Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.08.2005, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 18.08.2005, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 BJARTARA SYÐRA Yfirleitt fremur skýjað á landinu og hætt við smá súld eða skúrum með ströndum. Rofar til sunnan og vestan til. Hiti 8-15 stig, hlýjast suðaustan til. VEÐUR 4 FIMMTUDAGUR 18. ágúst 2005 - 221. tölublað – 5. árgangur Haustlegt kryddbrauð með vænni smjörklípu Þórey Ploder Vigfúsdótt- ir, dansnemi við Lista- háskóla Íslands, er mik- ið fyrir að ofnbaka heitan mat og er nýtin á afganga. Hún gefur lesendum uppskrift að dásamlegu kryddbrauði. MATUR 40 ▲ VEÐRIÐ Í DAG Stútfullur BT bæklingur fylgir blaðinu í dag! 2 dagar í hlaupið H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 3 4 2 6 KRISTÍNA BERMAN N‡li›i í Verksmi›junni ● tíska ● heimili Í MIÐJU BLAÐSINS Nýtt Hagkaupsblað fylgir Fréttablaðinu í dag Sannfærandi sigur á Suður- Afríkubúum í gær Íslenska landsliðið vann 4–1 sigur á Suður-Afríku á Laugardals- vellinum í gær og hefur unnið tvo síðustu leiki sína með markatölunni 8–2. ÍÞRÓTTIR 30 Mannekla á leikskólum: Fleira ófaglært fólk rá›i› LEIKSKÓLAR Fjöldi umsókna um störf á leikskólum Reykjavíkur- borgar barst Menntasviði borgar- innar í gær að sögn Gerðar G. Óskarsdóttur, sviðsstjóra Mennta- sviðs. Enn vantar þó tvo starfsmenn á hvern leikskóla í borginni að meðaltali, en samtals eru milli 140 og 150 störf laus að sögn Gerðar. Hún segir að að öllum líkindum verði að ráða fleira ófaglært starfsfólk til leikskólanna. Gerður telur þó viðbúið að grípa þurfi til aðgerða á nokkrum leikskólum í Grafarvogi, þar sem ástandið er verst. - ht / sjá síðu 2 Lækkum matarskattinn Lækkun á matarskattinum er sanngjarn- asta leiðin til að lækka skatta. Hún nýtist öllum – tekjulágum sem efnuðum - en þó hlutfallslega mest þeim sem hafa lágar tekjur og mikla framfærslu. Lækkun matar- skattsins er því afar góð aðferð til að auka kaupmátt hjá öldruðum og barnafjölskyldum. Þetta segir Össur Skarphéðins- son alþingismaður í grein í blaðinu í dag. UMRÆÐAN 24 Allir sakborningar ítreku›u sakleysi JÓN ÁSGEIR JÓHANNESSON, FORSTJÓRI BAUGS Jón Ásgeir gengur frá Héraðsdómi Reykjavíkur eftir að Baugsmálið var þingfest í gær. Hann segir að margvísleg gögn verði lögð fram við réttarhöldin sem sýni fram á og sanni sakleysi ákærðra. Ákæra gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, og fimm ö›rum var flingfest í Héra›sdómi Reykjavíkur í gær. Verjandi telur a› máli› taki allt a› mánu› í flutningi fyrir dómi. Fjölskipa›ur dómur dæmir í málinu í undirrétti. DÓMSMÁL Mál ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs, Jóhannesi Jónssyni í Bónus og fjórum öðrum var þingfest í Hér- aðsdómi Reykjavíkur í gær. Pétur Guðgeirsson héraðsdóm- ari setti réttinn en að því búnu rakti Jón H. Snorrason saksóknari ákær- urnar í fjörutíu liðum. Sakborningar voru allir viðstaddir og hlýddu á þegar ákæran var lesin upp. Dómari spurði sakborninga hvort ákærurn- ar væru réttar og svöruðu þeir allir sem einn að þær væru rangar og lýstu sakleysi sínu. „Þetta tekur fimm ár úr ævi okkar en það er í lagi að lifa með því. Við erum sannfærð um sak- leysi okkar,“ sagði Jóhannes Jónsson í Bónus að lokinni þing- festingu málsins. Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs, sagði að fyrir dóm- inn kæmu margvísleg gögn sem sönnuðu sakleysi ákærðra. Jón H. Snorrason saksóknari vildi lítið tjá sig við fjölmiðla þeg- ar hann gekk úr dómssal og kvaðst láta nægja að fjalla um málið þar. Dómurinn í Baugsmálinu verður fjölskipaður. Meðdómend- ur Péturs Guðgeirssonar verða Arngrímur Ísberg héraðsdómari og Garðar Valdimarsson hæsta- réttarlögmaður og löggiltur end- urskoðandi. Svonefnt milliþinghald verður 20. október næstkomandi, þar verð- ur ákveðið hvenær málið verður tekið fyrir og meðferð þess hefst. Ekki er búist við því að það verði fyrr en í fyrsta lagi í nóvember. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, segir að sakborningar leggi ekki fram gögn til varnar sakborningum fyrr en við upphaf meðferðar málsins. „Við eigum von á því að aðal- meðferð hefjist annaðhvort í nóv- ember eða að öðrum kosti í janúar. Ef takast má að ljúka aðalmeðferð málsins fyrir áramót má hún varla hefjast síðar en 15. nóvember.“ Gestur telur að málið geti tekið allt að fjórar vikur í flutningi enda séu málsgögn gríðarleg að vöxt- um. Fjöldi innlendra og erlendra myndatöku-, blaða- og fréttamanna fylgdist með þingfestingu Baugs- málsins í gær og var dómssalurinn þéttskipaður. - jh / sjá síður 12 og 13 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L Stórtónleikar Rásar 2 og Rau›a krossins 20.45 ● Þétt dagskrá á laugardaginn ▲ FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Landnemar á Gaza: Íbúar fluttir me› valdi MIÐ-AUSTURLÖND Ísraelsher tók í gær að flytja íbúa landnema- byggða á Gaza-ströndinni á brott með valdi en frestur þeirra til að taka föggur sínar sjálfviljugir rann út á miðnætti í fyrrinótt. Hermennirnir mættu kröftugum mótmælum íbúanna en ekki kom þó til neinna verulegra átaka. Hins vegar voru flestir í miklu tilfinn- ingalegu uppnámi, bæði land- nemar og hermenn. Meira að segja Ariel Sharon forsætis- ráðherra kvaðst varla hafa getað horft á brottflutninginn ógrátandi. Undir kvöld var búið að rýma allar landnemabyggðirnar nema þá stærstu, Neve Dekalim. Á Vesturbakkanum gekk Ísraeli berserksgang og skaut fjóra Palestínumenn til bana í mótmælaskyni við brottflutning- inn. Herskáir Palestínu-menn tóku þegar að hefna morðanna í gær með árásum á byggðir landtöku- manna á Gaza. Enginn meiddist þó í þeim árásum. - shg / sjá síðu 4 STJÓRNMÁL Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í gær var stjórn þess falið að móta hug- myndir um hvernig staðið skuli að framboðsmálum Samfylking- arinnar í Reykjavík fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Skulu hugmyndir um tilhögun fram- boðsins lagðar fyrir fulltrúaráðs- fund í september. Upphafið að kosningabaráttu Samfylkingar- innar verður á borgarmálaráð- stefnu sem haldin verður í byrj- un september. „Það stendur ekki annað til en að Samfylkingin bjóði fram sér,” sagði Steinunn Valdís Óskars- dóttir borgarstjóri í kvöldfrétt- um Sjónvarpsins í gærkvöld. Stefán Jón Hafstein, borgar- fulltrúi R-listans, sagði fulltrúa- ráðsfundinn hafa verið góðan. „Við teljum möguleika Samfylk- ingarinnar svo mikla að ekki þurfi að gráta örlög R-listans,“ sagði hann. Fulltrúaráð Samfylkingarinn- ar í Reykjavík telur að með ákvörðun félagsfundar Vinstri grænna á mánudag þar sem Vinstri grænir ákváðu að fara fram í eigin nafni, hafi verið bundinn endi á það farsæla sam- starf sem félagshyggjufólk hef- ur haft í Reykjavík undanfarin tólf ár. - hb / th Fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík fundaði í gærkvöld: Samfylkingin b‡›ur ein fram
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.