Fréttablaðið - 30.06.2005, Blaðsíða 32
Skemmtilegast að
sauma úr tai-silki
Jóna Kristín Snorra-
dóttir er ungur fatahönn-
uður. Hún hannar sína
eigin fatalínu undir merk-
inu JK Hönnun og selur í
Textíl Gallerýi í Skipholt-
inu.
„Ég lærði í fataiðn í Iðnskól-
anum og kláraði skólann
fyrir tveimur árum. Hluti af
náminu fólst í fimm mán-
aða starfsnámi á Ítalíu en
þar vann ég hjá ítölsku fyr-
irtæki sem heitir Simon-
etta. Þetta er hátískufyrir-
tæki sem selur föt
fyrir börn og full-
orðna. Ég var með-
al annars að teikna
og sauma nýja línu
frá Roberto Cavalli,
sem er þekktur í
t í skuheiminum,“
segir Jóna, ánægð
með reynsluna á Ítal-
íu. Eftir fimm mánaða
starfsnám var Jónu
boðin vinna hjá Sim-
onetta en hún ákvað
að fara heim og klára
skólann. Nú er hún
móðir á Selfossi og
hefur nóg að gera í saumaskapnum og
hönnuninni. Hún selur fatnað í Textíl
Gallerýi í Skipholti og tekur auk þess að
sér fjölmörg sérverkefni.
„Ég er aðallega að selja boli, kjóla,
pils, jakka og annan kvenfatnað. Svo sér-
sauma ég líka og hef gaman af því. Ég
hef gert nokkra brúðarkjóla og einnig ís-
lenska hátíðarbúninginn fyrir karl-
menn.“
Hönnun Jónu er fjölbreytt, Hún not-
ar alls konar efni og mynstur. Aðspurð
segir hún að henni þyki skemmtileg-
ast að sauma úr tai-silki en það sé
dýrt. Hún vinnur líka töluvert af ull-
arvörum sem hún selur í verslunum
fyrir ferðamenn.
Jóna segir að fatahönnunar-
bransinn sé erfiður og mikill
dugnaður sé nauðsynlegur
vilji maður ná langt.
„Ég stefni á að opna gall-
erý og saumastofu í Reykja-
vík ásamt stelpu sem útskrif-
aðist með mér. Við vonumst
til að geta byrjað næsta sumar.
Okkur langar að hafa þetta
eitthvað öðruvísi en annars
staðar og erum að velta upp
skemmtilegum hugmyndum
núna,“ segir Jóna Kristín
Snorradóttir.
Hönnun Jónu er hægt að
skoða á heimasíðu hennar
www.jkhonnun.com
thorgunnur@frettabladid.is
Útsölur
Nú er ráð að skella sér á útsölur og gera góð kaup. Sumrinu er fjarri því að vera lokið og enn
nægur tími til að spranga um á sumarfötunum. [ ]
S: 588 5518 Opnunartími • Mörkinni 6
mán. – fös. 10 – 18 • lau. 10 – 16
Mikið úrval af yfirhöfnum
á 50% afslætti
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
30 – 50% afsláttur
Ný tæki - Betra verð!
17.900.-kr.
kr.
12.900.-
Tískuvöruverslun
Glæsibæ
Sími 588 4848
Útsalan byrjar í dag
Jakkar frá 2.700,-
Buxur frá 1.900,-
Bolir frá 950,-
Mikið úrval af flottum fötum
Opið mán-fös 10-18
www.atson.is
Brautarholti 4
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
EI
Ð
A
Röndóttur sumarkjóll.
Verð 11.000 kr.
Svartur blúndubolur. Verð 5.500 kr.
Grænn toppur úr þæfðri ull og með
ísaumuðum pallíettum. 19.500 kr.Hvít peysa úr míkróflísefni. Verð 13.000 kr.
Brúnn flauelstoppur
með handsaumuðu
skrauti. Verð 19.500 kr.
Jóna Kristín starfaði
hjá ítalska tískuhúsinu
Simonetta um tíma.