Fréttablaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 40
16
FASTEIGNIR
Sölu annast Húsakaup, fasteignasala, Suðurlandsbraut 52, S ími 530 1500, husakaup@husakaup. is
GRÆNLANDSLEIÐ 14-20
– N Ý B Y G G I N G A R Á Ú T S Ý N I S S T A Ð Í G R A F A R H O L T I N U –
Um er að ræða þrjár 166 fm efri sérhæðir með 38 fm bílskúr
og fjórar 2ja herbergja 83 fm neðri sérhæðir.
SÖLUMENN SÝNA ÍBÚÐIRNAR Í DAG FRÁ KL. 17 – 18
Glæsilegar og óviðjafnanlega vel staðsettar sérhæðir í
nýjum parhúsum á einstökum útsýnisstað. Húseignirnar
skiptast annars vegar í glæsilegar efri sérhæðir með
óvenju stórum innbyggðum bílskúr þar sem allt er sér, s.s.
inngangur, þvottahús og hiti. Úr þessum hæðum er
útgengt út á um 40 fm timurverönd vestan megin við
húsin og austan við húsin er um 30 fm hellulögð verönd
þar sem gert er ráð fyrir glerskála og liggja fyrir
samþykktar teikningar af honum. Hins vegar er um að
ræða glæsileg 2ja herbergja neðri sérhæðir. Húseignirnar
eru fullbúnar að utan en tilbúnar til innréttinga að innan,
fyrir utan eina neðri sérhæð sem selst fullfrágengin.
Húsin eru vönduð að allri gerð og mjög fallegur arkitektúr.
Þau eru staðsteypt og múruð með marmarasalla. Lóð
húsanna er grófjöfnuð og bílaplan tilbúið fyrir hellulögn
Staðsetningin er mjög skemmtileg á stórkostlegum
útsýnisstað en þessar húseignir eru innst í lokuðum
botnlanga þaðan sem þær njóta óskerts útsýnis yfir
nánast alla Reykjavík, Esjuna og út á flóann.