Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 6
6 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Orkuveita Reykjavíkur sér Alcan fyrir raforku fyrir stærra álver:
Fá 60 milljar›a fyrir raforkuna
ÁLVER Fulltrúar Alcan á Íslandi og
Orkuveitu Reykjavíkur hafa skrif-
að undir samkomulag um að Alcan
kaupi af Orkuveitunni 200 MW af
raforku vegna hugsanlegrar
stækkunar álversins í Straumsvík.
Gert er ráð fyrir að orkan geti ver-
ið til afhendingar seinni hluta árs
2010 og að tekjur Orkuveitunnar
verði um 60 milljarðar króna á
samningstímanum. Áætlað er, að
gengið verði frá endanlegum
samningi síðar á þessu ári.
Alfreð Þorsteinsson, stjórnar-
formaður Orkuveitunnar, segir
samninginn hagstæðan fyrir fyrir-
tækið og borgarbúa alla. Raforkan
verður útveguð með aukinni nýt-
ingu á jarðvarma á Hengilssvæð-
inu og með virkjun á Hellisheiði.
„Þessir samningar styrkja mjög at-
vinnulífið hér á höfuðborgarsvæð-
inu, bæði á meðan á framkvæmd-
um stendur og eins þegar álverið
er komið í fulla stærð. Talið er að
þegar stækkun sé lokið skapist 500
ný störf við álverið með margfeld-
isáhrifum þannig að við erum að
tala um 1500 ný störf í allt,“ segir
Alfreð. - oá
Ker stefnir ríkinu vegna sektar samkeppnisyfirvalda:
Vilja milljónirnar endurgreiddar
DÓMSMÁL Mál Kers hf. á hendur ís-
lenska ríkinu og samkeppnisyfir-
völdum verður þingfest í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í dag.
Fyrirtækið krefst þess að úr-
skurður áfrýjunarnefndar sam-
keppnismála frá því í janúar verði
felldur úr gildi, en til vara að sekt-
argreiðslur fyrirtækisins verði
stórlega lækkaðar. Ker á Olíufé-
lagið ehf., Esso, en áfrýjunar-
nefndin sektaði félagið um 495
milljónir króna.
„Umbjóðandi minn telur nauð-
synlegt að dómstólar meti þau
lögfræðilegu sjónarmið sem
liggja að baki niðurstöðu sam-
keppnisyfirvalda og mun leggja
fram ný gögn frá óháðu endur-
skoðunarfyrirtæki sem sýnir
svart á hvítu að forsendur og að-
ferðafræði útreiknings sam-
keppnisyfirvalda eigi við lítil, ef
þá nokkur, rök að styðjast,“ segir
Kristinn Hallgrímsson, lögmaður
Kers. Hann segir Ker líta svo á að
burtséð frá fjárhæðum sekta sé
nauðsynlegt að vinda ofan af
röngum útreikningum um mein-
tan ólögmætan ávinning. „Því við
því er að búast að viðskiptamenn
félagsins muni freista þess að
fara í skaðabótamál á hendur því
og þá skiptir máli að þessir út-
reikningar séu réttir.“
-óká
Ljóslei›aravæ›ing
d‡rari en ætla› var
Orkuveita Reykjavíkur hefur hafna› öllum tilbo›um í lagningu ljóslei›ara á Akranesi
og Seltjarnarnesi flar sem flau voru langt yfir kostna›aráætlunum fyrirtækisins. Vara-
ma›ur í stjórn Orkuveitunnar gagnr‡nir fyrirtæki› fyrir ranga áætlanager›.
FRAMKVÆMDIR Tilboð í lagningu ljós-
leiðara í hús á Akranesi og á Sel-
tjarnarnesi gera ráð fyrir nálægt
þrefalt meiri kostnaði en ráð er fyr-
ir gert í kostnaðaráætlun Orkuveitu
Reykjavíkur. Orkuveitan hefur
hafnað öllum tilboðunum.
Leggja á ljós-
leiðara í um 650
hús á hvorum
stað og gerði
Orkuveitan ráð
fyrir kostnaði
upp á tæpar 100
þúsund krónur á
Seltjarnarnesi og
tæpum 70 þúsund
krónum á Akra-
nesi. Á Akranesi
gerir lægsta boð
ráð fyrir kostnaði
upp á um 175 þús-
und krónur fyrir
hvert hús og á
Se l t jarnarnes i
fyrir kostnaði
upp á um 268 þús-
und krónur.
„Við eigum ekki von á því að
verkin fari fram úr kostnaðaráætl-
unum og teljum að hjá bjóðendum
sé einhver misskilningur á ferð-
inni,“ segir Guðmundur Þórodds-
son, forstjóri Orkuveitunnar og
kvað útboð annað hvort verða end-
urtekin eða þá að Orkuveitan sæi
sjálf um verkið. Hann teldur fyrir-
tækin ofmeta kostnað við skurð-
gröft.
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir,
varamaður Sjálfstæðisflokksins í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur, segir
fulltrúa flokksins í stjórn fyrirtæk-
isins alla tíð hafa mótmælt ljósleið-
araframkvæmdum Orkuveitunnar
og þá sérstaklega með tilliti til kol-
rangrar áætlanagerðar. Hún óttast
að á Reykvíkinga falli ómældur
kostnaður vegna þess að Orkuveit-
an hafi þegar skuldbundið sig til að
ljósleiðaravæða bæjarfélögin. „Svo
felur þetta ekki einu sinni í sér allan
kostnaðinn við að grafa ljósleiðar-
ann,“ segir hún og bendir á að for-
stjóri Orkuveitunnar hafi áður sagt
hverja tengingu kosta um 100 þús-
und krónur. Hún segir hrópandi
ósamræmi milli lýsinga Guðmund-
ar og svo niðurstöðu útboðanna og
telur allar áætlanir Orkuveitunnar
varðandi tímaáætlanir, gjaldtöku og
þátttöku íbúa kunna að vera í upp-
námi.
Forstjóri Orkuveitunnar telur þó
ekki að tímamörk raskist mikið í
heildarverkinu þrátt fyrir að fyrstu
tilboðum hafi verið hafnað, en
stefnt er að því að ljúka ljósleiðara-
væðingu á stórhöfuðborgarsvæðinu
á næstu fjórum til fimm árum. „Það
má alltaf reikna með að einhvern
tíma taki að klára fyrstu áfangana,
en svo getur líka verið að við seink-
um framkvæmdum ef þær verða
mjög dýrar.“ olikr@frettabladid.is
Ný kanadísk lög:
Sigur fyrir sam-
kynhneig›a
KANADA, AP Kanadíska þingið sam-
þykkti ný lög sem leyfa samkyn-
hneigðum að ganga í hjónaband.
Töluverðrar andstöðu hefur gætt
meðal íhaldssamari þingmanna og
atkvæðagreiðslan féll þannig að 158
þingmenn samþykktu lögin gegn
133.
Flest héruð landsins hafa þegar
leyft samkynhneigðum að giftast og
felast því einungis breytingar í nýju
lögunum fyrir sum ríki.
Kanada er því þriðja landið í
heiminum sem gefur hjónabandi
samkynhneigðra sömu réttarstöðu
og hjónabandi milli karls og konu en
fyrir hafa Holland og Belgía gert
þessar breytingar á löggjöf sinni. ■
Hefur þú farið á stórtónleika í
sumar?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á að reisa óperuhús í Kópa-
vogi?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
86%
14%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Á BENSÍNSTÖÐ OLÍUFÉLAGSINS Í REYKJAVÍK Þingfest verða tvö mál tengd Keri hf. í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í dag. Annars vegar mál Kers á hendur ríkinu og hins vegar prófmál
Neytendasamtakanna á hendur Keri þar sem viðskiptamaður fyrirtækisins krefst bóta fyrir
tap af ólögmætu samráði olíufélaganna.
SAMKOMULAGIÐ UNDIRRITAÐ 500 ný störf skapast við stækkun álversins í Straumsvík.
AKRANES Forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur segir fyrirtækin sem buðu í ljósleiðaravæðingu
bæjarins stórlega ofmeta kostnaðinn sem verkinu fylgi. Hann segir þau gera ráð fyrir
óþörfum skurðgreftri.
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
GUÐMUNDUR
ÞÓRODDSSON
ÁÆTLAÐUR KOSTNAÐUR VIÐ FYRSTA ÁFANGA
LJÓSLEIÐARAVÆÐINGAR OR SAMKVÆMT ÚTBOÐI
Útboð 1. verkáfanga gagnveitu á Akranesi:*
Bjóðendur Tilboð Hlutfall af áætlun Kostnaður á hús
Industria ehf 113.763.300 kr. 258,55% 175.020 kr.
Ístak hf 145.071.783 kr. 329,71% 223.187 kr.
Kostnaðaráætlun 44.000.000 kr. 100,00% 67.692 kr.
Útboð 1. verkáfanga gagnveitu á Seltjarnarnesi:**
Bjóðendur Tilboð Hlutfall af áætlun Kostnaður á hús
Ístak 174.348.443 kr. 272,42% 268.228 kr.
Industria ehf. 199.605.301 kr. 311,88% 307.085 kr.
Steypustál ehf. 199.627.500 kr. 311,92% 307.119 kr.
Kostnaðaráætlun 64.000.000 kr. 100,00% 98.462 kr.
*Tilboð opnuð 16. júní. **Tilboð opnuð 23. júní.