Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 26
Útbreiddur er sá mis- skilningur að nokk sama sé hvar bílalán sé tekið þegar kaupa skal nýjan bíl. Séu tilboð lánsfyrir- tækja borin saman kemur í ljós að kostnaðarmunur getur skipt hundruðum þúsunda króna. NEYTENDUR Munur á lánskostnaði vegna bílalána við kaup á nýjum fólksbíl hjá sex stærstu lánafyrir- tækjunum getur samkvæmt könn- un Fréttablaðsins numið hundruð- um þúsunda og margborgar það sig fyrir þá sem eru í slíkum hug- leiðingum að vanda valið og gera samanburð áður en kaup eiga sér stað. Í dæmi blaðsins var ákveðið að kanna kostnað við kaup á nýjum Toyota Avensis, sem verðlagður er á 2.340.000 krónur frá umboð- inu. Mesti munur á tilboðum lánsfyrirækjanna reyndist vera tæpar 220 þúsund krónur, eins og sést á meðfylgjandi töflu. Þar sem umrædd fyrirtæki bjóða ekki öll þann kost að lána fyrir öllu kaupverðinu var miðað við að kaupandi borgaði innborg- un upp á 585 þúsund krónur og lánsupphæðin því 1.755.000 sem eftir stæði. Öll fyrirtækin nema SP Fjármögnun og Frjálsi fjár- festingarbankinn bæta kostnaði strax við þá fjárhæð og eftir að annar kostnaður, vextir og þóknun bætast ofan á fæst út heildarláns- kostnaður fyrir lántakandann. Sé sú upphæð að fullu greidd á kaup- andinn bíl sinn skuldlausan með öllu. Fyrir lán til bílakaupa að upp- hæð 1.755.000 krónur er dýrast að versla við Glitni og kostar lánið þar 603 þúsund krónur. SP Fjár- mögnun kemur best út og býður sama lán fyrir 385 þúsund krónur. Þessi mikli munur á fyrirtækj- unum skýrist að mestu af mis- munandi kostnaði sem hvert fyrirtæki leggur á hvert lán fyrir sig. Stimpilgjöld, stofngjöld, þing- lýsingargjöld og þóknun hvers fyrir sig er misjöfn og ber að taka fram að ekkert tillit er tekið til ýmissa frádráttarpakka sem flest fyrirtækin bjóða. Er lánskostnað- ur þá lækkaður sé lántakinn þegar í viðskiptum við fyrirtækin eða hafi hug á slíku í leiðinni. Er þannig hægt að spara 15-20 þús- und krónur í viðbót við þær upp- hæðir sem fram koma í töflunni. Tekið skal fram að þeir söluaðilar sem rætt var við hjá viðkomandi lánastofnunum bentu allir á þann möguleika að taka bílasamning fremur en bílalán enda væri það í flestum eða öllum tilfellum hagkvæmara fyrir kaupendur. albert@frettabladid.is 26 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Neysluútgjöld íslenskra heimila jukust um rúm 50 prósent á sjö ára tímabili frá 1995 til áranna 2000 til 2002 samkvæmt ítarlegri rannsókn á út- gjöldum heimilanna í landinu sem Hagstofa Íslands stóð fyrir. Voru niður- stöður þeirra rannsóknar bornar sam- an við aðra slíka úttekt sem gerð var árið 1995. Margt athyglisvert kemur þar fram. Fjölskyldumynstur og heimilisgerð hefur breyst talsvert hin síðari ár. Rúm 34 prósent íbúa á höfuðborgarsvæð- inu 2002 voru hjón eða sambýlisfólk með börn en fjöldi einhleypra á sama svæði var litlu minni, tæp 30 prósent. Tæplega 80 prósent allra í landinu búa í sínu eigin húsnæði. Sjónvarpstæki eru á 97 prósentum íslenskra heimila og fer þeim fjölgandi sem nota fleiri en eitt tæki. Voru til að mynda rúm fimm prósent heimila með fleiri en fjögur sjónvarpstæki árið 2002. Ísskápar eru reyndar algengustu heim- ilistæki á Íslandi. Slíkan skáp má finna á 98,9 prósentum allra heimila. Önn- ur tæki sem ómissandi þóttu á flest- um heimilum fyrir þremur árum voru heimasími, þvottavél, myndbandstæki, bíll og farsími í þessari röð. Miðað við öra þróun og tækjaæði landsmanna má búast við að farsíminn sé nú til á mun fleiri heimilum auk þess sem tölvur hvers konar eru að öllum lík- indum mun algengari en þær voru árið 2002. -aöe Neysla eykst miki› milli ára ÚTGJÖLD HEIMILANNA HÚSBÍLAFLOTINN > FJÖLDI SKRÁÐRA NÝRRA HÚSBÍLA hagur heimilanna ÚTSALAN ER BYRJUÐ Kringlan S. 568 6211 Skóhöllin Hafnarfirði S. 555 4420 Glerártorg, Akureyri S. 461 3322 20 -50 % AF SL ÁT TU R Lífsaugað Þriðjudagskvöld 22-24 NÝJAR REGLUR UM RÉTT FLUGFARÞEGA » Erfiðara að neita farþegum um far Flugfélög þurfa nú að ná samningum við farþega um greiðslu áður en vísað er frá. Ef neyðst er til að vísa farþegum frá eru flugfélög skaðabótaskyld. Sé ferð frestað eða brottför tefst lengur en fimm tíma á farþegi rétt á endurgreiðslu. » Bótaréttur farþega Þegar farþega er neitað um sæti sitt. Endurgreiðsla fargjalds falli flug niður. Bætur komi til ef flugi seinkar um fjóra tíma eða minna í stöku tilfellum Neytendasamtökin: Falleinkunn Akureyringa NEYTENDUR Verslanir í miðbæ Akur- eyrar fá falleinkunn hjá Neytenda- samtökunum fyrir slæmar verð- merkingar sínar í búðargluggum en lög kveða á um að allar slíkar vörur skuli verðmerktar. Aðeins 36 prósent verslana í höfuðstað Norðurlands þóttu vera með góðar merkingar en fjöldi verslana hafði litlar eða alls engar merkingar. Til samanburðar leiddi könnun í Kringlunni í Reykjavík í ljós að rúm 70 prósent verslana þar inni framfylgdu lögum þess- um til fullnustu. - aöe NEYTENDUR Flugfélagið Iceland Ex- press auglýsir þessa dagana hversu auðvelt og ódýrt það sé að fljúga til London með félaginu og taka þátt í þeim fjölmörgu menningar- og tónlistarhátíðum sem þar eiga sér stað. Auglýsir IE þar þar lægstu mögulegu verð félagsins sem eru að mestu uppseld langt fram á haust. Að sögn Samkeppnisstofnunar er líklegt að auglýsingarnar brjóti á bága við lög en skýrt er kveðið á um í lögunum að óheimilt sé að auglýsa verð sem ekki standast þegar til kemur.t - aöe ÓDÝRT KVEÐIÐ Þau fargjöld sem Iceland Express augýsir þessa dagana bjóðast ekki fyrr en í haust og vetur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /T EI TU R Iceland Express: Villandi augl‡singar Hundra›a flúsunda króna munur á bílalánum Glitnir Frjálsi fjárfestingarb. Tryggingamiðstöðin SP Fjármögnun Sjóvá-Almennar Lýsing 2.340.000 2.340.000 2.340.000 2.340.000 2.340.000 2.340.000 585.000 1.848.793 1.755.000 1.783.110 1.755.000 1.829.535 1.876.745 585.000 585.000 585.000 585.000 585.000 6% 6% 6% 6% 6% 6% 603.555 534.950 585.676 385.660 486.666 535.968 26.961 27.261 28.996 26.848 26.723 27.,273 2.358.555 2.289.950 2.340.676 2.140.660 2.241.666 2.290.968 MISMUNANDI BÍLALÁN VEGNA KAUPA Á BIFREIÐ Kaupverð Innborgun Vextir Meðalgr. Heildargr. Lántökukostn.Lánsupphæð 2000 2001 2002 2003 2004 2005 32 39 64 107 171 132 ÁRLEG MEÐALNEYSLA Á HVERT HEIMILI Í HÖFUÐ- BORGINNI 2000-2002 Matur og drykkjarvörur 550 þús. Áfengi og tóbak 138 þús. Föt og skór 215 þús. Húsnæði, hiti og rafmagn 774 þús. Heilsugæsla 135 þús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.