Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 48
18. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR32
Danir tóku Englendinga í kennslustund í vináttuleik á Parken í Kaupmanna-
höfn í gærkvöld en fletta var stærsta tap enska landsli›sins í 25 ár.
Danir flengdu Englendinga
FÓTBOLTI „Ég er reiður og vonsvik-
inn yfir þessu tapi og ég sagði við
strákana að ef þeir ætluðu sér að
spila svona í framtíðinni, gætu
þeir gleymt því að fara á heims-
meistaramótið,“ sagði Sven-Gör-
an Eriksson, landsliðsþjálfari
Englands í gær, eftir að liðið tap-
aði 4-1 fyrir Dönum í æfingaleik.
Englendingar binda miklar vonir
við landslið sitt á HM í Þýskalandi
næsta sumar, en ef marka má
frammistöðu liðsins í gærkvöld
þarf Sven-Göran Eriksson að lesa
hressilega yfir hausamótunum á
sínum mönnum, sem voru teknir í
bakaríið af Dönum á Parken í
gærkvöld.
Fyrri hálfleikurinn var frekar
tíðindalítill, en í þeim síðari gerði
Eriksson nokkrar breytingar á liði
sínu og setti m.a. David James í
markið, sem gerði lítið annað en
að sækja knöttinn í netið í hálf-
leiknum. Þeir Glenn Johnson og
Jamie Carragher komu inn í stað
Gary Neville og John Terry og það
átti eftir að hafa skelfilegar af-
leiðingar í för með sér, þar sem
ekki stóð steinn yfir steini í vörn
Englendinganna. Fyrsta mark
leiksins kom á 62. mínútu og um
sex mínútum síðar var staðan orð-
in 3-0 fyrir Dani sem léku á als
oddi, meðan vörn Englendinganna
var eins og gatasigti. Þeir Dennis
Rommendahl, Jon Dahl Tomasson
og Michael Gravgaard skoruðu
mörk danska liðsins og gerðu út
um leikinn, áður en Wayne Roon-
ey minnkaði muninn eftir frá-
bæra sendingu frá David Beck-
ham skömmu fyrir leikslok, en
þeir voru yfirburðamenn í liði
Englands. Niðurlægingu gestanna
var þó ekki lokið, því Sören
Larsen bætti við fjórða marki
Dana eftir varnarmistök í uppbót-
artímanum.
„Mér þótti fyrri hálfleikurinn
þokkalega góður, en sá síðari var
vægast sagt skelfilegur,“ sagði
Eriksson, sem ekki er vanur að
viðra skoðanir sínar í viðtölum.
„Það er eins og menn hafi haldið
að þeir væru bara í fríi. Þeir
gerðu ekkert rétt allan seinni
hálfleikinn og ég er gríðarlega
vonsvikinn,“ sagði Eriksson.
„Það er alltaf hræðilegt að
tapa leikjum á þennan hátt, en við
megum samt ekki hengja haus
yfir þessu, þetta var bara æfinga-
leikur eftir allt saman,“ sagði
David Beckham, fyrirliði enska
liðsins.
Zinedine Zidane fagnaði end-
urkomu sinni í franska landsliðið
með því að skora eitt mark í 3-0
sigri á Fílabeinsströndinni en af-
mælisbörnin, William Gallas og
Thierry Henry, sem báðir urðu 28
ára í gær, skoruðu hin mörkin.
Henrik Larsson átti einnig far-
sæla endurkomu inn í lið Svía
sem unnu 2-1 sigur á Tékkum.
Larsson kom Svíum yfir strax á
20. mínútu. Búlgarar sem eru
með okkur í riðli eins og Svíar
unnu 3-1 sigur á Tyrkjum þar sem
góðkunningi íslenska liðsins,
Dimitar Berbatov, skoraði tvö
markanna. Möltubúar gerðu 1-1
jafntefli við Norður-Íra, Ungverj-
ar töpuðu 1-2 fyrir Argentínu og
þá gerðu næstu mótherjar okkar
Íslendinga, Króatar, 1-1 jafntefli
gegn heimsmeisturunum Brasil-
íumanna. Króatar komust yfir
eftir hálftíma leik en Brassarnir
jöfnuðu rétt fyrir hálfleik. bb, óój
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Fimmtudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
19.00 ÍBV og Grindavík mætast á
Hásteinsvelli í Landsbankad. karla.
19.00 KA og Víkingur mætast á
Akureyrarvelli í 1. deild karla.
19.00 Fjölnir og HK mætast á
Grafarvogsvelli í 1. deild karla.
19.00 Völsungur mætir Þór á
Húsavíkurvelli í 1. deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
07.00 Olíssport á Sýn. Endursýnt á
hálfríma fresti til 9.00 og svo 17.10.
16.40 Formúlukvöld á RÚV.
17.10 Olíssport á Sýn.
17.40 Danmörk – England á Sýn.
19.20 Króatía – Brasilía á Sýn.
21.00 PGA mótaröðin í golfi á
Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
22.30 Ungverjaland – Argentína á
Sýn.
00.10 Strandblak á Sýn.
Fjör í Ungverjalandi í gær:
Fékk rautt eft-
ir 30 sekúndur
FÓTBOLTI Argentínumenn þurftu
ekki að sýna á sér sparihliðarnar
þegar þeir sóttu Ungverja heim í
æfingaleik í gær og höfðu sigur 2-
1, þrátt fyrir að leika manni færri
síðustu 25 mínútur leiksins. Það
var Maxi Rodriguez sem kom
Argentínumönnum yfir eftir 17
mínútna leik, en lærisveinar Loth-
ar Matthaus náðu að jafna metin
rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins.
Það var loks varnarmaðurinn
Gabriel Heinze hjá Manchester
United sem tryggði Argentínu-
mönnum sigurinn í leiknum með
glæsilegu skallamarki á 65. mín-
útu, en skömmu síðar var hinum
unga og efnilega Lionel Messi hjá
Argentínu vikið af leikvelli á
óréttmætan hátt eftir að hafa ver-
ið inni á vellinum í um hálfa mín-
útu í sínum fyrsta landsleik.
Sannarlega grátbroslegt fyrir
hinn unga leikmann Barcelona og
ljóst að hann á ekki eftir að
gleyma fyrsta landsleiknum sín-
um í bráð.
STÓRSIGRI FAGNAÐ Danir unnu 4-1 sigur á Englendingum á Parken í Kaupmannahöfn í
gær og fögnuðu vel í leikslok. Þetta var fyrsti heimasigur Danmerkur á Englandi frá því
1948 og aðeins sá þriðji í 17 landsleikjum þjóðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
UNDRABARNIÐ REKIÐ ÚTAF Hinum unga
Lionel Messi hjá Argentínu vikið af leikvelli
eftir að hafa verið inni á vellinum í um
hálfa mínútu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES