Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 38
EFST: Glös úr línunni Punktur Punktur, en þau eru kúpt að neðan og velta aðeins, þó ekki
um koll. FYRIR OFAN: Postulínsskálar sem líta út eins og skeljar og eru sérstaklega lagaðar
að fingrunum. TIL HÆGRI: Kristín Garðarsdóttir listakona við settið litríka.
Hamraborg 1-3
200 Kópavogi
Gsm: 894 8404
Álagabollar og punktar
Kristín Sigfríður Garðarsdótt-
ir listakona í stúdíó Subbu í
Hamraborg í Kópavoginum
býr til skemmtilega bolla og
skálar fyrir báðar hendur.
„Bollunum fylgja þau álög að ef
maður heldur um bollann fyrir
vinstri hönd hefur það áhrif á
hægra heilahvel og öfugt,“ segir
Kristín Sigfríður Garðarsdóttir
listakona á meðan hún hellir
postulíni í sérstök mót á vinnu-
borði sínu. Hún er að búa til bolla
sem eru annars vegar fyrir hægri
hönd og hinsvegar fyrir vinstri. Á
bollunum er ekkert handfang,
heldur eru innhleypt för eftir
fingur á bollunum, þannig að
maður heldur utan um hann allan
á meðan drukkið er úr honum.
„Hugmyndin kom í tengslum
við sýningu í Berlín á íslenskri
hönnun. Okkur sem tókum þátt í
henni var ætlað að hanna eitthvað
sem væri gjöf til handa álfum og
huldufólki og þetta var mín gjöf,“
segir Kristín Sigfríður. Hina
skemmtilegu hugmynd um handa-
farið í bollanum má einnig sjá í
litlum skálum sem hún er nýbúin
að gera.
„Þetta er alveg nýtt hjá mér og
er sama hugmyndin sem ég hef
þróað áfram,“ segir Kristín
Sigfríður en skálarnar eru einnig
fyrir báðar hendur. Allt fellur
þetta svo að stellinu Punktur
Punktur sem er bæði hvítt og lit-
ríkt stell með diskum og allaveg-
ana skálum, þar sem hér og þar
skjóta punktar upp kollinum.
„Annars hugsa ég þetta ekki sem
eitthvert tólf manna stell, heldur
er hægt að blanda þessu allaveg-
ana saman og leika sér með
þetta,“ segir Kristín Sigfríður, en
leikur er einmitt inntakið í verk-
lagi hennar sem augljóslega skil-
ar sér í verkin hennar.
Nálgast má hluti eftir Kristínu
í Kirsuberjatrénu við Vesturgötu
og skoða úrvalið á vefsíðunni
www.subba.is.
kristineva@frettabladid.is
8 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Brúðarlistar.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Postulínsbollar fyrir hægri og vinstri hönd.