa hjá fyrirtækinu. Helstu samkeppnisaðilarnir á þeim tíma voru tveir; Ako- Plastos á Akureyri og Reykjalundur í Mosfellsbæ. Í lok árs 2000 kaupir Plastprent Ako-Plastos og 2002 Reykjalund. Ári síðar hefst útrásin til Riga í Lett- landi þar sem framleiðslu- fyrirtækið Unifleks er keypt, sem var í sambæri- legum rekstri og Plastprent. Í nóvember á síðasta ári bæt- tist svo annað fyrirtæki, Gerove í Litháen, í Plastprentsfjölskylduna. „Hjá okkur starfa nú um fimm hundruð manns í þremur löndum og við veltum um 2,5 milljörðum króna á þessu ári. Þetta eru gíf- urlegar breytingar og auðvitað taka þær í,“ segir Sigurður. Plastprent hafi staðið uppi með mikið af aukavélum eftir ýmsar samein- ingar árin á undan, sem voru vannýttar. Plastprent hafi keypt fyrirtækin ytra með skuldsettri yfirtöku og látið þau kaupa vél- arnar frá Íslandi. „Á meðan það gengur að láta fyrirtækin borga upp lánið getum við ekki kvartað. Þessi rekstur þolir samt ekki mikið tap.“ Sjálfur er hann mikið á ferðinni á milli landanna en sér fyrir sér mögulegar breyt- ingar á því. Hann sé stjórnarformaður fyrir- tækjanna ytra ásamt því að vera fram- kvæmdastjóri móðurfélagsins heima á Ís- landi. Þegar hann dvelji lengi ytra þurfi hann að reiða sig á gott fólk heima. Þetta sé mikið starf sem ef til vill þurfi að skipta upp þó ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. SAMKEPPNIN VIRK Hann þverneitar því að- spurður að Plastprent hafi yfirburðastöðu á íslenskum markaði. Þótt fyrirtækið sé stórt og meðal fimm pró- sent þeirra fullkomnustu á sínu sviði í heiminum séu aðgangstakmarkanir að markaðnum og innflutn- ingshindranir hingað til lands engar. Það starfi því undir aga markaðarins. Plastprent sé vissulega með stóra markaðshlutdeild en ávallt séu smærri aðilar með ákveðið framboð af vörum. Sigurður er í stjórn Sam- taka iðnaðarins og eins og fleiri í þeim samtökum er hann afar óhress með það hvernig efnahagsmálum er stjórnað, sérstaklega í ljósi þróunar á gengi krónunnar. Vegna framkvæmda við stóriðju á landinu hækki gengi krónunnar og fjölmörg störf í iðnaði, jafnvel heilu fyr- irtækin, flytjist til útlanda. Þau þoli ekki þetta ástand til langs tíma. Hann biður menn að spyrja sig hvort það sé þess virði að skapa þessi störf í álveri ef fleiri störf flytjist út. Hádegisverður fyrir tvo á Þremur frökkum Súpa dagsins Grillsteiktur steinbítur á rjómapiparsósu Heilsteikt rauðsprettuflök með rækjum „Gratin“ Drykkir: Vatn, kaffi Verð: kr. 3.740 ▲ H Á D E G I S V E R Ð U R I N N Með Sigurður B. Guðmundssyni framkvæmdastjóra Plastprents Stjórnmálin eru vannýtt auðlind Aurasálin hitti gamlan félaga sinn í brúðkaupi síðasta fimmtu- dag (já - auðvitað var Aurasál- inni boðið í brúðkaup aldarinn- ar). Þessi gamli félagi starfar nú sem ráðgjafi á alþjóðasviði fyr- irtækjaráðgjafar í stórum ís- lenskum banka. Sérsvið hans er samþætting menningarlegra núningsflata í viðskiptaumhverf- inu auk þess sem hann er sér- fróður um Feng Shui. Þessi félagi Aurasálarinnar vinn- ur semsagt sem túlkur og sér um að raða húsgögnum. En hann græðir vel á þessu og það mátti nú minna sjá í brúðkaupinu. Hann mætti ekki í hefðbundnum jakkafötum heldur í einhvers konar hörspennitreyju sem mun hafa kostað í kringum fimmtíu þúsund krónur. „Þetta fæst ekki á Íslandi,“ upplýsti vinur Aurasál- arinnar stoltur en sagði að hann myndi henda spennitreyjunni um leið og hann sæi einhvern annan Íslending í þannig fötum. Þessi vinur Aurasálarinnar býr í Sæviðarsundi, þannig að hann þarf svo sem ekki að fara langt. En Aurasálin hefur ekki áhuga á að vinna í banka. Hún telur að það séu til auðveldari leiðir til að græða peninga og á síðustu mánuðum hefur runnið upp fyrir henni ljós. Leiðin er augljós. Það tilkynnist því hér með, á þessum vettvangi, í fyrsta sinn að í upphafi þessarar viku gekk Aurasálin sem leið lá í höfuð- stöðvar Frjálslynda flokksins og skráði sig úr flokknum. Því næst heimsótti Aurasálin höfuðstöðv- ar Framsóknarflokksins og sótti um inngöngu. Í gær fékk Aura- sálin svo bréf frá forsætisráð- herra þjóðarinnar þar sem hún var boðin velkomin í flokkinn. Um leið og bréfið var komið hringdi Aurasálin í Skinney - Þinganes og spurði hvað hún myndi eignast mikið í félaginu. Aurasálin er nú ekki frá því að það hafi komið fát á símastúlk- una en hún fann ekki Aurasálina á hluthafalistanum, en reyndar hefur þessi hluthafalisti verið eitthvað illa uppfærður upp á síðkastið þannig að þetta hefur ekki verið komið inn. Aurasálin bindur miklar vonir við inngöngu sína í Framsóknar- flokkinn. Nú þarf bara að velja starfsvettvang innan flokksins. Best líst Aurasálinni á starf for- stjóra Fjármálaeftirlitsins sem er að losna. Aurasálin kann þá list að vera hörð þegar það á við en sjá í gegnum fingur sér með smávægileg mál sem snerta mikilvæga hagsmuni Framsókn- arflokksins. Þessi gaur sem er að hætta núna hefur verið alltof hlutlaus í pólitíkinni að mati Aurasálarinnar. Fjármálaeftirlit- ið er algjörlega vannýtt auðlind bæði fyrir Aurasálina og Fram- sóknarflokkinn. A U R A S Á L I N „Hjá okkur starfa nú um fimm hundruð manns í þremur löndum og við veltum um 2,5 milljörðum króna á þessu ári.“ Framleiðir allt úr plasti Líklegt er að hver Íslendingur handleiki vörur Plastprents á degi hverjum. Skiptir þá engu hvort við erum að handleika innkaupapoka, pylsusinnep eða ná í föt í fatahreinsun. Sigurður B. Guðmundsson, framkvæmda- stjóri Plastprents, segir Björgvin Guðmundssyni frá rekstri fyrir- tækisins. SIGURÐUR BRAGI GUÐMUNDSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI PLASTPRENTS Sigurður segir að hann hafi lært eitt mjög mikilvægt í rallinu. „Þér hefnist fyrir ef þú klúðrar beygju og þá verður þú að gleyma því strax því annars klúðrar þú næstu beygju. Þessa speki er hægt að yfirfæra á lífið almennt.“ Fr ét ta bl að ið /G VA Sigurður Bragi Guðmundsson Fæðingardagur: 3. febrúar 1958 Maki: Irina Kiry, læknir Börn: Þrjú; 9 ára, 4 ára og tæplega fimm mánaða

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.