Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 62
42 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Það skal viðurkennt. Simon Le Bon var aldrei minn maður. Það var eitthvað við hann sem mér þótti ekki nógu gott, að minnsta kosti ekki fyrir mig. Sem mikill Duranisti átti ég mér þó minn mann. Nú er hann kominn til landsins. Heldur tónleika í kvöld og ég kemst ekki til þess að segja honum að ég hafi alltaf elskað hann. Jafnvel þótt hann hafi alltaf verið pínu lúðalegur. Jafnvel þó svo hann hafi verið ná- unginn sem fyrst gekk úr skaftinu og var því upphafið af upplausn hljómsveitarinnar. Jafnvel þótt hann hafi kosið sveitalíf með eigin- konunni fram fyrir glamúrinn, eða kannski þess vegna, þó aldrei hafi verið hægt að saka mig um mikla sveitarómantík. Feimni dökkhærði strákurinn á bak við trommurnar, var minn mað- ur. Roger Taylor – úhhh. Fékk mig til að kikna í hnjánum á mínum ung- lingsárum og þá hefði ég allt gert til þess að komast í námunda við hann. Nú nenni ég ekki að reyna að hafa fyrir því að skipta um vaktir til að komast á hljómleikana. Mun bara sitja í mínum stól og skelli svo bara Duran diskunum í tækið þegar heim kemur. Syng með fullum hálsi; „ Some people call it a one night stand, but we can call it paradise.“ Svona textar eru enn skrifaðir, en ekki af jafnmiklum töffurum og Duraninu. Þeir voru þarna fleiri í bandinu en Simon og Roger. Nick Rhodes, á hljómborðinu, sannarlega lífgaði upp á allar umræður um hljómsveit- ina. En hans nærvera var alltaf að- eins of mikil til að vera „sætasti strákurinn.“ John Taylor var alltof mikill töffari til að vera mín týpa, og ekki skánaði það eftir að hann flutti til Bandaríkjanna til að búa til kvik- myndatónlist. Þá varð hann svona Kaliforníutöffari, sem bara gerir ekkert fyrir mig. Andy Taylor var svona varaskeifa. Ef ég gæti ekki gifst Roger Taylor, þá kæmi Andy alveg til greina. Nú er eiginlega al- veg útséð með að ég giftist hvorug- um. Þess vegna er ég ekki alveg að missa mig, þó töffarar unglingsára minna séu loksins komnir til Íslands. STUÐ MILLI STRÍÐA SVANBORG SIGMARSDÓTTIR RIFJAR UPP TÖFFARA UNGLINGSÁRANNA Roger, ég elska þig! M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Einn, tveir, þrír, fjórir, fimm og SEX! Og sjö, átta, níu, TÍU! Ég er svo klikkaður, klikkaður, klikkaður!! Haralduuuur! Núna springa þeir! Elsku Stan- islaw minn, Ég held við séum búnir að finna lykil- inn að ánægjuríku sumarfríi. Þú meinar lykil- inn að „engu“? Já, og nóg af því. Hvað er nú þetta?! Þetta er vélmenna- hundur. Af hverju?? Af því að hann geltir ekki, nagar ekki dótið manns, étur ekki rusl né eyðileggur húsgögn. Hvaða gagn er þá að honum?? Mamma, hvort ætti ég að vera í bláu eða rauðu peysunni? Ég veit það ekki....mér finnst þær báðar fínar. Þú mátt ráða, veldu bara. Hmm... allt í lagi, ég vel rauðu. Veldu aftur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.