Fréttablaðið - 22.06.2005, Qupperneq 46
MIÐVIKUDAGUR 22. JÚNÍ 2005 MARKAÐURINN22
F Y R S T O G S Í Ð A S T
Páll Gunnar Pálsson tekur við
starfi forstjóra hins nýja Sam-
keppniseftirlits þann 1. júlí næst-
komandi. Markaðurinn sendi
honum póst og forvitnaðist um
vonir og væntingar hans til
starfsins.
Hvernig leggst
nýja starfið í þig?
Það leggst vel í
mig. Nýtt sam-
keppniseftirlit
mun byggja á
þeim grunni sem
þegar hefur ver-
ið lagður en síð-
an verður svig-
rúm til að móta
stofnunina til
frekara gagns
fyrir samfélagið.
Í hverju felst
starf forstjóra
Samkeppniseftir-
litsins?
Forstjóri annast
daglega stjórnun
á starfsemi og
rekstri stofnun-
arinnar. Megin-
verkefni for-
stjóra er að sjá
til þess að á hverjum tíma
starfi fjölbreyttur hópur hæfra
starfsmanna að verkefnum
þeim sem Samkeppniseftirlit-
inu er ætlað að sinna og að
verkin séu unnin með skilvirk-
um og vönduðum hætti. Svona
starfsemi stendur að sjálfsögðu
og fellur með því starfsfólki
sem vinnur verkin. Mannleg
samskipti skipta því miklu máli
í svona starfi.
Telur þú að breytingarnar á
skipan samkeppnismála séu til
batnaðar?
Það mun m.a. ráðast af því
hvernig Samkeppniseftirlitið
skipuleggur sín störf og vinnur
verkin. Ætlunin er að veita
meiri fjármunum í þessi verk-
efni og Samkeppniseftirlitið
mun kappkosta að nýta þá fjár-
muni sem best og ganga eftir
því að fjárhagslegt svigrúm til
þessa eftirlits verði nægilegt.
Breytingarnar nú fela hins veg-
ar ekki í sér miklar breytingar
á reglum á samkeppnismarkaði
eða heimildum í samkeppnis-
eftirliti. Ég ætla að geyma mér
að tjá skoðanir mínar á þeim
þætti en vænti þess að Sam-
keppniseftirlitið taki virkan
þátt í opinberri umræðu um
samkeppnisreglur og þau tæki
sem það þarf á að halda til að
sinna hlutverki sínu.
Nú hefur talsvert verið rætt um
afskipti stjórnvalda af sam-
keppnismálum í landinu. Telur
þú að með breytingunum verði
samkeppnisyfirvöld óháðari
stjórnvöldum en áður?
Ég get ekki svarað því hvernig
afskipti stjórnvalda af sam-
keppnismálum hafa horft við
Samkeppnisstofnun hingað til.
Ég vænti þess hins vegar að
þau verði sem
minnst í tíð Sam-
keppniseftirlits-
ins. Það stjórn-
skipulag sem lög
mæla fyrir um í
nýju Samkeppnis-
eftirliti er líklegt
til að stuðla að
sjálfstæði stofn-
unarinnar þar sem
forstjóri sækir
ekki umboð sitt til
ráðherra heldur
fjölskipaðrar
stjórnar sem fer
með yfirstjórn
Samkeppniseftir-
litsins. Ég geng út
frá því að aðkoma
stjórnvalda að
Samkeppniseftir-
litinu einskorðist
við það að tryggja
nægilega fjár-
muni til verkefn-
isins. Samkeppniseftirlitið mun
hins vegar ótvírætt ráða því
hvernig það hagar störfum sín-
um innan samkeppnislaga.
Hvernig er staðan á íslensku
viðskiptalífi? Hvað er það sem
forstjóri hins nýja eftirlits þarf
helst að hafa áhyggjur af?
Samkeppniseftirlitið þarf að
huga vel að stjórnunar- og
eignatengslum í íslensku við-
skiptalífi. Margt bendir til þess
að eignatengsl séu að verða sí-
fellt flóknari og að eftir mikið
umbreytingaferli þurfi að gæta
þess vel að óæskileg tengsl
dragi ekki úr samkeppni. Sam-
keppniseftirlitið þarf að gera
sig gildandi í þessu verkefni
sem og öðrum verkefnum sem
undir það heyra.
Stenst skipan samkeppnismála í
landinu fyllilega samanburð við
þær þjóðir sem við miðum
okkur helst við?
Það verður keppikefli Sam-
keppniseftirlitsins að gæta þess
að svo sé. Ég kem ekki að þessu
starfi með fyrirfram mótaðar
skoðanir á því hver staðan sé
núna. Ég veit hins vegar úr
mínu fyrra starfi hversu mikil-
vægt það er fyrir íslenskt við-
skipta- og efnahagslíf að eftir-
litsstofnanir á þessu sviði og
þær reglur sem þær framfylgja
standist samanburð við ná-
grannalöndin. Það er mikilvægt
með tilliti til samkeppnishæfni
íslensks markaðar í heild sinni.
Stendur og fellur
með starfsfólkinu
T Ö L V U P Ó S T U R I N N
Til Páls Gunnars
Pálssonar
forstjóra
Samkeppniseftirlitsins
Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra lagði á
síðasta ári fyrir Alþingi frumvarp um breytingu á
samkeppnislögum. Fól það í sér talsverðar breyt-
ingar á eftirliti opinberra stofnana með samkeppn-
is- og markaðsmálum. Frumvarpið fékkst sam-
þykkt og felur í sér að skipan samkeppnismála
verður tekin í gegn.
BREYTINGAR
Samkeppnismál og eftirlit voru áður á könnu
þriggja stofnanna; Samkeppnisstofnunar, sam-
keppnisráðs og Löggildingarstofu. Verða þær allar
lagðar niður.
Í stað þeirra koma tvær nýjar stofnanir; Sam-
keppniseftirlitið og Neytendastofa. Neytendastofa
skal taka við verkefnum Samkeppnis-
stofnunar er lúta að neytendum og
þeim verkefnum sem unnin eru hjá
Löggildingarstofu.
Samkeppniseftirlitið mun eins og
nafnið gefur til kynna taka að sér önnur
verkefni sem áður voru á könnu Sam-
keppnisstofnunar. Með yfirstjórn Samkeppniseftir-
litsins fer þriggja manna stjórn, skipuð af ráðherra
til fjögurra ára í senn. Stjórnin ræður síðan for-
stjóra eftirlitsins, sem annast daglega stjórnun og
rekstur auk þess sem hann ræður starfsmenn stofn-
unarinnar. Hefur stjórnin nú skipað forstjóra og er
það Páll Gunnar Pálsson, sem áður starfaði hjá
Fjármálaeftirlitinu.
HLUTVERK OG VALDSVIÐ
Í verklýsingu Samkeppniseftirlitsins sem finna
má í nýjum samkeppnislögum er hlutverk þess og
valdsvið skilgreint ítarlega. Eftirlitinu ber að sjá til
þess að atvinnurekendur fari að samkeppnislögum
og að ákvarða aðgerðir opinberra fyrirtækja gegn
samkeppnishamlandi hegðun fyrirtækja.
Jafnframt er eftirlitinu ætlað að gæta þess að
opinberir aðilar hamli ekki samkeppni, benda yfir-
völdum á leiðir til að gera samkeppni virkari og að
auðvelda aðgang nýrra aðila að markaði.
Eftirlitið skal fylgjast með því hvort einkenni
hringamyndunar sé að finna í íslensku viðskiptalífi,
eða önnur einkenni valdasamþjöppunar sem tak-
markað geti samkeppni.
Samkeppniseftirlitinu er í sjálfsvald sett hvort
erindi sem stofnuninni berst gefi nægar ástæður til
rannsóknar. Ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins
sæta kæru til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar
samkeppnismála. Þar sitja þrír menn, skipaðir af
ráðherra eftir tilnefningu Hæstaréttar.
MEIRA, HRAÐAR OG BETUR
Formaður stjórnar Samkeppniseftirlitsins er
Gylfi Magnússon hagfræðingur. Hann segir hugs-
unina með breytingunum fyrst og fremst vera þá að
skilja í sundur eftirlit með samkeppnishömlun og
neytendavernd.
Neytendastofa muni taka yfir mörg verkefna
Samkeppnisstofnunar og Löggildingarstofu: ,,Það
fer betur á því að hafa verkaskiptingu
svona,“ segir Gylfi.
Hann telur Samkeppniseftirlitið nú
geta einbeitt sér að þeim málum sem
lúta að samkeppni í landinu: ,,Sam-
keppniseftirlitið getur þá einblínt á
þætti sem snúa beint að samkeppni
milli fyrirtækja; spurningum um hluti eins og sam-
ráð, markaðsráðandi stöðu, samruna og ýmis önnur
verkefni sem skipta höfuðmáli fyrir heilbrigða
samkeppni á Íslandi“.
Gylfi bendir á að um talsverða kerfisbreytingu
sé að ræða og hugmyndin sé sú að einfalda ákvarð-
anatöku. Samkeppnisstofnun hefur hingað til ekki
tekið ákvarðanir heldur aðeins undirbúið mál fyrir
neytendaráð, sem síðan hefur úrskurðað. Sam-
keppniseftirlitið sjálft mun nú taka ákvarðanir:
,,Með þessu er ferlið allt stytt og einfaldað,“ segir
Gylfi.
Áfrýjunarferlið verður þó eftir sem áður svipað:
,,Úrskurðum Eftirlitsins má áfrýja til áfrýjunar-
nefndar samkeppnismála og þaðan til dómstóla,
telji menn þess þörf“.
Gylfi velkist ekki í vafa um að breytingarnar séu
til batnaðar: ,,Ég er alls ekki að kasta rýrð á verk
Samkeppnisstofnunar en það er ýmislegt sem betur
má fara í þessum málaflokki“.
Fjárveitingar til samkeppnismála verða auknar
og telur Gylfi það skipta gríðarlegu máli: ,,Með
meira fé á að vera hægt að gera meira, hraðar og
betur en til þessa“.
GYLFI MAGNÚSSON, FORMAÐUR STJÓRNAR SAMKEPPNISEFTIRLITSINS Segir breytingarnar á skipan samkeppnismála til hins
betra. Með auknu fé megi gera „meira, hraðar og betur en til þessa“.
Ákvarðanatökuferlið
stytt og einfaldað
Þann 1. júlí næstkomandi taka breytingar á samkeppnislögum gildi. Meira
fé verður veitt til málaflokksins og skipulagsbreytingar gerðar. Jón Skafta-
son rýndi í nýju lögin og spjallaði við Gylfa Magnússon, formann stjórnar
Samkeppniseftirlitsins.
M Á L I Ð E R
Samkeppnis-
eftirlitið