Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 72
52 30. júní 2005 FIMMTUDAGUR Frá því að Antony kom fram á sjónarsviðið fyrir átta árum hefur hróður hans farið ört vaxandi. Á þessu ári hefur hann tekið mikið stökk en í febrúar kom út önnur plata hans, I’m a Bird Now, sem gagnrýnendur hafa keppst við að hefja upp til skýjanna. Antony, sem er klæðskiptingur, hefur hreint út sagt magnaða rödd og tónleikar Antony and The Johnsons þykja sannkallað augna- og eyrnakonfekt. Því hlýtur það að teljast fagnaðarefni að lista- maður sem er að klífa upp á stjörnuhimininn skuli koma til Ís- lands á leið sinni þangað. Hræddur við flugurnar Hæ, hvernig hefurðu það? „Ég hef það nokkuð gott. Við gistum á einhverju draugahóteli sem var eitt sinn geðsjúkrahús,“ segir Antony afar hress með dýpri rödd en ég átti von á. „Þetta var hryllilegt. Það voru svo marg- ar flugur í nótt að ég þorði varla að fara að sofa. Ég var svo hrædd- ur um að þær myndu fljúga upp í munninn á mér,“ segir hann og hlær roknahlátri. „Það var skilti þarna fyrir utan þar sem stóð „ræningjar eru oft á ferli á þessu svæði“. Síðan voru vændiskonur að lemja á hurðir og glugga hót- elsins að reyna að komast inn.“ Þetta hljómar eins og í hryllings- mynd? „Þannig var þetta einmitt,“ segir hann og hlær aftur. Eruð þið ekki í Bretlandi um þess- ar mundir? „Jú, við höfum verið á tónleika- ferð í sex til sjö vikur. Það hefur gengið mjög vel og við höfum skemmt okkur vel.“ Þið voruð nýlega að spila í Queen Elizabeth’s Hall. Hvernig var sú upplifun? „Já, við vorum þar og á tónleik- um til heiðurs Patti Smith. Það var mjög gaman.“ Ertu aðdándi Patti Smith? „Ó, já. Við fórum að sjá hana um daginn og hún tók alla Horses- plötuna. Það var frábært.“ Hún er víst á leiðinni til Íslands og ætlar líka að spila á Nasa. „Er það virkilega? Það er flott.“ Allir eiga fjölskyldu innra með sér Um hvað ertu að syngja á nýju plötunni? „Um hvað er ég að syngja? Bara um mismunandi hluti, hluti sem hafa áhrif á mig, aðdáendur mína, sögur, goðsagnir og ýmis- legt sem vekur áhuga minn.“ Hefurðu áhuga á goðsögnum? „Já, undanfarið hef ég hugsað mikið um hvernig allir eiga fjöl- skyldu innra með sér, móður, föð- ur, strák, stelpu, barn og um mis- munandi erkitýpur. Ég hef verið að hugsa um hvernig samræðurn- ar eru mismunandi á milli þessa fólks og hluti af plötunni fjallar um þetta. Hún fjallar mikið um umskipti og hvernig við tökum að okkur mismunandi hlutverk í líf- inu.“ Lærifaðirinn Lou Reed Þú vinnur með virtum listamönn- um á borð við Lou Reed, Boy Geor- ge, Devendra Banhart og Rufus Wainwright á nýju plötunni. Áttu þér einhverja óskasamstarfsmenn í framtíðinni? „Ég hef hugsað dálítið um það. Mig langar að taka upp plötur fyr- ir aðra listamenn. Það er nokkuð sem ég gæti hugsað mér í framtíð- inni. Annars hjálpuðu mér margir á plötunni og það gerði verkefnið enn mikilvægara fyrir mig.“ Hefurðu ekki spilað mikið með Lou Reed? „Ég fór í heimsreisu með hon- um árið 2003 og við tókum upp plötur saman (The Raven og Animal Serenade). Hann er mjög góður vinur minn og hálfgerður lærifaðir. Hann er mjög vitur og á hverjum degi lærir maður eitt- hvað nýtt af honum. Hann kemur fram með mjög áhugaverðar hug- myndir.“ Ég hef heyrt að fólk úr goth-heim- inum fíli tónlistina þína. Hvað finnst þér um það? „Ég hef ekki tekið eftir miklu af goth-liði á tónleikum hjá mér en samt kemur fólk af öllum toga á tónleikana mína; eldra fólk, yngra fólk og bara allur skalinn, sem er mjög gott mál. Ég hef séð eitthvað af goth-liði og þá aðallega í Þýskalandi. Það virðist vera meira um það þar. En þaðan sem ég kem er ekkert um goth.“ Hverjir eru áhrifavaldar þínir í tónlistinni? „Otis Redding, Marc Almond, Kate Bush, ég bara veit það ekki. Hver sem er eiginlega. Jimmy Scott líka.“ Spenntur fyrir Íslandi Hversu lengi ætlið þið að dvelja hér á landi? „Við verðum hérna í nokkra daga. Ég er svo spenntur að ég get ekki beðið,“ segir hann og nánast skríkir af spenningi. „Á fólk ekki hesta þarna? Hvað gera hestarnir þegar það er myrkur?“ Blaðamað- ur stendur á gati og vindur sér fljótlega í næstu spurningu. Ég hef heyrt að þið séuð frábær á tónleikum. Lofarðu gæsahúð fyrir íslenska áheyrendur á Nasa? „Lofa ég gæsahúð,“ segir Ant- ony og hlær dátt. „Ég skal sér- staklega lofa þér gæsahúð. Ég skal koma með hana í litlum kassa fyrir þig.“ Nýturðu þess að spila á tónleikum? „Það er það skemmtilegasta sem ég geri. Ætlar þú ekki á tón- leikana?“ Þegar blaðamaður svar- ar því neitandi spyr Antony ákveð- inn og nánast mógaður hvers vegna ekki. „Ja, ég er að fara að spila fótbolta í Aserbaídsjan,“ svara ég. „Í Evrópukeppninni.“ „Það er svooo sexý,“ segir Ant- ony þá með sinni flauelsmjúku rödd og blaðamaður veit varla hvaðan á sig stendur veðrið. „Ég trúi þessu ekki. Rútubílstjórinn okkar er frá Aserbaídsjan,“ bætir hann við. „Já, er það?“ svara ég. „Hann bjó þar,“ ansar Antony. „Skilaðu kveðju til hans frá mér,“ segi ég þá. „Það skal ég gera. Heyrðu, ég held við þurfum að hætta. Gangi þér vel í boltanum.“ „Takk og gangi þér vel á Ís- landi.“ ■ Með gæsahúð í litlum kassa Bandaríski tónlistarma›urinn Antony heldur tónleika ásamt hljómsveit sinni, The Johnsons, 11. júlí á Nasa. Tónleikarnir eru li›ur í Evróputúr Antony og mun honum ljúka hér á landi. Freyr Bjarna- son sló á flrá›inn til kappans. GORILLAZ Nýjasta plata Gorillaz, Demon Days, hefur fengið mjög góðar viðtökur. N‡tt smáskífu- lag frá Gorillaz Nýtt smáskífulag af annarri plötu Gorillaz, Demon Days, er komið út. Lagið heitir „Dare“ þar sem ólátabelgurinn Shaun Ryder úr hljómsveitinni Happy Mondays er sérlegur gestur. Demon Days hefur selst í 1.800 eintökum síðan hún kom út hér á landi 23. maí, sem verður að telj- ast mjög góður árangur. Fyrsta plata Gorillaz hefur selst í 3.000 eintökum en hún kom út í júní 2001. ■
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.