Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 16
„Ég hef verið að vinna í allt sumar,“ segir Edda Sverrisdóttir, kaupmað- ur í versluninni Flex, innt eftir tíðindum. „Ég skrapp reyndar á yndislegt ættarmót norður á Akureyri vikuna fyrir verslunarmannahelgi,“ segir Edda en þangað á hún ættir að rekja þótt hún hafi aldrei búið þar. Edda kveður viðskiptin hafa gengið afar vel í sumar og segir Íslendinga hafa verið afar kaupglaða í sumar. „Það er ekki á vísan að róa með er- lendu ferðamennina,“ segir Edda sem hefur sínar skýringar á því. „Ég held að við séum að fá of mikið af túristum sem kostar að taka á móti. Margir halda kannski að vegna þess að það er ódýrt að fljúga til Ís- lands sé allt annað ódýrt. Svo fær fólk áfall þegar það kemst að verð- laginu og hefur ekki efni á að vera hér. Það kostar stórfé að taka á móti svona fólki.“ Edda tekur sér sjaldan frí á sumrin, en reynir frekar að taka sér hvíld frá amstri hversdagsins á vorin eða haustin. Um þessar mundir undir- býr hún ferð íslenskra kvenna sem ætla að sækja ráðstefnu í Argent- ínu fyrir konur í atvinnulífi. „Það er ekki víst að ég komist sjálf en von- andi get ég farið. Ég hef aldrei komið svo sunnarlega í álfuna áður og það væri ábyggilega spennandi.“ 16 18. ágúst 2005 FIMMTUDAGUR Undirb‡r kvennafer› til Argentínu HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? EDDA SVERRISDÓTTIR KAUPMAÐUR nær og fjær „Ég get alveg vi›ur- kennt fla› a› mér finnst flessi tímasetning á landsleik ekki gáfu- leg.“ EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN KNATT- SPYRNUMAÐUR Í FRÉTTABLAÐINU. „Sta›an er einfald- lega sú a› flau [stúd- entar] fá námslán fyrir flessu eins og annarri framfærslu.“ STEFÁN JÓN HAFSTEIN, FORMAÐ- UR MENNTARÁÐS, Í MORGUN- BLAÐINU. OR‹RÉTT„ “ Elfar Logi Hannesson hefur tileinkað sér ein- leikjaformið undanfarin ár og gert ævi vestfirska listamanna og skörunga skil með þeim hætti. Muggur og Steinn Stein- arr fylgdu honum þannig sem skugginn um leikhús landsins en erfiðar geng- ur honum að hrista af sér Gísla Súrsson sem farinn er að tala ensku og fylgir Elfari Loga til Berlínar í vetur. „Útlendingarnir sem koma á sýn- ingarnar virðast bara nokkuð vel að sér í Íslendingasögunum,“ seg- ir Elfar Logi Hannesson leikari sem farinn er að bjóða upp á ein- leik sinn um Gísla Súrsson á ensku. „Þetta segir mér bara það að víkingarnir eru inn í dag, það fer örugglega að þykja töff að ganga um í gærum og munda spjót,“ segir hann kankvís. Hvað sem því líður þá hafa þýskir leikhúsfrömuðir fallið fyrir sýningunni og mun Elfar Logi því halda til Berlínar í vetur með Gísla í farteskinu svo þýskir leikhúsunnendur fái notið. Reynd- ar hafa leikhúsfrömuður annars staðar frá einnig haft samband við Elfar Loga en hann vill sem minnst úr því gera. Hann rekur einnig kaffi- og veitingahúsið Langi Mangi á Ísa- firði og hefur mörgum kaffihúsa- gestanna brugðið við að fá af- greiðslu frá þessum skeggjaða víkingi. Hvernig fer leikhúslífið og veitingareksturinn saman? „Ég hefði aldrei getað gert þetta án konu minnar sem hefur stutt mig í einu og öllu. Oft hefur hún staðið vaktina á Langa Manga meðan ég hef verið að leika þannig að ég segi bara líkt og Gísli sagði á ögur- stundu: „það vissi ég að ég væri vel kvæntur ...“ Það er útlit fyrir það að konan þurfi að standa nokkrar slíkar vaktir til viðbótar því Elfar Logi er farinn að huga að enn öðrum einleiknum sem hann hyggst frumsýna í febrúar á næsta ári. Athafnarmaðurinn hefur þó ekki alveg vikið fyrir leikaranum því nýlega keypti hann Félags- heimilið í Haukadal í Dýrafirði og er hann að vinna að endurbótum á húsnæðinu. „Svo er þetta fína svið í Félagsheimilinu svo ætli maður leyfi Gísla ekki að stíga þar á stokk en þá væri hann loksins kominn afur heim,“ segir hann að lokum. jse@frettabladid.is fia› vissi ég a› ég væri vel kvæntur ELFAR LOGI Í hlutverki Gísla Súrssonar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T Pétur Pétursson þulur hrósar sigri í „plakatsmálinu“: Or› Roosevelts um heimför hersins fundin SAGA Áratuga leit Péturs Péturs- sonar þular að yfirlýsingu Roo- sevelts Bandaríkjaforseta, þess efnis að Bandaríkjaher myndi hverfa héðan að loknu stríði, er að mestu lokið. Í skjalasafni bandarískra stjórnvalda hefur fundist afrit af yfirlýsingu for- setans til Alþingis Íslendinga þar sem hann heitir því að herinn yf- irgefi Ísland um leið og friður kemst á. „Ég varð mjög hissa og þakk- látur þegar þetta fannst,“ segir Pétur en dóttursonur hans Eyþór Gunnarsson fann yfirlýsinguna á veraldarvefnum eftir nokkra leit. „Eyþór er ekki orðmargur en af- kastamikill ef því er að skipta,“ segir Pétur hróðugur. Enn er ófundið plakatið sem hengt var upp víða um Ísland en á því var mynd af Roosevelt og bandaríska fánanum auk loforðs forsetans. Pétur hyggst halda vestur um haf til að finna það og til þess notar hann eitt hundrað þúsund króna styrk sem hann hlaut úr Þjóðhátíðarsjóði fyrr í sumar, þótt hann hrökkvi aðeins fyrir annarri leiðinni. - bþs FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA PÉTUR PÉTURSSON Pétur hyggst afhenda íslenskum stjórnvöldum yfirlýsingu Roosevelts Bandaríkjaforseta og segir málefnið í þeirra höndum. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N ÁSTKÆRA YLHÝRA Í hund og kött Hundar og kettir eru meðal allra vin- sælustu gæludýra en eru þekktir fyrir að koma illa saman og í því sam- bandi talað um að rífast eins og hundur og köttur. Þessir loðnu vinir okkar hafa þó ekki síður sett mark sitt á málið í forskeytum, sem geta verið býsna forvitnileg. Hægt er að vera hundfúll og hundleiðinlegur, sem þykir ekki eftirsóknarvert, en sumir verða hundgamlir og þá kannski hundvísir líka, þó að vitur- leiki og aldur haldist ekki alltaf í hendur. Hund-forskeytið leggur þannig áherslu og magnar upp lýs- ingarorðið sem það fylgir úr hlaði. Hundalógík þykir þó ekki burðug og hundaklyfberi er afar ómerkilegur maður, hundingi. Dýrin tengjast aftur gegnum hundslappadrífu, sem sums staðar er kölluð kattlappadrífa. For- skeyti kattanna virðast hafa öllu meira að gera með eiginleika dýr- anna, eins og sjá má af því að kettir eru sannarlega kattliðugir. En þá má velta því fyrir sér hvort það sé í raun- inni hrósyrði að segja um náungann að hann sé kattþrifinn, þar sem katt- arþvottur er lélegur þvottur. Þetta er hundþvælið, en það verður að taka því eins og hverju öðru hundsbiti. magnus@frettabladid.is 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.