Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 56
30. júní 2005 FIMMTUDAGUR
> Við furðum okkur á ...
... því að framkvæmdastjóri KSÍ skuli ekki
taka á máli Tryggva Bjarnasonar, sem
traðkaði viljandi á andstæð-
ingi. Myndirnar af atvikinu tala
sínu máli og það ber að refsa
leikmönnum fyrir slíkan
fautaskap sem á aldrei að
sjást á vellinum. KSÍ
sendir út röng skilaboð
með því að taka ekki á
málinu og það ekki í
fyrsta sinn.
Heyrst hefur ...
... að Hafnarfjarðarmafían sé svo örugg
um sigur FH í Landsbankadeildinni að
hún sé byrjuð að vinna í íslenskri rokk-
útgáfu af hinu sívinsæla lagi Queen „We
Are the Champions“ sem síðan eigi að
spila í ræmur á sigurhátíðinni.
sport@frettabladid.is
36
> Leiðrétting
Þau leiðu mistök urðu í vinnslu blaðsins
um daginn að Kristinn Jakobsson var
sagður dómari á leik
Fram og Keflavíkur. Hið
réttara er að þann leik
dæmdi Eyjólfur Krist-
insson og hann fékk 6 í
einkunn fyrir sinn fyrsta
leik í efstu deild.
Ólafur Gottskálksson var í gær dæmdur í ótímabundi› leikbann fyrir a› neita a› taka lyfjapróf. Enska
knattspyrnusambandi› vill setja Ólaf í alheimsbann frá knattspyrnu. Ólafur er fyrsti knattspyrnu-
ma›urinn á Englandi sem mætir ekki í lyfjapróf sí›an Rio Ferdinand skrópa›i á sínum tíma.
Ólafur neitaði að taka lyfjapróf
FÓTBOLTI Ólafur lét sig hverfa frá
Englandi í kjölfarið og hefur félag
hans Torquay ekkert heyrt frá
honum síðan. Ólafur verður í leik-
banni þar til hann mætir fyrir
dóm aganefndar enska knatt-
spyrnusambandsins. Ekki er talið
líklegt að Ólafur geri það enda
vissu Bretarnir ekki í gær hvar
hann væri niðurkominn. Ólafur er
staddur á Íslandi og hefur verið
að leika með liði í utandeildinni
síðustu vikur.
Ólafur hefur verið í herbúðum
enska 2. deildarliðsins Torquay
United og hann er fyrsti leikmað-
urinn í Englandi sem er dæmdur í
bann eftir að settar voru á lagg-
irnar nýjar reglur um lyfjamál.
Ástæða þess að Bretarnir breyttu
reglunum er mál Rios Ferdinand
en hann fékk sem kunnugt er átta
mánaða keppnisbann á sínum
tíma fyrir að mæta ekki í lyfja-
próf.
Pakkaði saman
og yfirgaf svæðið
„Leikmennirnir voru á æfinga-
svæðinu þegar lyfjaeftirlitið
mætti í janúar,“ sagði Michael
Bateson, stjórnarformaður Tor-
quay, við breska fjölmiðla í gær.
„Ólafur bað um að sjá lista yfir
þau efni sem voru á bannlista og
spurði hvað myndi gerast ef hann
greindist jákvæður af einhverju
þeirra. Þegar hann fékk að vita
um afleiðingarnar sagðist hann
neita að taka prófið. Pakkaði sam-
an, yfirgaf æfingasvæðið og við
sáum hann aldrei aftur. Við reynd-
um að hringja í hann og skrifa
honum bréf en hann svaraði
aldrei. Hann flutti út úr íbúðinni
sinni og hreinlega hvarf. Hann
átti stórglæsilega kærustu og
skildi hana líka eftir.
Í sannleika sagt held ég að
hann hafi ekki verið að nota eitur-
lyf. Hann var í vandræðum með
öxlina á sér og ef hann var að taka
eitthvað þá var það eflaust tengt
öxlinni á honum.“
Það sem meira er hefur enska
knattspyrnusambandið farið fram
á við alþjóða knattspyrnusam-
bandið, FIFA, að Ólafi verði mein-
að að leika knattspyrnu alls staðar
í heiminum og hans bíður án nokk-
urs vafa að minnsta kosti átta
mánaða keppnisbann fari svo að
hann mæti einhvern tímann fyrir
rétt hjá aganefnd enska knatt-
spyrnusambandsins.
Ekki náðist samband við Ólaf í
gær.
henry@frettabladid.is
Tryggvi Sveinn Bjarnason, varnarmaður
KR, fékk að líta rauða spjaldið í viður-
eign liðsins gegn Val á mánudagskvöld.
Hann hefði með réttu átt að
vera rekinn af velli í fyrri
hálfleiknum þegar hann
traðkaði á lærinu á
Matthíasi Guðmunds-
syni, sóknarmanni
Vals. Ólafur Ragnars-
son, dómari leiksins,
refsaði Tryggva þó ekki
fyrir atvikið og KSÍ segist
ekki geta
refsað
honum eftir
á.
„Dómarinn var ör-
ugglega með augun
á þessu umrædda atviki því boltinn var
þarna við. Dómarinn og hans
samstarfsmenn hljóta að hafa
séð þetta atvik og metið sem
svo að ekki væri um refsivert
brot að ræða, hann getur varla
verið að horfa á eitthvað annað
því boltinn var þarna í þessu
atviki,“ sagði Geir Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri KSÍ.
Málið er því ekki í neinu ferli
innan KSÍ.
„Myndavélar geta sýnt fram á
að dómarinn hafi gert
rangt eða rétt en
dómararnir sjá
um að dæma og
þeir sáu atvikið og
dæmdu eftir sinni
upplifun. Sá dómur er því endanlegur.
Dómarinn þarf að taka ákvörðun á ör-
skotsstundu og það getur vel verið að
honum finnist þetta alvarlegra eftir að
hafa séð þetta í sjónvarpinu. Hann er í
þessari erfiðu stöðu að sjá þetta bara
einu sinni og þarf að taka ákvörðun
strax,“ sagði Geir, en þær reglur gilda
að ekki megi nota sjónvarpsupptökur til
þess að dæma menn brotlega eftir á,
reyndar með undantekningum.
„Það er eiginlega bara eitt dómstig í
fótboltanum, þessi sekúnda sem dóm-
arinn hefur til að taka ákvörðun. Það er
endanlegt. Sjónvarpsupptökur hafa
verið notaðar þegar leikmönnum hefur
tekist að brjóta af sér þegar dómarinn
sér ekki til, þá er leyfilegt að nota þær,“
sagði Geir Þorsteinsson.
TRAÐKAÐI Á ANDSTÆÐINGI: EKKERT HÆGT AÐ GERA Í MÁLINU SEGIR FRAMKVÆMDASTJÓRI KSÍ
Tryggva ekki refsa› fyrir fautaskapinn
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
27 28 29 30 1 2 3
Fimmtudagur
JÚNÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 Þróttur og Valur mætast á
Laugardalsvelli í Landsbankadeild
karla.
19.15 FH og Fram mætast á
Kaplakrikavelli í Landsbankadeild
karla.
20.00 Keflavík og Grindavík
mætast á Keflavíkurvelli í Lands-
bankadeild karla.
20.00 HK og Þór mætast á
Kópavogsvelli í 1. deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn endursýnt
fjórum sinnum frá kvöldinu áður.
15.45 Álfukeppnin á Sýn.
Úrslitaleikur Argentínu og Brasilíu.
(e)
19.10 Kraftasport á Sýn. Sterkasti
maður Íslands.
19.40 Landsbankadeildin á Sýn.
Keflavík – Grindavík. (b)
22.00 Olíssport á Sýn.
23.10 Fótboltakvöld á RÚV.
23.15 Landsbankadeildin á Sýn.
Keflavík – Grindavík. (e)
Nýliðavalið í NBA-deildinni:
Bucks valdi
Bogut
KÖRFUBOLTI Hið árlega nýliðaval í
NBA-deildinni fór fram í fyrri-
nótt, þar sem Milwaukee Bucks
átti fyrsta valrétt. Liðið ákvað að
fara öruggu leiðina í valinu og tók
ástralska miðherjann Andrew
Bogut frá Utah-háskólanum.
Bogut er leikmaður sem mun
strax verða liðinu mikill styrkur
og vonast Bucks til að geta byggt
lið sitt í kringum hann á næstu
árum.
Atlanta tók áhættu og valdi
hinn unga framherja Marvin
Williams frá Norður-Karólínuhá-
skólanum, en hann þykir vera lík-
legastur manna til að verða stór-
stjarna í deildinni. Utah fékk
Deron Williams frá Illinois-
háskólanum fyrir þriðja valrétt-
inn og fær þar leikstjórnandann
sem liðið vantaði svo sárlega, rétt
eins og New Orleans Hornets,
sem fékk Chris Paul frá Wake
Forest fyrir fjórða valréttinn. - bb
Mateja Kezman:
Chelsea haf›i
ekki trú á mér
FÓTBOLTI Serbneski sóknarmaður-
inn Mateja Kezman, sem í gær
gekk til liðs við Atletico Madrid
frá Chelsea, segir að þeir blá-
klæddu hafi aldrei haft trú á sér.
„Það voru tuttugu félög sem
vildu fá mig vegna hæfileika
minna. Ég skil ekki af hverju
Chelsea hafði ekki þessa trú á
mér. Allir aðrir virðast halda að
ég hafi burði til þess að verða einn
af bestu framherjum heims,“
sagði Kezman í gær, en hann skor-
aði aðeins fjögur deildarmörk
fyrir Chelsea á síðasta tímabili
eftir að hafa komið frá PSV, þar
sem hann skoraði 105 mörk á fjór-
um leiktíðum. - vig
Tímamót í ítalskri knattspyrnusögu:
Zola leggur skóna á hilluna
FÓTBOLTI Einn ástsælasti knatt-
spyrnumaður Ítala fyrr og síðar,
Gianfranco Zola, tilkynnti í gær
að hann væri hættur að leika fót-
bolta, viku fyrir 39 ára afmælis-
dag sinn.
Zola, sem sló fyrst í gegn með
Napoli, þegar hann var látinn
taka við af sjálfum Diego
Armando Maradona, og Parma á
Ítalíu, lék í sjö ár með Chelsea í
Englandi eftir að hafa komið
þangað frá Parma fyrir 4,5 millj-
ónir punda árið 1996.
Þrátt fyrir að hafa yfirgefið
félagið til að enda ferilinn með
liði Cagliari á Ítalíu verður hann
ávallt í guðatölu á meðal stuðn-
ingsmanna Chelsea og er hans
minnst sem einhvers vinsælasta
leikmanns í sögu félagsins. Á sín-
um ferli með Chelsea skoraði
Zola 80 mörk og hjálpaði félaginu
til að vinna sex titla.
„Þetta var ekki auðveld
ákvörðun en ég fann fyrir sterkri
þrá til að helga mig hlutum sem
ég hef vanrækt á síðustu árum,“
sagði Zola er hann greindi fjöl-
miðlum frá ákvörðun sinni og
mátti sjá á kappanum að
ákvörðunin hafði tekið á.
Zola var verðlaunaður með
OBE-orðunni í Róm árið 2004 fyr-
ir ómetanlegt starf í þágu fótbolt-
ans. - vig
GIANFRANCO ZOLA Átti frábæra leiktíð
með Cagliari í fyrra og höfðu forráða-
menn þar á bæ gert sér vonir um að Zola
myndi spila eitt ár til viðbótar.
FERILLINN Á ENDA? Knattspyrnuferill Ólafs Gottskálkssonar er væntanlega á enda eftir að enska knattspyrnusambandið dæmdi hann í
ótímabundið bann í gær. Líklegt er að Ólafi verði meinað að leika knattspyrnu í öllum löndum heimsins. Ólafur sést hér í leik með
Grindavík gegn Fylki. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Nýbýlavegi 14, Kópavogi. Sími 554 4443. Fax 554 4102.
rafport@rafport.is www.rafport.is
Umboðsmenn um land allt
• Miðar á bréf, pakka, bréfabindi o.fl.
• Á CD/DVD diska, miðar úr plasti
• Prentar miða úr Word-, Excel- og Outlook
• Prentar merkiborða bæði á pappír og plast,
stærðir eftir vali, allt að eins meters langa
• Allt að 62mm breidd
• 50 miðar á mínútu*
• USB tenging
• Windows hugbúnaður
• Sjálfvirk klipping
• Heilar lengjur eða staðlaðar
*Staðlaðir póstfangamiðar
Fljótvirkasti miðaprentarinn
Umboðsaðili:
QL-550
Ti lboðsverð 12.999 kr. Augl. Þórhildar 1390.43